Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.02.1995, Blaðsíða 28
Franchezzo: Ritað ósjálfrátt afA. Faranese Formáli ritara frásagnar Þessi frásögn var rituð fyrir rúmu ári, og um leið og ég birti hana, geri ég ekki kröfu til þess að vera höf- undur hennar, þar eð ég hefl aðeins gegnt hlutverki ritarans og ritað eins satt og skilmerkilega og mér var unnt það, sem andarithöfund- urinn hefir falið mér að skrifa. Hann er einn þeirra fáu fram- liðnu anda, sem óskað hafa eftir því, að ég skrifi fyrir ykkur, lesendur góðir, um reynslu þeirra í „anda- heimi.“ Eg varð að rita svo hratt sem penni minn gat, og margar stað- reyndir og ályktanir frásagnarinnar brjóta að ýmsu leyti í bág við það, sem ég áleit vera samkvæmt lífi og lífsviðhorfum í „heimi andanna.“ Hinn framliðna rithöfund, Franchezzo, hefi ég oft séð sem lík- amning, og við ýmis tækifæri hafa vinir hans í jarðlífinu þekkt hann aftur. Þar eð ég birti nú frásögn hans eins og hann, sem framliðinn, birtir hana, verð ég að leggja á hann alla ábyrgð á skoðunum og lýsingum á atburðarás þeirri, sem hann nú greinir frá. A. Faranese. Þú vonarstjama, sem skín til blessunar vegfaranda á villustígum lífsins. Kœrleikans englar, skýrið oss frá því, hvort þið eruð komnir til þess að vísa þreyttum vegfaranda heim. Tileinkun höfundar Öllum þeim, sem berjast harðri baráttu í myrkri, þoku, óvissu og efa um það líf, sem fram undan er, til- einka ég eftirfarandi reynslu manns, sem kvatt hefir jarðlífið og farið yfir landamæri hins óþekkta og dular- fulla framhaldslífs, í þeirri von, að þær upplýsingar verði viðvörun ein- hverjum jarðarbúum, sem ganga veg glötunarinnar, og gefi þeim tilefni til umhugsunar, áður en þeir kveðja jarðlífið hlaðnir syndum og án iðrun- ar eins og ég. Það er þá meðbræður mína, sem ganga greitt leiðina niður á við, sem ég gjarna vil ávarpa með þeim þrótti, Þýðing: Guðbrandur E. Hlíðar sem sannleikurinn orkar á þá, sem ekki reyna að loka augunum fyrir honum. Því ef eftirverkanir athafna í jarðlífinu, sem lifað er í glaumi, glysi og eigingimi, eru oft hörmuleg- ar í jarðlífinu sjálfu, þá eru þær þó mörgum sinnum örðugari í anda- heimi, þar sem sálin stendur nakin og berskjölduð í nekt syndarinnar með hina andlegu sjúkdóma sálar- innar, sem ekki er hægt að afmá án lækniskrafts sannrar iðrunar og heilsulindar eigin iðrunartára skýrt stimplaða á sig. Ég bið nú jarðarbúa að trúa því að hinir þreyttu vegfarendur, sem farnir eru þaðan, gætu snúið við til þess að aðvara meðbræður sína í jarðlífinu, gerðu þeir það mjög fúslega. Ég vil gjarna gera mönnum ljóst, að framliðnir menn, sem geta gert sig sýnilega jarðarbúum, hafa mun æðra hlutverki að gegna en aðeins að hugga þá sem syrgja látna ástvini. Ég vona, að jafnvel nú á elleftu stundu mannlegs hroka og syndar, verði yður ljóst, að hinn Hæsti hefir leyft þessum öndum að birtast yður til þess að fræða yður um framhaldslíf þeirra, sem brjóta lögmál Guðs og lög manna. Ég vil að ónytjungurinn og sá hé- 64 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.