Smárit Handíðaskólans - 01.08.1943, Blaðsíða 12

Smárit Handíðaskólans - 01.08.1943, Blaðsíða 12
10 fóru í fyrrasumar. Lesið svo stílana fyrir þeim og lofiö þeim að dæma. Ég get fullvissað ykkur um þaö, að lítið muni fara fyrir hlutlægninni í dómunum þeim, enda ekki von til þess. — Metið svo stílana sjálf og dæmið nú rétt og af fullkominni hlutlægni (málfar, setningaskipun, stafsetn- ingu, skýrleik hugsunar og athugana o. s. frv.). Ég fyrir mitt leyti, öfunda engan af því starfi. -— Þetta, sem nú hefir verið sagt, gefur bendingu um margt, sem til greina kemur við skipun barnaskólans og skóla- starfsins. Fyrst það, að hneigðir barnanna vinna með í verklega náminu, en ekki á móti því, og veit sérhver kennari, hve mikilsvert það er til góös árangurs af náminu. Þá hitt, að börnum veitist margfalt auðveldara að meta réttilega handræn afköst en andleg, en rétt, hlutlægt mat á getu sína er vænlegra til þroska en flest annað. Hvað á þá að kenna? Vilji skólinn vera trúr köllun sinni sem menningarstofn- un, verður hann framar öllu öðru að veita börnunum hinn almenna undirbúning að framtíðarstörfum þeirra, hver sem þau kunna að verða, en undirbúningur þessi er fólginn í eflingu hins siðræna starfsþroska. En jafnhliða þessu verður hann líka að veita þeim stað- góða undirstöðu í þeim námsgreinum, sem nauðsynlegastar eru til öflunar mennta og eru þannig lyklar að þekkingu samtímans, en þær eru fyrst og fremst móðurmálið og reikningur. Nú er svo um þessar greinar, að mestu veldur hver á heldur. Það er unnt að kenna þær svo, að hinum tvíþætta tilgangi skólastarfsins, hinum siðræna og vit- ræna, verði fullnægt. En vandalaust er það ekki. Verður mikils að krefjast af þeim kennara, sem þeim árangri vill ná. Hæfileikar barnanna og hneigðir ráða eigi minnstu I

x

Smárit Handíðaskólans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Smárit Handíðaskólans
https://timarit.is/publication/1881

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.