Tíminn - 31.05.1994, Qupperneq 13
Þri&judagur 31. maí 1994
13
Fyrrverandi leiötogi Austur-Þýskalands deyr í útlegö:
Erich Honecker
látinn
Santiago, Reuter
Erich Honecker, fyrrverandi leiö-
togi Austur-Þýskalands, lést á
sunnudag af völdum krabba-
meins, 81 árs að aldri. Líkams-
leifar hans verða brenndar og
fluttar til Þýskalands, þar sem
hann verður jarðsunginn.
Honecker haföi lengi þjáðst af
krabbameini í lifur og flutti til
dóttur sinnar í Chile í janúar
1993, eftir að dómstóll í Þýska-
landi úrskurðaði að hann væri of
lasburða til aö hægt væri að
halda yfir honum réttarhöld.
Ríkisleiðtoginn fyrrverandi var
sakaöur um aö bera ábyrgð á
drápum á fjölda manns, sem
hafði reynt að flýja Austur-
Þýskaland með því að klífa Berl-
ínarmúrinn illræmda.
Eftir fall Berlínarmúrsins flúöi
Honecker til Rússlands, en var
framseldur til Þýskalands vegna
þrýstings frá þýskum stjórnvöld-
um.
Yfirvöld í Chile töldu sig eiga
Honecker skuld að gjalda vegna
hjálpsemi Austur-Þjóðverja við
Chilebúa, sem flúðu ógnir her-
foringjastjórnarinnar á áttunda
og níunda áratugnum. Þau buðu
honum því landvist af mannúð-
arástæðum.
Fjöldi chileskra framámanna
heimsótti Margot, ekkju Honec-
kers, um helgina og var henni
vottuð samúö.
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, sagbi ab Honeckers yrði
minnst vegna þeirra þjáninga
sem stefna hans hefði kallað yfir
fjölda fólks.
Honecker var vib völd frá 1971
til 1989. Hann hafði nýlokið við
endurminningar sínar, þegar
hann lést. Þær verða gefnar út á
næstu mánuðum í Þýskalandi. ■
Fleiri Svíar efins
um Evrópusam-
bandsabíld
Afstaða Svía til abildar ab Evr-
ópusambandinu hefur haldist
nokkuð svipuð undanfama mán-
ubi með smábreytingum samt.
Samkvæmt nýgerðri skoðana-
könnun hefur stuðningur við ab-
ild Svíþjóðar ab sambandinu
minnkað aöeins um leið og þeim
hefur fjölgað sem segjast ekki
hafa gert upp hug sinn í málinu.
Hlutfall þeina sem em andsnún-
ir aðildinni hefur aftur á móti
haldist nánast óbreytt frá því í
febrúar.
Skoðanakönnunin var unnin
fyrir Dagens Nyheder í síöustu
Svíar auka
ríkisstuðning
Á fyrsta starfsári ríkisstjómar
Carls Bildt, forsætisráðherra
Svíþjóðar, árið 1992 jókst ríkis-
stuðningur við iðnfyrirtæki
landsins um 42 prósent. Þetta
var í fyrsta skipti í mörg ár sem
fjárhagslegur stuðningur vib
iðnfyrirtæki jókst milli ára.
Ekkert EFTA-ríkjanna styður
eins rausnarlega vib bakið á eig-
in iðnaði óg Svíar. Þetta kemur
fram í áxsskýrslu EFTA um ríkis-
stuðning aöildarríkjanna. ■
viku og borin saman við sams-
konar kannanir í febrúar og apríl.
Núna sagðist 31 af hundraði
fylgjandi aöild en hlutfallib var
34 af hundraði í apríl. Andstæð-
ingar aðildar vom 42 af hundraði
nú eins og í apríl. Hlutfall þeirra,
sem sögðust óvissir eða ekki ætla
að kjósa, óx úr 24 í 27 af hundr-
aði. ■
Ungverskir sósíalistar
fagna sigri í kosningum
Maðurinn með undarlega höf-
uðbúnaðinn er Gyula Horn, for-
maöur Ungverska sósíalista-
flokksins, en flokkur hans vann
yfirburðarsigur í þingkosning-
um á sunnudag.
Stjómmála- og fréttaskýrendur
telja að kjósendur hafi fyrst og
fremst viljað fá útrás fyrir reiði
sína og vonbrigbi vegna versn-
andi lífskjara á undanfömum
ámm.
Horn var utanríkisráðherra
Ung\'erjalands 1989 þegar Járn-
tjaldið sviptist frá austurhluta
Evrópu. Hann varð heimsfræg-
ur þegar hann í krafti embættis
síns klippti á gaddavírsgirðing-
una á landamæmm Ungverja-
lands og Austurríkis og rauf þar
með einangmn kommúnista-
ríkjanna á táknrænan hátt.
Ári síðar féll stjórn kommún-
ista í Ungverjalandi eftir að hafa
Norðmenn fagna niöur-
stöbu hvalveibirábsins
ráðið lögum og lofum í 40 ár.
Kommúnistaflokkurinn hafði
þá þegar breytt um nafn og
undir merkjum Sósíalista lenti
flokkurinn í fjóröa sæti.
Leiðtogar flokksins hafa ab
undanfömu heitið þjóðinni að
bæta kjör þeirra sem verst hafa
orðið fýrir barðinu á breyttum
stjómarháttum. Niðurstaða
kosninganna sýnir að það hefur
haft sín áhrif.
Sósíalistar fengu 209 þingsæti
af 386, Bandalag frjálsra demó-
krata varð í öðm sæti með 70
þingsæti og Ungverska lýðræð-
isfylkingin, sem farið hefur með
stjóm landsins á síbasta kjör-
tímabili, fékk 37 þingsæti.
í kosningunum á stmnudag
var kjörsókn meiri en fyrir fjór-
um ámm. ■
Óttast viðurkenn-
ingu á S-Jemen
Al-Anad, Reuter
Enn er barist við Al-Anad her-
stöðina norður af borginni Aden
í Suður- Jemen. Stjórnarherinn
frá Norður- Jemen og herlið Suö-
ur-Jemena em í svipaðri stöðu og
undanfama daga.
Stjórn Jemens sem situr í Sanaa
í norðurhluta landsins óttast ab
ríki Sameinuðu þjóðanna hug-
leiði að viðurkenna fullveldi Suð-
ur-Jemens. Erindarekar stjórnar-
innar vinna að því að koma í veg
fyrir að Öryggisráð Sameinuðu
þjóbanna haldi fund um málið.
Alþjóbahvalveiðiráöið (IWC)
samþykkti um helgina stjórn-
unarfýrirkomulag á hvalveiö-
um í ábataskyni (RMP). Norð-
menn telja samþykktina skref
í átt til alþjóðlegrar viður-
kenningar á hefðbundnum
hrefnuveiðum sínum.
Enginn hvalveiðikvóti var
veittur á fundi IWC í Mexíkó
en Norðmenn láta það ekki
tmfla sig. Þeir segjast sann-
færðir um að eigin málstaður
nái fram að ganga.
Meðal þeirra ríkja sem sam-
þykktu nýja stjórnunarfyrir-
komulagið eru Bandaríkin,
Þýskaland, Ástralía og Nýja-
Sjáland; allt ríki sem hafa
hingað til verið eindregið á
móti hvalveiðum í ábataskyni.
Nýja stjómkerfið gengur út á
að leyfðar verði takmarkaðar
veiðar á hvalastofnum sem
ekki em í útrýmingarhættu.
Karsten Klepsvik, umsjónar-
maður með hvalveiðum Norð-
manna, segir ab nýja fyrir-
komulagið geti orðið að raun-
vemleika innan tveggja ára.
Aörir em ekki svo bjartsýnir og
telja að það taki jafnvel heilan
áramg ab fyrstu hvalveiðikvót-
unum verbi úthlutað.
Stjómkerfið byggir á flóknum
útreikningum fjölda atriða
sem hafa áhrif á líf og heilsu
hvala.
Söguleg gögn um hvalveibar
verða notuð sem gmndvöllur
þessara útreikninga.
Viöræður hafnar
Kígalí, Reuter
Foringjar uppreisnarmanna og
fulltrúar stjórnarinnar í Rúanda
hittust í fyrsta skiptið í gær til ab
ræða möguleika á friði í landinu.
Fundurinn var haldinn í stöbvum
erindreka Sameinubu þjóbanna í
höfuðborginni Kígalí. Erindrek-
inn kom til Rúanda í síðustu viku
til að reyna að fá stríðandi fylk-
ingar að samningaborðinu.
Á meöan á fundinum stóð
heyrðist skothríð allt í kringum
borgina en uppreisnarmenn hafa
náð yfirhöndinni á þeim slóbum.
Talið er að um hálf milljón
manns hafi látið í lífib í Rúanda á
þeim tveimur mánuöum sem
liðnir em frá því að borgarastyrj-
öldin braust út. ■