Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 25.11.1974, Blaðsíða 3

Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 25.11.1974, Blaðsíða 3
46 milljör&um króna, og yrði vöruskiptajöfnuöurinn vi& útlönd því óhagstæöur um 11,7 milljaröa króna á þessu ári. Þá er spáð um 700 m.kr. halla á þjónustujöfnuði, og yrði viðskiptajöfnuður- inn því óhagstæður um 12,4 milljarða króna. Viðskiptahallinn á þessu ári mun nema rúmlega 9% af þjóðar- framleiðslu, samanborið við 2.615 m.kr. viðskiptahalla á sl. ári, eða um 3% af þjóðarframleiðslu. Viðskiptahallinn, sem nú er spáð, er talsvert meiri en búizt var við fyrr á árinu, og stafar það einkum af meiri aukningu sérstaks innflutnings fjárfestingarvöru, birgðasöfnun útflutningsvöru og halla á þjónustuviðskiptum, auk þess sem gengislækkunin í ágústmánuði eykur viðskiptahallann í krónutölu. Sé hækkun olíuverðs (3.200 m.kr.) frátalin nemur viðskiptahallinn um 9.200 m.kr. eða um 7% af þjóðarframleiðslu. Ef auk þess eru undanskildar breytingar útflutningsvörubirgða og hinn sérstaki innflutningur fjárfestingarvöru, er viðskipta- jöfnuðurinn þannig leiðréttur óhagstæður um 500 m.kr. samanborið við um 2.000 m.kr. hagstæðan jöfnuð á sl. ári. Að hluta til stafar þessi versnun af magnaukningu innflutnings samanborið við nokkra magnminnkun útflutnings, en jafnframt hefur þjónustu- jöfnuður snúizt okkur í óhag, auk þess sem hér gætir áhrifa versnandi viðskiptakjara - jafnvel án hækkunar olíuverðs. Gert er ráð fyrir, að erlendar lántökur til langs tíma að frádregnum afborgunum nemi um 8.500 m.kr. á þessu ári, en jöfnuður skammtíma fjármagnshreyfinga verði neikvæður um 800- 900 m.kr.. Greiðslujöfnuðurinn við útlönd yrði þannig óhag- stæður um nálægt 5 milljarða króna á árinu 1974. Atvinna, tekjur og verðlag. Frá því á árinu 1972 má telja, að ríkt hafi umframeftir- spurn eftir vinnuafli og talsverðs vinnuaflsskorts hefur gætt í einstökum atvinnugreinum á síðustu misserum. Á árinu 1973 var að meðaltali. 361 maður skráður atvinnulaus á öllu landinu eða um 0,4% alls mannafla, en hér var eingöngu um árstíða- og staðbundið atvinnuleysi að ræða. Mánuðina janúar til

x

Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur ..

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur ..
https://timarit.is/publication/1297

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.