Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Page 8

Afmælisblað Kára: 1922-1947 - 26.05.1948, Page 8
ÓSinn S. Geirdal: Knattspymufélagid Kári 25 ára 26. maí 1922 söfnuðust nokkrir drengir á Akra- nesi saman í kálgarðinum við Árnabæ, ög hófust umræður um hvort ekki mundi mögulegt að stofna knattspyrnufélag; þá var ekkert formlega stofnað knattspyrnufélag á Akranesi. Var mikill áhugi fyrir málinu og svo fór að samþykkt var með öll- um greiddum atkvæðum að stofna félagið, hinir eiginlegu stofnendur urðu þó ekki fleiri en 10 og skulu þeir nú taldir upp og aldur þeirra: Albínus Guðmundsson, 13 áru. Bjarni I. Bjarnason, 13 ára. Gísli Bjarnason, 11 ára. Gísli Sigurðsson, 12 ára. Guðmundur Bjarnason, 13 ára. Guðmundur Sveinbjörnsson, 11 ára. Gústaf Ásbjörnsson, 14 ára. Sighvatur Bjarnason, 10 ára. Sigurður Helgason, 12 ára. Sigurjón Sigurðsson, 12 ára. Ekki var hinu nýstofnaða félagi valið nafn að þessu sinni, nú vantaði það sem við þurfti til að þetta gæti heitið knattspyrnufélag, sem sagt knött- inn, en nú voru góð ráð dýr, því knötturinn kostaði 10 krónur, og það var enginn smápeningur i þá daga, og varð því að ráði að hver félagsmaður legði fram eina krónu en flestir áttu mjög bágt með svo stóra upphæð, þó hafðist þetta með ötulli fram- göngu félaga i fiskvinnu og fleiru. Svo nú var knötturinn fenginn, en þá var enginn völlurinn, en Langisandur rennisléttur og víðáttumikill, sér- staklega um fjöru, kom nú í góðar þarfir, var nú haldið þangað, en áður en æfingin byrjaði varð að AKRANESMEISTARAR 1929 Efsía röS frá vinstri: Jón Steins- son, Bjarni Bjarnason, Ólafur Jónsson, Halldór GuSmundsson, Gústaf Ásbjörnsson. MiSröS frá vinstri: Hjörtur Sig- urSsson, Valtýr Benediktsson, SigurSur Þorvaldsson. Fremsta röS frá vinstri: Hannes GuSmundsson, Magnús Magnús- son, Hannes Ölafsson. 6 AFMÆLIBLAÐ KÁRA

x

Afmælisblað Kára: 1922-1947

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afmælisblað Kára: 1922-1947
https://timarit.is/publication/1046

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.