Helgarpósturinn - 06.04.1979, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 06.04.1979, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 6. apríl 1979 _helgarpásturinrL. _____helgar pásturinn._ utgefandi: Ðiaðaútgáfan Vitaösgjafi Rekstur: Alþýðubiaðið Framkvæmdast jóri: Jóhannes Guðmundsson Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björn Vignir Sigurpálsson Ritstjórnarfulltrúi: Jón Öskar Hafsteinsson Blaðamenn: Aldís Baldvinsdóttir, Guöjón Arngrimsson, Guðlaugur Ðergmundsson, Guðmundur Arni Stefánsson. Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason. Auglýsingar: Ingibjörg Sigurðar dóttir. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinars son Ritstjórn og auglýsingar eru aö Síðu múla 11, Reykjavík. Sími 81866. Af greiðsla að Hverf isgötu 8 — 10. Sími: 81866 og 81741. Prentun: Blaðaprenl h.f. Askrift (með Alþýðublaðinu) er kr. 3000 á mánuði. Verð í lausasölu er kr 150 eintakið. UM BARNIÐ Þegar börn fæðast reyna aðstandendur þeirra gjarnan að spá i framtiðina: Hvers konar krakki kemur þetta eiginlega til með að verða? Viö, vandamenn þessa nýja vikublaðs, sem nú spriklar i fyrsta skipti i vöggunni, erum i þessum sömu sporum. Aö sönnu vitum við hvernig grislingurinn litur út nýborinn, en við vitum hins vegar ekki hvernig hann kemur til með aö mótast og dafna. Spakir menn eru fyrir löngu búnir að sýna fram á, að það er ekki siður umhverfið, sem setur mark sitt á barnið en upp- eldið. t þessu tilfelli eru þaö þið islenskir blaðalesendur sem eruð umhverfi þessa nýgræðings i blaðaheiminum hérlendis. Við ætlum okkur ekki að hafa stór orð um eigið ágæti. I þvi efni gildir ekkert annað en dómur les- enda. Við getum hins vegar sagt frá þvi, sem við ætlum að reyna aðgerameð þessu vikublaði: Það er að bjóöa iesendum öðru visi valkost i helgarlesefni en þegar er fyrir hendi á blaðamarkaðn- um. bað hefur að visu komið á dag- inn. að eftir að útkoma Helgar- póstsins fór að spyrjast út kom greinilega glimuskjálfti I elsku- lega keppinauta okkar, og sumir þeirra hafa verið með tiiburði i þá átt að þræða svipaðar slóðir i efnisvali. Um það er ekki nema gott eitt að segja. bað hlýtur aö verka eins og vitaminsprauta á reifabarnið, þegar stóru krakk- arnir fara aö apa eftir þvi. Helgarpósturinn hyggst hafa nútima viöhorf og vinnubrögö i blaðamennsku að leiðarljósi. Viö munum reka frjálslynda og sjálf- stæða ritstjórnarstefnu, þar sem lögð veröur áhersla á áreiðan- leika og fjörlega framsetningu. Blaðiö mun ekki taka flokkspóli- tiska afstöðu i neinu máli, sem þýðir þó ekki aö blaðið muni engar skoöanir hafa. Viö ritstjórn Helgarpóstsins veröur leitast við að láta lögmál blaöa- mennskunnar ráða og ekkert annað. Nú er bara að sjá hvort barnið dafnar. Viö erum bjartsýnir. betta er nú einu sinni barnaár. -AÞ/BVS. Helgarpósturinn vill gjarnan hafa opnar umræöur og skoöanaskipti á siðum blaðsins, hvort heldur er um efni þess eða önnur mál sem mönnum liggur á hjarta. Höfuð- atriöi er að pistlar séu stuttir, gagnorðir og vélritaðir. Meðan aiþýðuráðherrarnir okkari rikistjórninni glimdu um það með minnisstæðu brauki og bramli nú á dögunum, að hve miklu leyti þeir ætluðu ekki að standa við nokkur helstu kosuingalo forð sin frá i vor, héidu sumir hinna minni spá- manna aiþýðufylkingarinnar okkar á Alþingiuppi hjartnæmu málþófi um það, að hve miklu leyti alþýðumenn, almenningur þessa iands, ætti aö kosta feröir ráðherranna okkar til og frá vigvellin um. Aö greina kjarnann frsí hisrninu Þarna var vakið máls á kjamanum, þarna var hismið loks skiliö frá og heiöarleg til- raun gerö til þess aö vega aö rótum spillingarinnar i landinu. Von var að hinn vinnandi maður liti upp, stryki svitann af enni sinu þreyttri hendi og sperrti eyrun. Þaöerkunnaraenfrá þurfi aö segja, aö alþýðuráðherrarnir okkar þiggja mjög svo þokkaleg laun úr almenningssjóðnum. Sumir segja að þeir hafi allt að þvi eins há laun og skrifstofu- stjóri i súkkulaðifabrikku, eða forstjóri innflutningsfirma sem flytur inn hárgreiður og skó- reimar. Rætnar tungur hafa meira að segja látið að þvi liggja,að þeir hafi hærri laun en kokkur á loðnubát. Alltént má gera þvi skóna, að þeir hafi nóg, og þó þeir slái kannski ekki for- stjórann á Grundartanga út, þegár allt er meðtalið, þá er mér alveg sama, fyrr má nú vera. Þökk sé áðurnefndum minni spámönnum alþýðunnar á Al- þingi, fyrir að vekja máls á spillingunni i bilabransanum. BUKKBEUURAUNIR Og þökk sé Morgunblaöinu fyrir undirtektirnar. Sjaldan liggur það blað á liði sinu þegar réttlætismálin eru annars veg- ar. Gönguferð hressir Fullyrða má, að alþýða þessa lands er staðráðin i þvi, að ráð- herrarnir eigi sina bila sjálfir, kaupi þásjálfirogreki.en gangi ella. Mér er sagt, að ráðherrar sitji á rassinum á fúndum alla daga, milli þessað þeir skjótist i kaffi niður á þing, eða i kokkteilboð upp i ráðherra- bústað, og hvað er eðlilegra en þeir hressi sig við inn á milli með rösklegri gönguferð. Vilji þeir aka, þá er það þeirra mál. Alþýöan hefur loksins komiö auga á spor spillingarinnar á freönu hjarni verðbólgunnar og efnahagsöngþveitisins og mun nú hvetja sérlega fulltrúa sínaá Alingi til að ráðast tU atlögu og láta hendur standa fram úr ermum. Hvað varðar okkur um það? Ikosningabaráttunni í vorvar stundum minnst á neöanjaröar- hagkerfi og lika varð mönnum tiðrætt um skattsvikin. Þessi mál verða hjóm eitt I saman- burði viö bilasukkið I rikis- stjórninni. Hvað varðar alþýðu- heimilin um þaö, þó að i næsta húsi lifi skattleysingi 1 vellyst- ingum praktuglega og haldi börnum sinum til náms, tann- lækninga ogannarrar heilbrigð- isþjónustu á kostnað heiðar- legra skattþegna, meðan ráð- herrar alþýöunnar spóka sig i lúxuskerrum á kostnað rikis- sjóðs? Og hvað skiptir það hinna vinnandi mann, þó að þessir sömu nágrannar aki á bil, eða jafnvel á bilum, á kostnað fyrir- tækisins, reksturinn slðan dreg- inn frá í.bókhaldinu og skattur- inn lækkaður sem því nemur? Þessir góöu grannargætu meira aö segja verið forstjórar I fyrir- tækjum, sem héldu uppi at- vinnu. Jafnvel væri til i dæminu að fyrirtækin fengju rikulega fyrirgreiöslu úr almannasjóö- um, aö launum fyrir vanmátt- uga, en heiöarlega tilraun til þess aö veita alþýöunni okkar vinnu. Nei, þetta gengur ekki Ljóst er, að þær lágmarks- kröfur verður aö gera til ráð- herraefna, að þau hafi efni á þvi að eiga sæmúega biltik til aö komast á milli staða, þyki á annað borð nauðsynlegt að þau séu akandi, og eigi 1 þokkabót fyrir bensíni. Utanrikisráðherr- ann ekur á gamalli amerfekri beyglu og ryðið sést langar leið- ir. Viðskiptaráðherrann á hallærisdós austan úr auðnum Siberíu, svonefndan Freðmýra- bensa. sjávarútvegsráðherrann á gömlum og slitnum Volvo og siðast þegar ég vissí' tii ók dómsmálaráðherrann á jeppa- tötri, sem gekk fyrir grænum baunum. öllum ætti að vera ljóst, aö betra er heima setið en á staö ekið á soddan tryllitækj- um. Það yröi friö fylkingin á flugvellinum I næstu kónga- heimsókn, eða hitt þó heldur. Eða er þetta bara tákn alþýðu- veldisins á tslandi? Sú spurning hlýtur að vakna, hvers konar ábyrgðarleysi þaö er af hálfu stjórnmálaflokkanna að tefla fram fólki sem ekki er betur bilað en raun ber vitni. Þó held ég maöur getí huggað sig við það, að ef rikisstjórn al- þýðunnar lafir fram á vorið, ég tala nú ekki um út kjörtimabil- iö, ætti ráöherrunum aö hafa tekist að öngla saman upp I and- viröi þó ekki væri nema nýs Wartburgs og þá ætti þetta leið- indamál að vera úr sögunni. Takist þeim það ekki, þá eru auövitaðtilhundraölausnir telji menn þaö fyrir neöan viröingu alþýðuráðherra að ferðast á tveimur jafnfljótum. Alinn upp í ráðherrabil Ég þekkti einu sinni strák, sem var alinn upp i risastórum ráðherrabil, sem rekinn var af rikinu. Honum var ekið i skól- ann þegar við hinir máttum ganga, af þvi viö þoröum ekki á hjólunum i skólann af þvi lukt- inni og dinamónum var alltaf stolið meðan við vorum inni, og svo var honum ekið á ráðherra- bflnum dýra út i mjólkurbúð, þegar við hinir máttum hjóla. Ég er á þvi núna, aö þótt við öfunduðum hannstundum eink- um þegar kalt var i veðri, þá hafi þetta ekki veriö neitt sældarlif hjá honum og þaö hafi ekki haft góð áhrf á hann að njóta þannig yls og öryggis I plussklæddum bilsófunum á kostnað alþýöunnar, meðan öreigapiltar stæltust úti i gadd- inum f siðu föðurlandi. Enda barðist hann á þingi gegn bila- sukkinu i rikistjórninni. Nei, hákarl ráðherrarnir verða aö eiga bil- ana sjálfir og reka þa éjálfir, þó ekki væri nema vegna barn- anna. Hins vegar væri til í dæm- inu að hjálpa upp á sakirnar, svona til aö þeir þurfi ekki aö eyða dýrmætum tima frá brennandi alvörumálum augnarbliksins og eilifðarinnar með þvi aö berjast i bönkum. Vaxtaaukalán Alþýðustjórnin okkar veitti á fjárlögum 75 milljónum króna, að mig minnir, af skattpenigum okkar alþýðumanna, til þess aö herða skattaeftirlit. Sérfræöing- ar segja, aö aukið skatteftirlit I núverandi skattakerfi okkar, leiN ekkert af sér annað en það, að ólin verði hert enn betur að hálsi hins óbreytta alþýðu- manns, sem raunar skortir ekki viljann til skattsvika, heldur að- stöðuna. Alþýöufylkingin okkar á Alþingi ætti þvi að beita sér fyrir þvi að þessum aurum yröi fremur varið til bilakaupalána handa ráðherrunum með vaxta- aukakjörum. Það kæmi sér bet- ur fyrir okkur almúgamenn. Sú lausn á samgöngumálum ráðherranna er að sjálfsögðu til, að Höskuldur fjári úthluti þeim strætisvagnamiöum um leið og hann borgar þeim út við mánaöamót. Það aftur á móti gæti kallað á rikisúlpur til að skýla sér i norðangarranum á biðstöðvunum. Ennfremur væri unnt að flokka það undir ábyrgðarleysi að láta ráðherr- ana dinglast i almennigsvögn- um með rikisleyndarmálin i vösunum. Strangar lánareglur Mér þykja öll rök hniga a þvi, aðrikissjóður eigiaðhjálpa fátækum alþýðuráðherrum til þess að komast yfir sæmilegar bfltikur með eölilegri lánafyrir- greiðslu, svo þeir að minnsta kosti verði sambærilegir við forstjóra gjaldþrota fiskiðju- veraogaðra öreiga einkafram- taksins hvað farartæki snertir. Annað finnst mér ekki sæma is- lenska lýðveldinu. En mér finnst lika, að það ætti að setja strangar lánareglur og miða þær til dæmis við það, hvernig viðkomandi ráðherra hafi tekist að efna kosningaloforð sin. Þannig þekktust svika- hrapprnir langar leiðir á Trabantinum sinum, meðan hinir sem staðið heföu viö gefin loforð, gætu veifað brosandi til alþýðunnar sinnar úr Range Rovernum. En loftpressuna strax En þó að brýnt sé, að fundin verði lausn á bilavandræöum rikisstjórnarinnar, eru þó önnur tækjakaup, sem verða að hafa algeran forgang og geta ráðherrarnir min vegna gengið allra sinna ferða þar til þau kaup hafa verið gerð. Þaö verö- ur nú þegar að ráöast I kaup á öflugri loftpressu handa rikis- tjórninni til afnota í leitinni aö neðanjarðarhagkerfinu. Og hver veit nema þegar sú leit loksins ber árangur, verði allar bilaraunir úr sögunni, jaf nt okk- ar alþýðumanna með skiptimið- ann og ráðherranna á Freð- mýrabensunum og ryðguöum baunadósunum.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.