Tímarit lögfræðinga - 01.12.1994, Blaðsíða 6
Arnljótur Bjömsson er prófessor
við lagadeild Háskóla íslands
ARNLJÓTUR BJÖRNSSON:
BÓTAÁBYRGÐ HEILBRIGÐISSTÉTTA OG
SJÚKRASTOFNANA
1. INNGANGUR
2. SAKARREGLAN
3. VINNUVEITANDAÁBYRGÐ
4. PERSÓNULEG ÁBYRGÐ STARFSMANNA
5. SÖNNUN
6. ÁBYRGÐ VEGNA BILUNAR EÐA GALLA
7. ÁBYRGÐ VEGNA HÆTTULEGRA EIGINLEIKA LYFJA
8. ÁBYRGÐARTRYGGING
9. SKAÐABÓTARÉTTUR OG ÖNNUR BÓTAÚRRÆÐI
10. BÓTAFJÁRHÆÐ
11. SJÚKLINGATRYGGING
1. INNGANGUR
Umræðuefni á þessu málþingi er bótaábyrgð heilbrigðisstétta og sjúkrastofn-
ana. I minn hlut kemur að gera grein fyrir þeim meginreglum, sem gilda hér á
landi um þetta efni. Til einföldunar mun hér fyrst í stað að mestu talað um
ábyrgð lækna, en fremur sjaldgæft er að bótakröfur séu gerðar á hendur mönn-
um í öðrum heilbrigðisstéttum vegna mistaka í starfi. Mikið af því, sem hér
verður sagt, á einnig við um ábyrgð annarra heilbrigðisstétta. Að sjálfsögðu
verður þó að hafa í huga, að starfssvið og verkefni heilbrigðisstétta er mismun-
andi og er miðað við það, þegar metið er hvort bótaskylda er fyrir hendi. Stofn-
anir og félög, sem hafa heilbrigðisstéttir í þjónustu sinni, bera bótaábyrgð eftir
reglunni um vinnuveitandaábyrgð, sem síðar verður vikið að.
230