Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1888, Page 12

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1888, Page 12
12 pannig valið, að börn eigi hægt með að skilja það og gjöra grein fyrir pví; er því rjettast valið til lesæfing- ar eitthvað pess efnis, sem barnið pekkir áður. Ef barnið er vanið á það, að gjöra grein fyrir efni þess, sem það les, þá lagast lesturinn mikið af sjálfum sjer, því að manni verður ósjálfrátt að leggja rjetta áherzlu á og skipta rjett hljóðfalli á setningar, sem maður skilur. Kennandinn verður og að benda barninu á les- merkin, og sýna því, hversu mikla hjálp það getur haft af þeim, einkum þar sem efni er ekki auðskilið; þýð- ingu lesmerkjanna skilja börn ef til vill bezt af því, ef þeim er sýnt, hvernig setningarnar geta orðið meining- arlausar, eða fengið allt aðra meiningu, ef lesmerkin eru sett öðruvísi en þau eiga að standa; það þarf að benda þeim á, hverja þýðingu hvert lesinerki út af fyrir sig hefur, að punktur (.) aðgreinir tvær setningar, sem geta falið sjálfstæða hugsun; að hver slík setning greinist aptur sundur í smærri parta með öðrum merkjum, kommu (,) eða semíkommu (;) o. s. frv. f>ó að það taki nokkurn tíma að kenna börnum þetta og láta þau gjöra grein fyrir því jafnóðum og þau lesa, er það vel tilvinnandi, því að það er þeim öflug stoð til þess að nema áheyrilegan og skilmerkilegau lestur. Framhuröur í lestri verður mjög að fara eptir því, hvers efnis það er, sem lesið er; þannig má ekki lesa með sama framburði skemmtisögu og búslestur. En urn fram allt verður að kosta kapps um, að börn lesi með náttúrlegum framburði og með þeim málrómi, sem þeim er lagið. J>að er því miður mjög almennt, að börn taki upp eitthvert ljótt eða óþægilegt lestrarlag, optast nátt- úrlega eptir þeim, sem kenna þeim, eða sein þau heyra lesa. J>annig er það allopt, að börn, sem hafa fallegan málróm, og tala laglega mælt mál, fara að söngla og

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.