Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 49

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 49
BREIDD SVÆÐIS SEM VERÐUR FYRIR TOGSTREITU (u) 3. mynd. Lóðrétt ílöng kvikuþró, albráðin efst. Vídd þess beltis sem verður fyrir tog- streitu er u, hálfur rekhraðinn er v/2. Youngs stuðull (E) vex með dýpi og er ellefufalt hærri við botn skorpu en við topp, en allt að tífalt hærri við topp grunnstæðs hólfs (ekki sýnt) en við topp þróar. Gangar sem ekki ná yfirborði eru hrein innskot, hinir eru hraungjafar. Partially molten (with a totally molten upper part) magma reservoir (þró) of high aspect ratio. Width of zone that undergoes tensile strain as a result ofdivergent plate movements is u, half spreading rate is v/2. Young’s modulus (E) increases with depth and may be eleven times higher at the bottom of the crust than at its surface. The 4 dikes that do not reach to the surface are pure intrusions, i.e., non-feeders. þess svæðis umhverfis þróna sem verður fyrir togstreitu við plötuhnik (3. mynd). Stuðull togspennumögnun- ar er hér hlutfall togspennu næst þró (eða hólfi) og þeirrar (afstæðu) tog- spennu sem byggist upp á plötuskilun- um. Þar gildir að því ílengri lóðrétt sem þró er þeim mun hærri er þessi stuðull og því meiri verður mögnun togspennunnar næst þrónni. Jafna (2) sýnir að tíðni gangainn- skota upp úr þró er, að öðru jöfnu, meiri þar sem er hár Youngs stuðull, mikill rekhraði, eða mikil mögnun togspennu. Innskotatíðni er hins veg- ar minni þar sem togstyrkur þaks er hár eða þar sem það svæði sem verður fyrir togstreitu er óvenju breitt. INNSKOTATÍÐNI HÓLFA Með innskotatíðni hólfs er hér átt við tíðni kvikuhlaupa úr hólfi, og skiptir þá engu hvort kvikan í tilteknu hlaupi storknar öll neðanjarðar sem gangur eða skágangur eða nær að hluta til yfirborðs í eldgosi. Lítum á einfaldaða mynd af sambandi kviku- þróar og kvikuhólfs (2. mynd). ímyndum okkur fyrst að innskotatíðni hólfs sé óháð innskotatíðni þróar og 43

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.