Tíminn - 31.05.1994, Page 12
12
SwwIiíh
Þribjudagur 31. maí 1994
„Róttœk" ar-
aba- og íslams-
ríki styöja
íhaldssamt
Noröur-jemen,
erkiíhaldssamir
olíufurstar Arab-
íu sósíalista Suö-
ur-Jemens
Arið 1990 sameinuöust í
eitt ríki Arabíska lýð-
veldið Jemen (í daglegu
tali Noröur-Jemen) og Lýðræð-
islega alþýðulýðveldið Jemen
(í daglegu tali Suður-Jemen).
En sú sameining var alltaf
meiri í orði en á borði, t.d.
voru herir ríkjanna aldrei sam-
einaðir. Og nú er stríð skollið á
milli Norður- og Suður-Jemens
og það síðarnefnda hefur lýst
sig sjálfstætt undir nafninu
Lýöræðislega lýðveldið Jemen.
Þetta hefur sem sé farið mjög
á sama veg og með aðrar sam-
einingartilraunir arabaríkja,
sem talsvert hefur verið um á
síðari hluta aldarinnar. Gadd-
afi í Líbýu er t.d. búinn aö
sameinast flestum ef ekki öll-
um grönnum sínum.
Fyrrverandi breskar herbúöir í Aden: evrópsk áhriferu þar drjúgum meiri en í Norbur-Jemen.
Jemen aftur tvö ríki
íslamskir marxistar
í kalda stríðinu var vani á
Vesturlöndum að skipta araba-
ríkjum í „hófsöm" ríki og „rót-
tæk", „harðlínusinnuö" eða
„öfgasinnuð". Þau fyrmefndu
voru þau sem töldust fremur
hagstæð Vesturlöndum, hin
síðarnefndu þau sem hölluð-
ust eitthvað að Sovétríkjunum
og höfðu stjómir sem kallaðar
vom vinstrisinnaðar eða jafn-
vel sósíalískar. Enn sjást vest-
rænir fjölmiðlar skipta araba-
ríkjum (og nú gjaman íslams-
ríkjum yfirleitt) í „íhaldssöm"
og „hófsöm" ríki annarsvegar
og „róttæk" eða „öfgasinnuð"
hinsvegar. En nú er sú skipting
á aðra lund en fyrr. Þau „rót-
tæku" og „öfgasinnuðu" em
ríki þar sem svokallað bókstaf-
síslam er sterkast (írak þó talið
þar með), hin ríki sem hlið-
hollari em Vesturlöndum og
andhverfust bókstafstrú.
Þannig er til í dæminu að ríki,
sem áður töldust róttæk, teljist
nú hófsöm; það mun t.d. eiga
við um Sýrland.
Þessi skipting er ekki bara í
hugarheimi vestrænna fjöl-
miölamanna. Hún segir t.d.
gTeinilega til sín í jemenska
stríðinu. Norður-Jemen er
íhaldssamt samfélag og íslam
er þar haft í hávegum. Það nýt-
ur í stríðinu samúðar og smðn-
ings „róttækra" arabaríkja.
Suður-Jemen taldist um 20 ára
skeið fram að sameiningunni
marxískt ríki og hafði þá í
stjórn- og efnahagsmálum
kerfi, sem sniðið var eftir því
sem var í kommúnískum ríkj-
um. Þótti það undur nokkurt,
þar eð yfirleitt hefur kommún-
isminn átt erfitt með aö skjóta
rótum I íslamska heiminum.
Nú kalla ráðamenn Suður-Je-
mens sig ekki lengur marxista,
en segjast vera sósíalistar sem
aðhyllist lýðræði og einskonar
blandað hagkerfi. I samræmi
vib það og marxísku fortíðina
er veraldarhyggja talsverð í
Suöur-Jemen, enda eru ráða-
menn þar af andstæðingum
sínum kallaðir villutrúarmenn
og guðleysingjar.
Konungar og furstar Saúdi-Ar-
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
abíu og annarra arabaríkja við
Persaflóa höfðu eins og vænta
mátti einkar illan bifur á marx-
isma Suður-Jemens og studdu
Norður-Jemen gegn þvi. En nú
er önnur öldin þar sem víðar.
Jafnskjótt og yfirstandandi Je-
mensstríð braust út, brugðust
áminnstir höfðingjar við hart
til stuðnings Suður-Jemen og
tóku að senda því vopn.
íraskir og súdanskir
stríbsfangar
Til nánast fulls fjandskapar
dró með olíufurstum Arabíu
og hinu sameinaba Jemenríki
er írak hertók Kúveit, en þá tók
Jemen ab rábi norblendinga
svari íraks. Saúdi-Arabía refs-
aöi Jemen snarlega fyrir það
meb því að reka úr landi yfir
800.000 Jemena, sem haft
höfðu vinnu í Saúdi-Arabíu,
og svipta það efnahagsabstoð.
Hvortveggja kom hart niður á
Jemen, sem er fátækt. Vera má
að olíufurstamir þykist nú sjá
sér færi á að hefna sín enn
frekar á rábamönnum Norður-
Jemens fyrir samstöbu þeirra
með írak. Kúveit sendir nú
Suður-Jemen létt vopn og
Saúdi-Arabía brynvagna. A
hinn bóginn launar Saddam
Hussein Iraksforseti Norbur-Je-
men samstöðuna í Persaflóa-
deilu með því að senda forseta
þess hemaðarráðgjafa og
stríðsflugmenn. Súdan hefur
einnig sent hermenn til libs
við Norður- Jemen og flugher
þess fær að nota bækistöðvar í
Súdan. íraskir og súdanskir
hermenn, sem Suður-Jemenar
hafa tekið til fanga, hafa verið
sýndir í sjónvarpi. íran hefur
einnig lýst yfir stuðningi við
Norður-Jemen.
í vestrænum blöðum er því
haldið fram að stjórn Norður-
Jemens hafi þegar fyrir nokkru
farið að veita bókstafssinnub-
um hryðjuverkamönnum að-
stöðu til æfinga og undirbún-
ings aðgerða í landi sínu.
Leyniþjónustur „hófsamra"
arabaríkja em sagðar óttast að
bókstafssinnar geri árásir inn í
ýmis lönd frá Norður-Jemen,
og þá myndu Saúdi-Arabía og
litlu flóaríkin ekki síst vera í
hættu. Þetta er ein af skýring-
unum á bak við stuðning þess-
ara ríkja, sem gjarnan em erki-
íhaldssöm kölluð, við sósíalist-
ana og veraldarsinnana í Suð-
ur-Jemen. Önnur skýring í því
sambandi er að sameinað Je-
men hefur um 13 milljónir
íbúa. Olíuríkin á skaganum,
auðug en fólksfá, vilja líklega
gjaman, meö öryggi sitt í
huga, að sá mannafli sé ekki
sameinaður undir einni stjóm.
Norður-Jemen veitir betur í
stríðinu og er jafnvel ekki talið
ólíklegt að her þess taki Aden,
höfuðborg Suður-Jemens, inn-
an skamms. En engan veginn
er víst að Norður-Jemenar hafi
þar með unniö fullan sigur.
Noröur-Jemen er miklu fólks-
fleira en Suður-Jemen, en Suð-
ur-Jemen miklu stærra og
landslag þar þannig ab þab er
víða vel fallið til varnar og
skæmhemaðar. Mubarak Eg-
yptalandsforseti, fyrrverandi
flughershöfðingi sem vel þekk-
ir til þarlendis, telur t.d. að
ekki sé ósennilegt að stríð
þetta standi ámm saman. Eitt
af því, sem fram hefur komið í
fjölmiðlum af þessu tilefni, er
að Jemenar séu svo gefnir fyrir
að taka lífinu rólega að óhugs-
andi sé að þeir fáist til að berj-
ast nema fáeinar stundir á dag,
og einnig það muni draga
stríbiö á langinn.
Sumra fréttamanna mál er að
persónulegur metingur og
valdastreita Alis Abdullah
Saleh, forseta sameinaðs Je-
mens og Norður- Jemens, og
Alis Salem al-Baidh, áður vara-
forseta Jemens og nú forseta
Suður-Jemens, hafi valdið
mestu um að ekki tókst að
sameina ríkin í raun og að
stríbið braust út. Þeir em bábir
um fimmtugt. Saleh segist ætla
að berjast þangað til landið sé
sameinað ab nýju, eba deyja
ella. Baidh svarar með því að
skjóta Scud- flaugum, sem
sósíalistar hans fengu frá
Bresjnev á þeirri tíð er þeir
vom marxistar, á Sanaa, höf-
uðborg norðurríkisins. ■
JEMEN
Stærð: Norður-Jemen 195.000 ferkílómetrar, Subur-Jemen um
288.000 ferkílóm.
Grannríki: Að landinu liggja Saúdi- Arabía og Óman. Næstu
grannar í Afríku em Eritrea, Djibúti og Sómalía.
íbúar: 12,6 milljónir, þar af 10,2 millj. í Norður-Jemen og 2,4
millj. í Subur-Jemen. Móðurmál langflestra er arabíska og trú
súnnískt íslam.
Her: í honum em um 67.000 manns. Þar af em um 40.000
með stjórn Noröur-Jemens og um 27.000 á bandi ráöamanna
Suður-jemens.
Sameinab Jemen: Þab jemenska ríki, sem nú er e.t.v. að líða
undir lok, var formlega stofnað 22. maí 1990 með því að
Norður-Jemen og Suður- Jemen sameinuðust. En sameiningin
varð aldrei nema takmörkuð, vegna valdastreitu ráðamanna
og þar að auki höfðu landshlutamir lengi verið aðskildir og
era ólíkir um margt. í Noröur-Jemen ráða gamlar íslamskar og
arabískar hefðir, í Suður-Jemen em vestræn og sovésk áhrif
orðin vemleg.
Efnahagur: Jemen er meðal fátækustu landa arabaheimsins.
Það var á bandi Saddams Hussein íraksleiðtoga í Persaflóadeilu
og varð þá fyrir miklum áföllum,vegna refsiaðgerða annarra
ríkja á Arabíuskaga. Þá var líka slitið samningum, sem Jemen
hafði gert vib erlenda aðíla um olíuleit og olíuvinnslu. Olía
hefur þar fundist og er talið að það mesta af henni sé í Suður-
Jemen.