Ólavsökan


Ólavsökan - 01.07.1943, Blaðsíða 10

Ólavsökan - 01.07.1943, Blaðsíða 10
að þessar fallegu myndir gætu alls ekki verið frá Þórshöfn, því að svo yndislegir staðir væru þar ekki til. Sannleikurinn er samt sá, að í Þórshöfn og nágrenni hennar eru margir unaðslegir blettir, trjágarðar með stórum trjám og fögrum blóm- um, að ógleymdum skemmtigarðinum, með öll- um sínum mikla gróðri og fögru tjörnum með syndandi svönum. Þekking okkar íslendinga á Færeyjum er lítil. En allir þeir, sem nokkuð dvelja þar, vita hvað unaðslegt er þar á sumrin. Lögreglustjór- inn, sem ég bjó hjá og var danskur maður, sagði við mig, að Færeyjar væri yndislegasti staður- inn á jörðunni. Hann kunni sannarlega að meta fegurð eyjanna. íslendingar ættu, að ófriðnum loknum, að fara í sumarleyfum sínum til Færeyja og kynn- ast landi og þjóð. Það mundi enginn sjá eftir slíku. Eg hefi nú getið um eyjarnar sjálfar, en hvernig er með sálina — fólkið, sem þarna býr? Þjóðin er eins og eyjarnar á fögrum sum- ardegi, brosandi, vingjarnleg og í fáum orðum sagt elskulegt fólk. Og gagnvart okkur íslend- ingum var eins og Færeyingar ættu í okkur hvert bein. Eg vil svo enda þessar fáu línur með einu er- indi færeyska skáldsins Fr. Petersen og tek undir hvert orð með honum: „Og tá ið veðrið tað er gott um summardag, og havið er so silvurblátt um sólarlag, og spegilklárt og deyðastilt og himmalreint — tað er ein sjón, eg veit tú vilt væl gloyma seint . .. . “ Erlendur Pétursson forstjóri.. Knattspyrnuliö ár K. R. og Tvör- oyra boltfelag (T. II.). — íþróttirn- ar tengja frœndþjóöirnar saman.. 10 ÓLAVS0KAN

x

Ólavsökan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ólavsökan
https://timarit.is/publication/1879

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.