Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1989, Síða 35

Náttúrufræðingurinn - 1989, Síða 35
krrr lands (Myers 1980). Fólksfjöldinn er búinn að sprengja af sér hið hefð- bundna nýtingarmynstur. Skógurinnn fær ekki tíma til að jafna sig á milli þess að hann er brenndur og æ stærri flæmi eru tekin til fastrar búsetu. Eng- ar áreiðanlega tölur eru til um hve stór hluti þess lands sem flökkubænd- ur ryðja, nær að vaxa upp aftur sem skógur. Myers (1980) telur að þeir ryðji a. m. k. 100.000 km2 en þó lík- lega nær 200.000 km2 á ári. Viður er oftast eina eldsneyti íbúa landanna við miðbaug og hús nær undantekningalaust byggð úr timbri. I sumum löndum er stærstum hluta skóganna annaðhvort brennt eða þeir notaðir í byggingar. Lönd Mið-Afríku eru t.d. ekki sjálfum sér næg um timb- ur. Stærstur hluti þess timburs sem jarðarbúar nota kemur úr regnskóg- um hitabeltis. Trén eru fremur hæg- vaxta en viðurinn er þéttur og harður og úr þeim er unninn dýrasti harðvið- urinn, s. s. tekk (Tectona grandis (Verbanaceae) frá skógum Suðaustur- Asíu), palísander eða rósaviður (.Jacaranda tegundir (Bignoniaceae) frá Suður-Ameríku) og ótal fleiri kjörviðir. Langmikilvægastar eru þó, eins og áður sagði, tegundir af ættinni Dipterocarpaceae (t.d. Dipterocarp- us, Hopea, Shorea og Vatica). Suðaustur-Asía er langstærsti út- flytjandi heimsins af harðviði. Nálægt 3/4 af öllum hitabeltisharðviði kemur þaðan (Myers 1980), - og fer reyndar mestur hluti hans til Japans en þangað er keypt ótrúlegt magn af viði, enda eru Japanir búnir að friða sína skóga. Harðviðurinn er notaður í byggingar af mörgu tagi og í húsgögn en úr hluta hans er þó unninn pappír. Sökum þess hve trén vaxa hægt, freistast margir til þess að planta hraðvaxta tegundum til að fá fyrr af þeim arð, jafnvel þótt viðurinn sé ekki eins verðmætur og harðviðurinn úr upprunalegu skógun- um. Stór svæði í Amason og Afríku eru rudd til ræktunar slíkra nytja- skóga, oft barrskóga, þar sem aðeins er plantað einni tegund. Árið 1967 keypti t.d. bandarískur iðnjöfur 16.000 km2 lands í Amason og hóf að ryðja þar regnskóg til að planta viði til fram- leiðslu á trjákvoðu. Ófrjór jarðvegurinn reyndist ekki bera uppi ræktunina og svæðið var selt 1981 (Jordan 1986). í Suður-Ameríku hófst eyðing regn- skóga miklu seinna en í hitabelti gamla heimsins. Skógarnir voru lengi lítt kannaðir og þá byggðu litlir og dreifðir flokkar indíána. Eyðing Ama- sonskóganna hefur hins vegar verið hröð á síðustu áratugum. Fyrst og fremst er verið að ryðja skóg til að skapa beitilönd fyrir nautgripi. Bú- garðarnir eru flestir í eigu Vestur- landabúa, einkum Bandaríkjamanna og kjötið er uppistaðan í hamborgara- iðnaðinum hjá hinum stóru skyndi- bitakeðjum í Bandaríkjunum og Evr- ópu. Sem dæmi má nefna að á árun- um 1966 til 1978 var um 80.000 km2 regnskóga í Amason breytt í graslendi fyrir samtals 366 búgarða með alls 6 milljónir gripa (eða um 18.000 gripi að meðaltali á bú skv. Myers 1980). Jarð- vegurinn er hins vegar svo rýr að landið gefur ekki viðunandi uppskeru nema í nokkur ár. Lítill vafi virðist leika á að nautgriparækt með evr- ópskum grastegundum og ræktunar- aðferðum hentar illa bæði loftslagi og jarðvegi Suður-Ameríku. En hversu hröð er eyðingin? Rakir hitabeltisskógar eru að flatarmáli rúmlega helmingur alls skóglendis jarðar (Persson 1974 í Whitmore 1980). Samkvæmt spá Global 2000 skýrslunnar, sem unnin var að beiðni Carters þáverandi forseta Bandaríkj- anna og kom út 1980, má búast við að flatarmál regnskóga muni minnka úr 29

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.