Páskakveðja frá K.F.U.M. - 01.01.1916, Blaðsíða 3

Páskakveðja frá K.F.U.M. - 01.01.1916, Blaðsíða 3
ÞÁskakveöja í'HÁ i(. f. ti. M 3 mun aftur koma »til þess að dæma liíandi og dauða«. En hann kemur á hverjum degi. Hann kemur nú í dag til þín. Já, lil þín. Þið þurfið að hitlast, þú og hann. Þú með vanmátt þinn og synd þína, hann með náðina og hina eilífu gleði. Hann kemur til þin og mín. Við höfum margt við hann að tala, já, allir viljum vjer fagna, er vjer heyrum hinn gamla boðskap: »Sjá, konungur þinn kemur til þín«. Nú kemur hann. Þú heyrir röddina: »Sjá, jeg stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum, þá mun jeg fara inn tíl hans og neyta kvöldverðar með lion- um og hann með mjer«. Ef þú hlýðir þessum orðum, — og hvernig ættir þú að gela annað? þá verður þú aðnjótandi hins innilegasta sam- bands við konunginn, hann kemur til þín sem vinur. Skírdagur bendir þjer á hið innilegasta samband meislar- ans og lærisveinsins. Þá sjerðu hina fögru mynd, loftsalinn, þar sem Jesús er með vinum sinum og talar um hið innilegasla samband. Vinir Jesú vita, hvar þeir njóla hinnar hátið- legustu sælu í sambandi við hann. Jeg held ávalt blessunarrika hátíð, er jeg geng til altaris. Jeg minnist Jesú, og undarlegt væri það, ef læri- sveinninn vildi ekki minnasl frelsarans. En um leið og jeg minnist hans á þenna hátt, þá finn jeg til hinnar sælustu gleði og ununar. Þessu er lýst í liinu alkunna versi: Pín minning, Jesú, mjög sœt cr, sú minning hjörtum fögnuð ljer; en að þú sjálfur crt oss hjá er unun hæst, er veitast má. Kæri krislni vinur, taktu eftir, hvað í þessu versi felst. Hvenær stofnaði .Tesús hina heilögu kvöld- máltíð? Nokkrum stundum áður en hann dó. Menn eru vanir að hafa síðustu óskir vina sinna í heiðri. Jesús l)að um, að hans væri minst á þessa leið, og hann bað um þelta rjett fyrir dauða sinn. Hefir slikt ekki ábrlf á hjarta þitt? Þegar þú gengur til altaris, þá oeitir þú Jesú qleði. Hefir þú hugsað um þetta? Hve langt er síðan þú þefir glatt Jesúm á þenna hált? »Jeg skil ekki það, sem þar fer fram«, slik er mótbára margra. En er þjer ekki nóg, að þar mætir þú Krisli? Látum mennina deila um, í hverju altarisganga sje fólgin. Jeg veit, að þar fæ jeg áreiðanlega það, sem Ivristur ætlar mjer, þar tek jeg á móti blessunargjöf frá honum. Vjer nálgumst hann og gleðjum hann, en hina sælustu gleði veitir hann oss. Þegar jeg er mjög glaður, þá langar mig til altaris, og þegar jeg er sorgbitinn, þá langar mig að koma á hinn heilaga stað. En þannig er einnig hið rjelta vinasamband, hinum heztu vin- um segjum vjer frá hinni björtustu gleði vorri og hinni sárustu sorg. Þegar jeg krýp við náðarborðið berst sjerstök kveðja til min persónulega, kveðja frá honum, sem dó fyrir mig. Þess vegna get jeg ekki hugsað lil þess að vera án hinnar heilögu máltiðar. Svo endurnæring ekkerl ljer sem clskan, Jesú minn, á þjer. Föstudagurinn langi ætli aldrei að fara svo fram hjá oss, að þakk- lætið fyrir hina miklu fórn hefði ekki farið vaxandi. Það verða margir varir við hljúgar tilfinningar, þegar talað er um Jesúm, allir kannast við Ijósa- dýrðina á jólunum. Margir láta Jesú aðdáun i tje, margir hafa sjeð hann »í bernskunnar sólbjörtu hlíðum og i regnbogageislunum friðum«. Þeir hafa engan sjeð fegurri og hreinni hjer á jörðu, »en krossinn var hulinn, hann slóð þeim svo fjarri«. Kristindómur án krossins er kristindómur á bernskustigi, en á því stigi getum vjer ekki lengi lifað, annaðhvorl þroskumst vjer eða dej’jum. Því nær sem vjer komum krossinum, þess betur jnoskast samband vort við himininn. Þegar bar- áttan hefst við myrkrið, þegar kross-skuggar og harmaskúrir draga úr þreki voru, þegar sorg og krossraun verður hörð og í hjarlanu blæðir hin viðkvæma und, þá er oss ekki nóg að horfa á góðan mann og djúpvitran spámann, en þá þörfn- umst vjer jrelsara, þá finnum vjer, að vjer þurf- um að kynnast honum, sem er píndur undir Pontiusi Pilatusi, krossfestur, dáinn og grafinn, stiginn niður til heljar og risinn á þriðja degi aftur upp frá dauðum. Hvar er hin sigursæla trú? Hún er hjá þeim, sem á alvörustundum lífsins hafa horft á hinn deyjandi frelsara og þá sagt: »Þetta gerði hann fyrir mig«.

x

Páskakveðja frá K.F.U.M.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Páskakveðja frá K.F.U.M.
https://timarit.is/publication/543

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.