Vikan - 17.11.1938, Síða 4

Vikan - 17.11.1938, Síða 4
4 VIKAN Nr. 1, 1938 var unglingur, að svo að segja hver mað- ur, er fékk berklaveiki, var talinn dauða- dæmdur maður, og það með réttu. Nú vit- um við, að það var af því, að veikin þekkt- ist of seint. Eftir að mögulegt var að þekkja veikina á fyrsta stigi, urðu algjör straumhvörf í allri útkomunni. Flestum berklasjúklingum batnar nú, komist þeir nógu snemma á gott sjúkrahús. Svona er og með krabbameinin. Fjöldi slíkra sjúk- linga fá öruggan og góðan bata, sé nógu snemma aðgjört. Og þá er fyrsta skilyrð- ið, að sjúklingurinn komi nógu snemma til læknis, er þekkir byrjunareinkennin, og fái svo hina nauðsynlegu læknishjálp eins fljótt og unnt er. Stórþjóðirnar verja tugum millj. króna til þess að kenna fólkinu að vera á varð- bergi gegn þessari ægilegu veiki. Það er varið milljónum til sjúkrahúsa og heilsu- hæla fyrir þetta fólk og til geislalækning- anna er varið stórfé. I flestu af þessu stöndum við öðrum þjóðum að baki. Krabbamein getur byrjað í velflestum líffærum líkamans. Hygg ég að maga og garnakrabbi sé hér einna algengastur. Brjósta og húðkrabbi er og algengur. Þá er krabbi í getnaðarfærum kvenna og tals- vert algengur. Því miður má fullyrða, að byrjunareinkenni krabbameins séu venju- lega óglögg. Er því gott ráð gefið, að benda fólki, sem komið er yfir fertugt á að leita til læknis, fari það að kenna sjúk- dómseinkenna, jafnvel þó óljós séu. Við skulum hugsa okkur að miðaldra maður, sem aldrei fyrr hefir kennt sér meins frá meltingarfærum, fari smám sam- an að missa matarlyst. Honum verður ekki gott af fæðunni, hver sem hún er. Sér- staklega fær hann ógeð á kjötmeti. Ropar og brjóstsviði gjöra vart við sig. Þetta þurfa ekki að vera annað en einkenni magabólgu eða þvíumlíkt. En það geta líka verið fyrstu einkenni krabbameins í maga. Enn flóknara verður þetta, ef sjúklingur hefir t. d. í mörg ár gengið með magasár. Eins og kunnugt er, getur krabbamein myndast í gömlu magasári. Slíkir sjúkling- ar eiga iðuglega að láta rannsaka sig, sér- staklega ef þeim finnst að heilsunni hnigni. Það eina, sem hægt er að gjöra fyrir sjúk- ling með magakrabba, er að ráða til upp- skurðar eins fljótt og unnt er, því geisla- lækningar verka lítið-til bóta. Góðir skurð- læknar ná iðuglega ágætum árangri, t. d. Myjobræður í Ameríku. Eftir 3 ár lifa 40% af þeim, sem þeir hafa skorið upp við magakrabba. Brjóstakrabbi hjá konum er og algeng- ur. Því ríður á að benda á fyrstu sjúk- dómseinkenni við þann sjúkdóm, þar eð tekst að bæta fjölda slíkra tilfella sé að- eins nógu fljótt komið til læknis. Við vitum ekki, frekar en með aðrar tegundir veik- innar, hver sú raunverulega orsök kann að vera. En hinsvegar er talið að bólguhnúðar í brjóstum kvenna, sem er nokkuð tíður kvilli, séu hættulegir. Ætti því hver kona, sem finnur ber eða hnút í brjósti, að leita læknis. Talið er og að högg á brjóst geti orsakað krabbamyndun. Krabbi í brjósti byrjar sem smá hnúður, venjulega utan til í brjóstinu. Smástækkar svo þessi hnúður, þar til eitlarnir undir holhendinni þeim megin taka að bólgna. Þá hefir hið upp- runalega mein sýkt út frá sér. Annars er brjóstakrabba skipt í 3 stig, eftir gangi veikinnar. Á fyrsta stigi hefir meínið hvorki vaxið við húð né vöðva, og eitlar finnast undir holhendinni. Á þessu stigi veikinnar eru batahorfurnar ekki nálægt því eins góðar og á fyrra stiginu. Á þriðja stigi, þá hefir meinið vaxið, bæði við húð- ina og eins við vöðvana, er undir liggja. Auk þess ber á stækkuðum eitlum ofan við viðbeinið. Á þessu síðasta stigi er lítið hægt að gjöra til hjálpar sjúklingnum. Lækning á brjóstakrabba er aðallega fólgin í uppskurði, — meinið og eitlar undir holhendinni oftast numdir burtu, og síðan notaðar geislalækningar. Krabbamein í húð og slímhúðum er ekki óalgengur. Sérstaklega ber að nefna í tungu og vör. Krabbi í vör myndast venju- lega sem smá ber utan til í neðri vör. Dettur síðar sár á vörina, er smá dýpkar. Þaðan berst svo meinið í hálseitlana. Þessi tegund læknast venjulega vel, með því að nema burtu meinið, og jafnframt háls- eitla, ef nokkrir eru. Röntgengeislar verka ágætlega á eftir. Krabbi í tungu getur einnig myndast. Talið að erting frá skemmdum tönnum sé um að kenna. Sé ekki aðgert er þessi sjúkdómur hræðilegur. Krabbamein í getnaðarfærum kvenna er og algengur. Kemur hann fyrir bæði í leg- hálsi, í sjálfu leginu, og í eggjastokkun- um, er liggja inn í kviðarholinu. Algeng- ast er að konur, sem hættar eru að hafa á klæðum, fái krabba í þessi líffæri. Byrj- unareinkennin eru venjulega þau, að eldri konur fá aftur blæðingar eftir að þær hafa haft hvíld með mánaðarlegu blæðingarn- ar í skemmri eða lengri tíma. Það er afar áríðandi að konur, er verða slíkra blæð- inga varar, láti læknir skoða sig hið fyrsta. Ég hefi nú lauslega drepið á helztu ein- kenni nokkurra algengustu krabbameins- tegunda. En í sambandi við þetta mætti spyrja: Er hægt að koma í veg fyrir að krabbamein myndist? Er hægt að verja sig fyrir því? Er örugt að meinið þekkist þó sjúklingur komi nógu snemma? Það er því miður iðuglega læknunum sjálfum að kenna, hversu seint sjúkdómurinn þekkist. Erlendis eru haldin námskeið fyrir lækna, til að temja leikni þeirra í því að gjörá hinar ýmsu nauðsynlegu rannsóknir. Annað atriði er og afar þýðingarmikið: að vekja með fræðslu eftirtekt fólksins á byrjunar- einkennum veikinnar eftir því, sem því verður við komið. Einnig er víst, að ýmis- legt í lifnaðarháttum fólks stuðlar að því að slík mein myndist. T. d. veit maður með vissu, að ýmsar iðnaðargreinir í nýtízku- iðnaði eru hættulegar hvað þetta snertir. Tjöruiðnaður, málm- og litariðnaður eru taldir vera sérstaklega viðsjárverðir. Eins veit maður, að tóbak og alkohol geta og framkallað illkynjuð mein. Eins og fyrr er getið, var sú skoðun ríkjandi fyrir nokkrum árum, að hver, sem fengi krabba, væri dauðadæmdur maður. Álíka skoðun og var á berklaveikinni fyrir nokkrum árum. En nú er vitað, að mikill meirihluti berklasjúklinga ná góðum bata fyrir atbeina vel menntaðra lækna, ásamt góðum sjúkrahúsum. Síðustu árin hefir líkt skeð með krabbameinin. Skurðlæknistækninni hefir fleygt ótrú- lega fram og hinar ungu geislalækningar hafa beinlínis unnið kraftaverk á þessu sviði, og verður ekki gizkað á, hvers má vænta með þeirra hjálp í framtíðinni. Það er ekki langt síðan Curie-hjónin frönsku, með óendanlegri þrautseigju fundu radíum-efnið. Með því hefir tekizt að lækna mein, er jafnvel skurðhnífurinn komst ekki að. Þá er heldur ekki ýkja- langt síðan þýzki læknirinn Röntgen fann geisla þá, er við hann eru kenndir. En með þeirra hjálp hafa einnig verið unnin kraftaverk í baráttunni við krabbameinin. En framfarirnar eru geysimiklar á þess- um sviðum einmitt nú. Frá Ameríku ber- ast nú þau tíðindi, að farið sé að lækna illkynjuð mein með 10,000000 volta spennu, í stað 2—3000 volta spennu, er áður var venja að nota. Þá hefir og ýmislegt annað verið reynt til lækninga krabbameinssjúklingum. Sem kunnugt er framleiðir líkami vor efni, sem á erlendu máli eru nefnd hormonar. Efni þessi myndast í hinum svonefndu innri kirtlum vorum. Hin síðari árin er farið að nota efni þessi til lækninga við ýmsum sjúkdómum. Einn af þekktustu krabba- meinasérfræðingum heimsins, prófessor Blumenthal í Berlín, hefir gjört stórmerk- ar lækningatilraunir með safa slíkra kirtla til lækninga krabbameina. Vöktu tilraunir hans á læknaþinginu í Briissel í fyrra mikla eftirtekt. Ýms lyf hafa og verið reynd önnur, t. d. slöngueitur, o. fl. En svo má ekki gleyma því, sem ef til vill er þýðingarmest í lækn- ingu krabbameina yfirleitt: sjálfsvörnum líkamans. Margir halda því fram, að f jöldi manna fái oftar en einu sinni krabbamein, er lítil sjúkdómseinkenni gefi, og jafn hljóðlega lækni líkaminn sjálfur meinið. Við sjáum ,,hermenn“ líkamans, hvítu blóðkornin, hrúgast umhverfis meinið, og ráðast að því með allri orku. Sú skoðun hefir meir og meir rutt sér til rúms á síðari árum, að þjóðfélaginu beri skylda til að hlú sem bezt að því ólánssama fólki, er veikist af krabbameini. Það sé ekki nóg að nema meinið burtu, og sleppa svo sjúklingnum í umhverfi, er niðurbrjóti það, sem búið var vel að byggja upp. Það er vafalaust rétt, að slík- ir sjúklingar þurfa í lengri tíma að dvelja á sérstökum krabbameinasjúkrahúsum, þar sem allt er gjört til þess að styrkja líkamann í baráttunni við hinn hræðilega sjúkdóm. Er ekki mál til komið, að kynslóð sú, er land þetta byggir, hefjist nú handa í baráttunni gegn krabbameininu ?

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.