Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 26
ERLENT 26 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ JIANG Zemin, forseti Kína, setti í gær 16. flokksþing kínverskra kommúnista og útlistaði hugmyndir sínar um blandað hagkerfi sósíal- isma og kapítalisma en lagði áherslu á að kommúnistaflokkurinn ætti að halda alræðisvaldi sínu. 16. flokks- þingið er álitið mikilvægasta póli- tíska samkoma kínverskra komm- únista í áratug og ávarp Jiangs í gær er líklega síðasta stefnuræða hans áður en hann dregur sig í hlé sem leiðtogi kommúnistaflokksins. Jiang hvatti til frekari markaðs- umbóta og sagði að stefnt væri að því að fjórfalda verga þjóðarfram- leiðslu Kína fyrstu tvo áratugi ald- arinnar og auka samkeppnishæfni landsins í heimsviðskiptum. Hann lagði áherslu á nauðsyn þess að bæta lífskjör bænda og draga úr atvinnuleysi til að koma í veg fyrir ólgu í samfélaginu en boðaði ekki miklar pólitískar umbætur og hafn- aði algerlega fjölflokkalýðræði. „Flokkur okkar verður að standa fastur fyrir í fylkingarbrjósti,“ sagði Jiang í 90 mínútna setningarávarpi sínu. „Við þurfum að styrkja og bæta stjórnkerfið, lýðræðislegt alræði al- þýðunnar. Við ættum aldrei að líkja eftir neinum fyrirmyndum pólitíska kerfisins á Vesturlöndum.“ Talið að Hu varaforseti taki við af Jiang 2.114 fulltrúar sitja flokksþingið, sem er haldið á fimm ára fresti og stendur í viku, í Alþýðuhöllinni í Peking. Þingið er mikilvægt vegna þess að á því hefst fyrsta uppstokk- unin í forystusveit kínverskra kommúnista frá 1989. Jiang er 76 ára og á meðal nokk- urra aldraðra forystumanna komm- únistaflokksins sem búist er við að víki fyrir yngri stjórnmálamönnum, „fjórðu kynslóðinni“ svokölluðu, undir forystu Hu Jintao varaforseta. Talið er að Hu, sem er 59 ára, taki við af Jiang sem leiðtogi flokksins eftir flokksþingið og verði síðan for- seti Kína í vor. Fulltrúarnir á flokksþinginu eiga að kjósa um það bil 90 manna mið- stjórn sem velur síðan æðstu leiðtog- ana undir lok þingsins. Líklegt er að tilkynnt verði um breytingarnar á forystunni daginn eftir að þinginu lýkur. Fulltrúar á þinginu sögðust ekki hafa hugmynd um hvaða breytingar yrðu á forystu flokksins en sögðust ætla að styðja þá sem yrðu fyrir val- inu. Sérfræðingar í stjórnmálum Kína sögðu að Jiang hefði gefið til kynna í ræðunni að hann hygðist láta af embætti flokksleiðtoga en vildi tryggja sér áhrif á bak við tjöldin. Í ræðunni hefði hann fjallað ýtarlega um 13 ára valdatíð sína, ekki aðeins síðustu fimm árin eins og venja er á flokksþinginu, og það sýndi að staða hans í sögubókunum væri honum mjög hugleikin. Mikil leynd hvílir enn yfir áform- um Jiangs. Orðrómur hefur verið á kreiki um að hann hyggist ekki draga sig í hlé sem yfirmaður hers- ins og ætli að koma bandamönnum sínum í æðstu embætti flokksins. Jiang varð leiðtogi flokksins árið 1989 og valdatíð hans hefur ein- kennst af miklum hagvexti og auknu frjálsræði í efnahagsmálum en póli- tískri stöðnun. Kapítalistar fái að ganga í kommúnistaflokkinn Í ræðunni greindi Jiang í löngu máli frá pólitískum kenningum sín- um sem hann vonar að verði felldar inn í stefnuskrá flokksins á næstu dögum. Sérfræðingarnir sögðu að með því að leggja kapp á að verða viðurkenndur sem pólitískur hugs- uður vilji Jiang ekki aðeins hljóta sess meðal Maos Zedongs og Dengs Xiaopings í sögunni heldur einnig tryggja sér völd á bak við tjöldin eft- ir að hann lætur af embætti. Jiang hefur meðal annars lagt til að kapítalistum verði leyft að ganga í kommúnistaflokkinn og sú tillaga verður rædd á flokksþinginu. Útilokar ekki árás á Taívan Forsetinn sagði að forystumenn flokksins yrðu að laga sig að breytt- um tímum og losa sig við „fjötra úr- eltra hugmynda og venja“. Hann hvatti til þess að löggæslan yrði bætt og gerð yrði gangskör að því að stemma stigu við spillingu inn- an flokksins. Forsetinn hvatti ennfremur til þess að tekin yrðu upp „bein tengsl í póst-, flug- og sjósamgöngum og við- skiptum“ milli meginlands Kína og Taívans, en þessi tengsl hafa verið rofin í fimm áratugi. Jiang útilokaði ekki að beitt yrði hervaldi til að sameina meginlandið og Taívan. „Sú afstaða okkar að hafna ekki valdbeitingu beinist ekki að taívönskum samlöndum okkar,“ sagði hann. „Hún beinist að til- raunum erlendra afla til að hindra endursameiningu Kína og sjálfstæð- isáformum taívanskra aðskiln- aðarsinna.“ Ekki hægt að þverfóta fyrir lögreglumönnum Mikill öryggisviðbúnaður var í miðborg Peking vegna flokksþings- ins til að koma í veg fyrir mótmæli. Einkennisklæddir lögreglumenn, hermenn og óeinkennisklæddir ör- yggisverðir frá að minnsta sex stofn- unum voru á götunum og að sögn fréttamanns AP voru aðeins sex metrar á milli lögreglumannanna. Hótel í Peking fengu fyrirmæli um að vísa Tíbetum eða múslímum frá norðvesturhluta Kína á dyr meðan þingið stendur yfir, að sögn starfs- manna fjögurra hótela. Að minnsta kosti þrjár tilraunir voru gerðar til að dreifa bæklingum fyrir utan Alþýðuhöllina en lög- reglumenn voru fljótir að fjarlægja þá. Nokkrir menn voru handteknir, meðal annars fámennur hópur iðk- enda Falun Gong. Jiang Zemin, forseti Kína, setur sextánda flokksþing kínverskra kommúnista í Peking Áhersla lögð á að alræði flokksins haldist Talið að Jiang muni draga sig í hlé Reuters Kínverskir lögreglumenn handtaka tvo mótmælendur (í bakgrunni) meðan aðrir tína upp dreifirit sem mennirnir tveir höfðu kastað fyrir framan Al- þýðuhöllina í Peking áður en flokksþingið hófst. Hu Jintao, vara- forseti Kína og líklegur eft- irmaður Jiangs. Jiang Zemin, for- seti Kína, flytur ræðu á flokks- þinginu í gær. ’ Við þurfum aðstyrkja og bæta stjórnkerfið, lýðræð- islegt alræði alþýð- unnar. ‘ Peking. AP, AFP. ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N/ SI A. IS T O Y 19 32 4 1 1/ 20 02 Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S. 570 5300 • www.arctictrucks.is markaður jeppamannsins RX-1 er kominn, ert þú tilbúinn? YAMAHA er komið í Arctic Trucks MEIRI HÁTTAR útlit sem hæfir foringja framtíðarinnar Á LAUGARDAG FRÁ 12-16 OG SUNNUDAG FRÁ 13-16 Í ARCTIC TRUCKS KOMDU OG SJÁÐU RX-1 VÉLSLEÐA ÁRSINS 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.