Tíminn - 31.05.1994, Síða 6
6
Þriöjudagur 31. maí 1994
Halldór Ásgrímsson, formabur Framsóknarflokksins:
Að loknum kosningum
Miklar breytingar hafa orðið í
sveitarstjómum landsins.
Framsóknarflokkurinn hefur
náð góðum árangri víða á
landinu í þessum kosningum.
í Reykjavík átti flokkurinn
þátt í því ásamt öðrum stjórn-
málaflokkum, að vinna glæsi-
legan kosningasigur. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir er
verðugur fulltrúi fólksins sem
borgarstjóri í Reykjavík og
hún hefur áunnið sér gott
traust allra þeirra sem að
framboöinu stóðu. Ég vil fyrir
hönd Framsóknarflokksins
þakka það mikla starf sem
liggur að baki þessum glæsi-
lega sigri.
A Seltjarnamesi átti flokkur-
inn jafnframt aðild aö sameig-
iniegu framboði sem vann
góðan sigur, þótt ekki næðist
þar meirihluti að þessu sinni.
Framsóknarflokkurinn vann
alls staðar á í sveitarfélögum í
Reykjaneskjördæmi og er ár-
angurinn í Mosfellsbæ, Garða-
bæ og Grindavík glæsilegur og
eftirtektarverður. Á Eyjafjarð-
arsvæðinu fær Framsóknar-
flokkurinn mikinn hljóm-
gmnn og er sigurinn á Ákur-
eyri mjög glæsilegur og sama
má segja um Dalvík. Annars
stabar á landinu náði flokkur-
inn víða mjög góðri niður-
stöðu og má nefna Borgames,
Stykkishólm, Eyrarsveit,
Hvammstanga, Vopnafjörð,
Homafjörð og Selfoss. Víða
annars stabar bætti flokkurinn
við sig eða hélt stöðu sinni en
á örfáum stöðum minnkakði
fylgið. í flestum eða öllum til-
vikum var um að ræða sveitar-
félög þar sem góður sigur
hafði unnist í síðustu kosn-
ingum. Auk þess hefur fjöldi
flokksmanna á öðmm listum
hlotið kosningu.
Ég tel ástæðu fyrir framsókn-
armenn að vera ánægöa með
þessi úrslit sem sýna góða
stöðu flokksins í sveitarstjórn-
armálum. Að baki liggur gífur-
leg vinna sem hefur verið
frambjóðendum til sóma.
Málefnastarfið er mikið að
vöxtum sem verður gott vega-
nesti fyrir sveitarstjómirnar
og mim nýtast flokknum í
heild.
Ég hef átt þess kost að heim-
sækja flest þau sveitarfélög þar
sem Framsóknarflokkurinn
býður fram í kosningabarátt-
unni. Það hefur verið mér
mikil og verðmæt reynsla að
fá tækifæri til að kynnast öllu
því fólki sem þar hefur unnið.
Það mun reynast mér mikil-
vægt í áframhaldandi starfi í
flokknum. Sú reynsla sem við
höfum fengið í þessari kosn-
ingabaráttu mun nýtast vel á
næstunni. Það er ekki langt til
næstu Alþingiskosninga en þá
mun Framsóknarflokkurinn fá
tækifæri til að koma núver-
andi ríkisstjóm frá. Ég vænti
mikils af samstarfi við flokks-
fólk um allt land í þeirri bar-
áttu sem framundan er.
Ég óska nýkjörnum sveitar-
stjómarmönnum velfamaðar
í starfi og er sannfærður um
ab þar fari veröugir fulltrúar
byggðarlaganna sem njóta al-
menns trausts. Ég er þakklátur
öllu því fólki sem hefur lagt
sig fram í starfinu og þá sér-
staklega því unga fólki sem nú
hefur komið til starfa með
Framsóknarflokknum. Unga
fólkið hefur sýnt það að und-
anfömu að það vill fylkja sér
undir merki Framsóknar-
flokksins og það hefur fundið
að þar getur það haft mikil
áhrif. Við væntum mikils af
þessu unga og áhugasama
fólki og vitum að það á eftir að
hafa mikil áhrif á stefnu og
störf flokksins í framtíðinni.
Halldór Asgrímsson, formabur Framsóknarflokksins.
Sigurhátíð á
Hótel íslandi
Kosningavaka R-listans var á Hótel íslandi á laugardagskvöldiö og fylltist
húsib eftir ab Ijóst var hvert stefndi. Eftirfarandi svipmyndir gefa til kynna þá
glebi sem þar ríkti.
Bros var á hverju andliti á Hótel íslandi á laugardags-
kvöldiö. Tímamyndir. CS
Febgar sem láta sér ncegja ab brosa út í annab. Björn Her-
mannsson og Cústaf Björnsson.
Hér er Þórunn Sigurbardóttir, sem sat í kosningastjórn R-
listans, ab óska Sigrúnu til hamingju.
Frambjóbendur fagna. Cubrún Ágústsdóttir, Cubrún Kr.
Óladóttir og Sigþrúbur Cunnarsdóttir.
Þab fer vel á meb Pétri Óskarssyni og Eddu Heibrúnu Backman.
Dúndrandi stemning var á dansgólfinu og ungir jafnt sem aldnir stigu sigurdansinn.