Tíminn - 18.02.1943, Side 3
20. lílað
TÍMM, fimmtwdagíim 18. febr. 1943
79
Helgi H í ö r v a r:
Ásgeír í Knarrarnesí
13- maí 1853 — 3. febrúar 1943
Ásgeir í Knarrarnesi er einn
þeirra manna, sem óaðskiljan-
legir verða jörðinni, þar sem
þeir bjuggu. Nafn hennar fylg-
ir þeim, og þeirra nafn henni,
löngu eftir að þeir eru úr heimi
farnir.
Ásgeir i Knarrarnesi var
fæddur þar 13. maí 1853; þar
ólst hann upp, tók þar við bús-
forráðum vart tvítugur, að föð-
ur sínum látnum, og stýrði þar
búi í hálfa öld, fyrst búi móður'
sinnar og eftir það sínu eigin.
En nær sjötugu fluttist hann
suður að Reykjum í Mosfells-'
sveit, til Bjarna sonar síns, og
lifði þar enn full tuttugu ár
við fulla andlega hreysti og sí-
vakandi áhuga fyrir almennum
málum og þjóðlegum fræðum.
Hann skorti rúma þrjá mánuði
í nírætt, er hann lézt 3. þ. m.
Foreldrar Ásgeirs voru Bjarni
bóndi í Knarrarnesi, Benedikts-
son prests I Hvammi í Norður-
árdal og Hítarnesi, Björnssonar
prests í Hítardal. En móðir hans
var Þórdís Jónsdóttir hrepp-
stjóra á Álftanesi, Sigurðsson-
ar, Bjarnasonar á Langárfossi.
Ásgeir kvæntist 1887 Ragnheiði
Helgadóttur frá Vogi. Þeim varð
fjögurra barna auðið. Dætur
þeirra eru Soffía hjúkrunar-
kona, ógift, og Þórdís kona
Bjarna Benediktssonar kaup-
manns á Húsavík. En synir
þeirra Bjarni alþingismaður á
Reykjum og Helgi, skrifstofu-
maður, nú í Reykjavík.
Heimili þeirra hjóna í Knarr-
arnesi var orðlagt að rausn og
prýði. Ásgeir reisti þar timb-
urhús gott 1890; var þar hí-
býlaprýði mikil og meira innan-
stokks til þæginda og fegurðar
en víðast annars staðar. Hús-
freyja var skörungur mikill, en
bóndi aflamaður frábær og aö-
dráttamaður, en bæði hinir
mestu höfðingjar. Stóð hagur
þeirra með góðum blóma, en
ekki safnaðist þeim auður.
Þrjár dætur Helga í Vogi
(fjórða) urðu húsfreyjur á stór-
býlum þar á Mýrunum, Ragn-
heiður í Knarrarnesi, Raimveig
í Vogi og Sigríður á Gríms-
stöðum, en menning öll dafnaði
mjög um héraðið á þessum
tíma, og munu hin ágætu heim-
ili Vogssystra hafa" átt sinn
þátt í því; enda tengdust marg-
ar hinar beztu ættir á Mýrum
margvíslega, efnahagur var
góður og búsæld, ekki sízt á
sjávarbýlunum, samgöngur viö
Reykjavík tíðar, og stuðiaði allt
þetta að framför í menningu
og myndarbrag.
Ásgeir í Knarrarnesi hafði
sig ekki í frammi í almennum
málum, og var í því svo hlé-
drægur, að margir telja miður
farið; hafi því ekki komið
fram til fulls þeir hæfileikar,
sem með honum bjuggu. Þó var
hann hreþpsnefndarmaður og
sýslunefndarmaður ' um fjöl-
mörg ár, amtsráðsmaður 1892—
1907 og búnaðarþingsmaður
1907—1915, og hafði í öllu þessu
hið fyllsta traust héraðsmanna
sinna. Bændur á Mýrum fylgd-
ust með af lífi og sál í stjórn-
málum, voru harðkræfir um
landsréttindi og landvarnar-
menn, en 1908 snerist Ásgeir
til fylgis við Hannes Hafstein;
skildi þá leiðir í því með honum
og mörgum hinum fremstu
héraðsmanna hans og vina, en
engu breytti það öðru. Ásgeir
gerðist Framsóknarmaður, er
sá flokkur hófst, og var það æ
síðan.
Knarrarnes á Mýrum er nú
fyrir löngu umflotln eyja, þó
að svo hafi ekki verið, þá er
Skallagrímur tók þar land.
Hlunnindi voru þar mikil til
sjávar, en lítið efni til þeirra
framkvæmda, sem bændastétt
þessara tíma hefir einkum lagt
hug á, það er græðsla jarðar-
innar og ræktun. Það var því
bæði, að Ásgeir átti ekki þess
kost að gerast mikill bóndi til
landsins á bújörð sinni, og svo
hitt, að hugur hans og eöli stóð
til annars frá upphaíi. Ásgeir
var sjávarins maður fyrst og
fremst, veiðimaðnr og farr.iað-
ur. Hann mundi á söguöld hafa
gerzt „fardrengur góður“. Það
bar til í æsku hans, að útlendur
skipstjóri, sem kom í Straum-
fjörð, kynntist nokkuð þessum
unga manni; fannst honum
til um hann og bauð honum að
koma með sér í siglingar. En þá
var Ásgeir orðinn fyrirvinna
móður sinnar og þóttist svn
bundinn, að ekki tjáði annað en
neita boðinu. En sárt tók hann
það þá og jafnvel æ síðan.
En á jörð hans var búskapur
allur meir en að hálfu leyti til
sjávarins, hlunnindi, heyskap-
ur, veiði, samgöngur allar og
aðdrættir. Hann .gerðist for-
maður á unga aldri, bæði fyrir
Mýrum og á vetrarvertíð á
Suðurnesjum. Hann var sjómað-
ur mikill, frábær að hverju
verki; hann lagði mikla stund
á að kynnast miðum og fiskileit-
um öllum og varð svo aflasæll,
að engum þótti tjá að keppa
við hann í því. Það hefir sagt
mér einn af hásetum hans, að
hann hafi stundum lagt lóð
sína með ólíkindum, ýmsar
krókaleiðir og jafnvel hringað
hana niður í sjóinn; en fiskur
var oft á hverju járni hjá hon-
um, þó að aðrir umhverfis
fengju lítið; hafi svo virzt sem
hann gengi að fiskinum í kvos-
um og daladrögum á sjávarbotni
eins og smalinn gengur að fé
sínu í fjallahvömmum. Eins var
ef Ásgeir renndi færi, að hann
var svo fiskinn, að hann dró tvo
fiska meðan aðrir drógu einn.
Svo var og um hvert verk, sem
hann vann, þó að ekki væri ann-
að en að taka lunda, sem helzt
þarf til handflýti og lægni, að
flest vann hann við hverja aðra
tvo, þó að þeir hefðu fullan hug
á að láta ekki svo vera. En það
fylgdi afköstum hans, að hann
sýndist aldrei hafa neitt fyrir
neinu verki né láta sér títt um
það, og er það einkenni slíkra
manna.
Ásgeir var snemma bráð-
þroska, maður í hærra lagi, með-
allagi þrekinn, en afarmenni að
afli og þrekmaður mikill allaævi,
fáheyrður ræðari, enda lagð-
ist hann löngum fast á tvær ár-
ar, einn á skektu sinni viðheima-
störf og veiðifarir, og var ör-
skreið ferja hans, þó að móti
blési. En það sögðu hásetar hans
á yngri árum hans, að þá hvítn-
aði sjórinn, ef Ásgeir lagði út.
Hann tók ekki vettlingatökum
á verki sínu.
Ásgeir fékk ekki færi á því að
stunda íþróttir í æsku sinni, eins
og nú er orðið. En hann gerði
starf sitt og líf að íþrótt, sjó-
mennskuna og veiðina. Hann
gerðist snemma svo frábær skot-
maður, að hann átti ekki sinn
líka um þær slóðir, selaskytta
og refaskytta. Ekki lá hann á
grenjum, en gekk uppi dýr á
vetrum, og var honum það meir
að skapi. En við selinn þreytti
hann þó eftirlætisíþrótt sína
mest, og færði þannig mikinn
afla í bú sitt. Hann gerði sér
mikið far um að eiga hin beztu
skotvopn, handlék þau, fægði og
smurði og lét aldrei niður falla
á vetrum að halda við skotfimi
sinni. Það var eitt sinn á síð-
ustu árum hans í Knarrarnesi,
er hann var nær sjötugur, að
Halldór skólastjóri á Hvanneyri
var í heimsókn hjá honum, og
fóru til selaskota, því að Hall-
dór var og veiðimaður mikill og
ágætur skotmaður. Þeim varð
eigi fengsælt lengi dags. Þá
stóðu þeir á skeri, en selur kom
upp rétt hjá þeim. Halldór skaut,
og missti marks, þó að dauða-
færi væri, en selurinn lét sjóinn
gæta sín hið skjótasta. Loks
kópir hann upp aftur, og var
Dað afarlangt færi. Þá brást
gamli Knarrarnessbóndinn svo
við, að hann þreif rifíilinn af
gesti sínum og skaut, skjótar
en auga festi á. Og ekki geigaði
enn skeyti hans. Þá féllust Hall-
dóri Vilhjálmssyni hendur af
undrun.
Atvikin gerðu það og starfs-
hættir á bújörð hans, að Ásgeir
varð allan sinn aldur í Knarrar-
nesi sjómaður heimilisins og að-
dráttamaður. Hann varð sam-
gróinn bát sínum. En athygli
hans og eðlisgáfa gerði það, að
hvergi var sú leið fyrir gervöll-
um Mýrum, ekki sker eða grunn,
að Ásgeir ekki gerþekkti það allt,
og margt slíkt mun hann einn
hafa vitað. Hann varð snemma
smiður góður af sjálfum sér;
hvað sem til bús þurfti eða sjó-
mensku, þá gerði hann að öll-
um hlutum sjálfur, en sumt af
nýju. Þannig gerðist hann og
skipasmiður með aldrinum og
gerði þá marga fleytu af kili,
en hélt við gömlum skipum og
stærri. Gaf honum auga leið í
öllu þessu, því að ekkert hafði
hann til þeirra hluta lært, nema
af sjálfum sér og svo af hand-
tökum þeirra, er hann sá vel
kunna.
Ásgeir í Knarrarnesi naut lít-
illar eða nær engrar sérstakrar
fræðslu í æsku sinni. Þó mun
hafa verið þar heimiliskennari
tíma úr vetri, er hann var nokk-
uð yfir fermingu. En vel má
lionnm hafa gagnast. sú tilsögn,
sem hann kann að hafa fengið,
því að hann varð hinn mesti
fræðimaður. Hann varð af
mannviti sínu, lestri bókmennta
og máli alþýðunnar svo frá
bær stílsnillingur, að seint mun
firnást sumt það, sem hann hef-
ir í letur fært. Lýsing hans á
sjófuglalífi fyrir Mýrum er hrein
perla í bóRmenntum okkkar, ó
brotgjarn minnisvarði um skvn-
semd og málsnild alþýðumanns
ins, sem geymdi í sínum fórum
hreinleik tungunnar um aldir,
kraft hennar og mjúkleik, án
málfræðistöppu nútímans. Þau
Knarrarneshjón áttu gullbrúð
kaup um veturinn 1937. Þá var
Ásgeir 84 ára. Honum mun hafa
þótt skylt að halda uppi siðvenj -
um og flytja ræðu nokkra í
mannfagnaðinum, og það gerði
hann. Hafði hann skrifað ræð-
una, en flutning af blöðum hafði
hann lítt vanist við. En litlu síð-
ar kvaddi hann sér aftur hljóðs
og mælti sem hugurinn bauð.
Var þá sem nýr maöur talaði og
kom þá málsnild hans fram
frjáls og hispurslaus. Hann
lýsti þá atburði, sem varð í
æsku hans, er hann var á skipi
með mörgu fólki í ferð fyrir
Mýrum. Þá kom á skipið í einum
stað barnung stúlka, björt og
hárfögur. Hann sá hana þá hið
fyrsta sinn, að honum þótti, en
síðar varð hún konan hans. Og
hún var honum allt af ung og
björt og hárfögur; og ekki þurfti
hann að sjá henni á bak meðan
hann lifði.
Allir þeir, sem alvara lífsins
hefir nokkuð snortið, komast
undarlega við,hvert sinn er gam-
all og göfugur mað\ar hverfur
okkur. Það skynjum vér allir,
að þá hverfur samtíðinni eitt
hvað það, sem aldrei verður
bætt né aftur fengið. Fyrst er
það, að hver slíkur maður tek-
ur með sér í gröfina sögu og
vitneskju um horfinn tima, sem
hann kunni síðastur lifenda frá
að segja. Undarlegur tregi fylg-
ir þessari vitund. Hitt er sú til
finnnig, að með hinum gamla,
góða manni hverfur frá oss
menning hans sjálfs, mildi og
göfgi, sem löng lífsreynsla hefir
gefið honum, en hin unga og ó-
tamda kynslóð sýnist eiga langt
ófarið að ávinna sér slíka
menningu. Þannig stöndum vér
í stað í baráttunni.
Ásgeir í Knarrarnesi var spak
ur maður að viti og eðli. At-
hyglisgáfa hans var frábær og
heilbrigð, eins og rit hans sýna
skýrast, skilningurinn hlýr og
minnið traust. Hann skipti nær
ekki skapi og átti þó mikla geðs-
muni; hann deildi aldrei. Hann
var einn þeirra manna, sem
náttúran gefur furmkraft sinn í
ríkum mæli, heilbrigði upprun
ans. En um leið átti hann og
jafnvægi hins gagnmenntaða
manns; góðvild og hófsemi og
kyrrlát lífsgleði einkenndi állt
dagfar hans og háttu. Ævikvöld
hans varð langt, og var það í
fögru samræmi við allt líf hans.
A N IV A L L
Afmæli.
Hinn 15. febr., varð Andrés
Guðjónsson verzlunarstjóri á
Hólanesi fimmtugur. Við sveit-
ungar hans minntumst um leið
margra ánægjustunda og starfs-
daga með honum á liðinni æfi.
Andrés Guðjónsson er sonur
merkishjónanna, Guðjóns Ein-
arssonar, fyrrum bónda á Harra-
stöðum á Skagaströnd og Lilju
Pétursdóttur konu hans. Þau
hjón fluttust hingað í sveit vest-
an af Ströndum nokkru fyrir
síðustu aldamót. Þar er ætt
Andrésar öll. Má rekja ætt hans
til margra ágætra og dugandi
bænda þar, og hæfileikamanna.
Guðjón á Harrastöðum var hinn
mesti dugnaðar- og eljumaður,
ágætur bóndi og framtaksamur
með nýja búskaparhætti. Þá var
og Lilja kona hans hin mesta
merkiskona og ágætis móðir
sonum sínum. Andrés ólst upp
hjá foreldrum sínum á Harra-
stöðum, og mótaðist skapferli
hans og líferni af áhrífum frá
foreldrum hans og íslenzkri
sveitamenningu, eins og hún er
bezt. Naut hann strax í æsku
nokkurrar menntunar, og er
hann hafði aldur til, sendu for-
eldrarnir ,hann til náms í Verzl-
unarskóla íslands. Þar lauk
hann ágætis prófi; því Andrés
hefir erft í ríkum mæli gáfur
og dugnað foreldra sinna. Þegar
foreldrar hans höfðu þannig
lokið uppeldisstarfi sínu, með
því að veita honum algilda
menntun, til að lifa og starfa á
eigin ábyrgð, lagði hann út í
lífið sem sjálfstæður maður.
Það fór svo með hann eins
og marga fleiri, sem hafa notið
góðrar æsku, að hugur hans
dróst til æskustöðvanna sinna,
heim í sveitina til foreldra og
uppeldissystkina.
Hér hefir hann starfað alltaf
síðan. Fyrst sem bóndi á föður-
leifð sinni, Harrastöðum, en nú
nokkur ár síðastl. sem verzlun-
arstjóri hér á Hólanesi. Strax er
hann hafði aldur til hlóðust á
hann ýmis störf fyrir sveit sína.
Hefir hann rækt þau með hinni
mestu skyldurækni og dugnaði.
Nú um mörg undanfarin ár
hefir hann starfað í sóknar-
nefnd, hreppsnefnd og hafnar-
nefnd Skagastrandar, og nú síð-
ast sem oddviti hér i Höfða-
hreppi. Þrátt fyrir þrotlaust
starf og annaríki, hefir Andrés
alltaf tíma til að taka móti
öllum þeim mörgu vinum, sem
koma til hans daglega, til að
sækja til hans ráð og andlega
hressingu. Hann er hverjum
manni glaðari í lund, bjartsýnn,
og kann vel að vera í góðum fé-
lagsskap. Þar sem hann er víkur
til hliðar sorg og kvíði. Úrræða-
leysi og kjarkleysi þekkist ekki,
þar sem hann snýr sér að. Hann
kann ráð við öllu og leggur sig
allan fram við þau viðfangsefni,
sem hann snýr sér að.
Andrés er kvongaður ágætis
konu, Sigurborgu Hallbjarnar-
dóttur, ljósmóður. Þau hjón
hafa eignazt 5 börn, fjóra syni
og eina dóttur. Hafa þau hjón
reynzt börnum sínum hinir
beztu foreldrar; enda eru börn-
in hin efnilegustu. Engin rós er
án þyma. Nú um nýárið misstu
þau elzta son sinn, Hallbjörn,
sem varð bráðkvaddur 2. jan.
síðastl.
Við sveitungar þeirra hjóna
vottum þeim hluttekningu og
samúð við þennan sorgaratburð.
En hins vegar óskum við Andrési
hjartanlega til hamingju með
fimmtugsafmælið, og óskum,
að við megum enn í mörg ár
njóta þess að hafa hann hér
meðal okkar, og að sveitin hans,
sem hann hefir helgað æfistarf
sitt megi enn njóta, um langt
skeið, starfskrafta hans og fé-
Iagslegrar starfsemi.
Guð blessi þig og heimili þitt.
Skagaströnd í febr. 1943.
P. J.
Bjarni Guðmundsson
Suðurgötu 16,
Reykjavík
löggiltur skjalaþýðari
(enska)
Sími 5828, heima kl. 1—2.
Samband ísl. santvinnufélaqa.
Kaupfélög!
Munið eftir að senda oss verðskýrslur yðar í
byrjun hvers mánaðar.
Ódýrustu og beztu matarkaupin eru
0 0
SPAÐKJOT
Heiltunnur 130 kg. kr. 690.00 eða kr. 5.31 kílóið
do. 120 — — 640.00 ------ 5.33 —
Hálftunnur 60 — — 330.00 — — 5.50 —
do. 55 — — 305.00 — — 5.55 —
Kútar 25 — — 145.00 — — 5.80 —
Sent heim með stuttum fyrirvara.
«5.7,'V
Tekið við pöntunum í síma 1080 og 2678.
Samband ísl. samvinnuíélaga
Blautsápa
írá sápuverksmiðjuimi Sjöfn er almenut við-
urkennd fyrir gæði. Flestar liúsmæður nota
Sjaínar-blautsáptt
Orðsending
til kaupenda Tímans
Þeir, sem ekki hafa greitt síðasta ár-
gang Tímans, eru beðnir að atliuga,
að iiiiian skamms verður h æ 11 að
senda blaðið til peirra, sem ekki gera
full skil.
tJTSÖLFSTAÐIR TÍMMS t REYKJAVÍK
Verzluninn Vitinn, Lauganesvegi 52 ................ Simi 2260
Þorsteinsbúð, Hringbraut 61........................ — 2803
Flöskubúðin, Bergstaðastræti 10 ................... — 5395
Leifskaffi, Skólavörðustíg 3 ...................... — 2139
Bókaskemman, Laugaveg 20 B.........................
Bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu ........................ — 5325
Söluturninn, Hverfisgötu ................'......... — 4175
Sælgætisbúðin Kolasundi ...........................
Verzlunin Ægir, Grófinni...........................
Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1 ..... — 1336
Bókastöð Eimreiðarinnar, Aðalstræti 6 ............. — 3158
Ólafur R. Ólafs, Vesturgötu 16 .................... — 1754
Konfektgerðin Fjóla, Vesturgötu 29 ................ — 1916
Jafet Sigurðsson, Bræðraborgarstíg 29 ............. — 4040
Framsóknarmenn
í Reykjavík
Afgreiðsla Tíinans biður ykkur vinsamleg-
ast um aðstoð við að útvega börn eða unglinga
til að bera blaðið til kaupenda í bænum.