Veðrið - 01.04.1956, Síða 17

Veðrið - 01.04.1956, Síða 17
Fyrsta mynd sýnir í stórum dráttum hafstraumana umliverfis ísland. Örv- arnar sýna straumstefnuna, en feitu linurnar straummótin. ÞrAlát norðaustan átt virðist skerpa straumamótin á Halamiðunum og oft myndast þá misjafnlega breitt illviðrabelti á þessum slóðum og samfara því hafrót í röstinni milli straum- anna. Skilyrðin fyrir aftakaveðri á Halamiðum eru þau, að yfir Grænlandi sé nærri kyrrstætt háþrýstisvæði, en djúp lægð einhversstaðar í námunda við ísland. Önnur mynd er ekki sýnishorn af neinu sérstöku veðurkorti, heldur má kalla hana samnefnara allra þeirra veðurkorta, sem sýna, þegar austan og sfðan norð- austan stórviðri geisa á Halamiðum. A norður-hveli jarðar blæs vindurinn and- sælis kringum lægðarmiðjuna, en réttsælis kringum hæðarmiðjuna. Frá norður- heimsskautinu blæs því kaldur vindur, og frostið er venjulega 10—20 syig. Þetta kalda loft blandast svo saman við hlýrra og suðrænna loft og hlýnar þannig, að frostið verður um 3—7 stig á Halamiðum. Þegar svo lægðin hreyf- ist norðaustur yfir ísland eða fyrir sunnan og austan land, herðir á norðaustan- áttinni og hitaskilin hreyfast norður og norðvestur og hafna að lokum yfir 17

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.