Skírnir - 01.01.1931, Page 195
Skirnir]
Eirikur i Bót og Eiríkur á Rangá.
189
kona Eiríks í Bót hefði verið systir Guttorms á Brú eða
dóttir hans og Guttormur verið 3. eða 4. maður frá Þor-
steini Jökli á Brú, en sá þó, að það mundi vanta lið eða
liði á milli. Taldi hann að móðir Guttorms hefði heitið
Kristin og móðir hennar Guðrún dóttir Þorsteins Jökuls.
En á ættatölublöðum frá því um 1800 (Safn Jóns Sigurðs-
sonar 390, 8°) er svo talið, að móðir Kristínar hafi verið
Guðrún Þorsteinsdóttir, Jónssonar, Þorsteinssonar Jökuls.
Hvernig sem þetta heiir verið, þá er það víst, að Gutt-
ormur á Brú var kominn frá Þorsteini Jökli og ekki langt
frá honum, því að Þorsteinn Jökull var uppi um pláguna
seinni 1494—1495 og fram yfir 1500. í ættartölublöðum,
sem lengi voru á gangi á Jökulsdal meðal afkomenda Þor-
steins, var hann talinn sonur Magnúsar sýslumanns i Skriðu
í Reykjadal, Þorkelssonar prests í Laufási Guðbjartssonar.
Espólm rekur nokkuð ætt frá Guttormi á Brú og Páli bróð-
ur hans (föður Oddnýjar, móður Árna ríka á Arnheiðar-
stöðum). Ekki nefnir hann neina systur þeirra. Hefir hann
að líkindum fengið ætt þessa frá einhverjum fróðum manni
eystra. Foreldrar þeirra bræðra voru Jón Þorkelsson og
Kristín og bjuggu í Görðum í Fljótsdal; var það lítið en
farsælt býli utan við Valþjófsstað og var lengi byggt, en
síðast lagt niður og undir Valþjófsstao. Guttormur var eldri
þeirra bræðra og er fæddur um eða fyrir 1600.
Jón og Kristín, foreldrar Guttorms, hafa því búið i
Görðum um og fyrir 1600. Þá hefir séra Hallvarður Ein-
arsson prófasts í Vallanesi Árnasonar verið prestur á Skriðu-
klaustri, næsta bæ fyrir utan Garða. (Hann var áður prest-
ur á Valþjófsstað 1560—1585.) En á Valþjófsstað var þá
séra Einar Magnússon, sonur Magnúsar á Reykjum í Tungu-
sveit í Skagafirði Björnssonar og Sigríðar dóttur Gríms
lögmanns á Ökrum Jónssonar. Séra Einar var mikilhæfur
prestur og málafylgjumaður. Hann átti Arndísi dóttur séra
Hallvarðs. Séra Einar hefir að líkindum byggt Jóni Þor-
kelssyni Garða eitthvað fyrir 1600. Það er nú líklegt, að
góður kunningsskapur hafi verið milli þessa fólks á Val-
þjófsstað, Görðuin og Skriðuklaustri. Liklegt er það einnig,