Lögfræðingur - 01.01.1897, Blaðsíða 91
Handbók fvrir lireppsncfndaruienix
sem oddviti eða nefndarmenn færu út ur lireppnum, en
fyrir ferðir innan hrepps ættu þeir ekkert, en að takmarka
þetta þannig, virðist vera alveg ástæðulaust, því það á
sjer engan stað í orðunum, heldur jafnvel þvert á móti,
enda eðlilega engin ástæða til að binda borgunina við
ferðir utan hrepps. Nefndarmenn eiga þvf borgun fyrir öli
sjerstök ferðalög eða sendiferðir, í þarfir hreppsins,
sjá einnig Stj. tið. 1886 B. bls. 112., 4., en sýslunefnd~
in úrskurðar upphæð borgunarinnar, ef til kemur.
VIII.
Störf, sem hvíla á oddvita. Fundarályktanir.
Störf oddvita má í stuttu máli segja að sjeu: Að
hann sje skyldur til að annast um framkvæmd á öllum
þeim ályktunum og gjörðum, sem hreppsnefndin á lögleg-
an hátt hefur samþykkt að fram fara skuli, nema því að
eins, að nefndin liafi falið einhverjum úr nefndinni sjer-
staklega framkvæmd á málinu (11. gr.), og að annastþau
störf, er að lögum hvíla á honum. Oddviti á þannig að
boða til fundar, og skal það gjört með þingboði, eða á
annan hátt, sem tíðkanlegt er í hreppnum t. a. m, með
auglýsingu á hentugum stað, svo sem þingstað, eða ef
verslunarstaður er í hreppnum, þá á þeim stað, þar sem
uppslög og auglýsingar vanalega eru fest upp; oddviti á
að stjórna umræðunum, og sjá um, að ályktanir nefndar-
innar sjeu rjett bókaðar og annað er fram fer á fundinum,
en eigi er hann beinlínis skyldur til að færa bókina sjálf-
ur; liann skal annast um brjefagjörð, og að reikningar
sjeu samdir; þar sem sjerstakur gjaldkeri er, virðist það
rjettast, að hann og oddviti í sameiningu semji jafnaðar-