Ísafold - 03.04.1879, Qupperneq 3
39
(1785) því til vegar, að hjer var stofn-
að sjerstakt vesturamt, og var Olafur
skipaður fyrir það með kongsbrjefi 6.
júní 1787; enda var Jón Eiríksson þá
skömmu áður dáinn. ,Eað liggur svo
menn viti, lítið eptir Olaf þau þrjú ár,
sem hann þjónaði þessu embætti (1787—
iygo). Honum samdi ekki fremur en
Skúla Magnússyni eða Hannesi biskupi
við Levetzau, sem 1786 kom í Thodals
stað; þá átti hann einnig i leiðinlegu
málastappi við Halldór sýslumann Jak-
obsson út úr kveri, sem Halldór Ij et prenta
um hann í Kaupmannahöfn, og sem
sveigði að því, að flestir embættismenn
landsins væri Olafi meira eða minna
venzlaðir og vanda bundnir, og því hallir
undir hann.
Við burtför Levetzaus hjeðan (1790)
varð Ólafur jafnframt stiptamtmaður,
en Meldahl var settur yfir suðuramtið.
Tók Ólafur það að sjervið fráfall Mel-
dahls (1791), en ljet aptur (1793—94),
vesturamtið afhendi við J. Chr. Wibe.
pað, þóttu hjer álíka mikil tíðindi, að
fá Islending fyrir stiptamtmann, eins
og það um miðbik aldarinnar hafði þótt,
að fá innlendan landfógeta, en vafa-
samt mun það, hvort vegur Ólafs í raun-
inni hafi vaxið við þessa upphefð. Hann
reyndist nú, sem fyr, lipur og greind-
ur embættismaður í þau 13 ár, sem hann
sat í völdum; hann hlynnti að bjarg-
ræðisvegunum, eins og áður, hafði liann
þann eptirbreytnisverða og hjer á landi
ekki óþarfa sið, með auglýsingum á
ári hverju, að minna menn á allar þær
lagasetningar, sem atvinnuveguna (fiski-
veiðar, túngarðahleðslu, þúfnasljettun,
matjurtarækt o. fl.) snertu; hann kom
upp barnaskólanum á Hausastöðum
(1791); hann var sami góði búhöldur,
eptir það hann fluttist til Viðeyjar (1793),
eins og á Innrahólmi, hann hjelt eins
og líklegt var, áfram hinni sömu rausn,
en — það liggur í opinberum málefnum
minna, og sízt betra eptir hann. Ein-
okunarverzlunin, sem hann hafði hjálp-
að til að fella, var, að nafninu, um lok
liðin (1786—87), en nú var stólsjarða
salan á dagsskrá. Hlutlaus af henni
gat æðsti embættismaður landsins, fað-
ir Magnúsar konferenzráðs, sem fyrir
sölunni stóð, og tengdafaðir Hannesar
biskups, varla verið. Enda var Ólafur
einnafþeim ríkismönnum landsins, sem
komst að góðum kaupum á konungs-
jörðum; 26. jan. 1791 keypti hann t.d.
Kúludalsá (20 hndr.), Klafastaði (10 h.)
og Stórufellsöxl (27 h.), með samtals 7
kúgildum fyrir 400 rd. En þó margt
hafi verið og margt megi um stólsjarða-
söluna segja, þá ber þess að gæta, að
menn, eins og von er til, á þeim tím-
um, litu hana öðrum augum, en nú.
Menn stóðu þá í þeirri, á 18. öld ekki
óeðlilegu, ímyndun, þó hún sjálfsagt sje
röng, þegar lesið er ofan í kjölinn, að
menn keyptu ekki landsins, heldur kon-
ungs eign, og að kongsins, en ekki
landsins sjóður, ætti að bera þann halla,
sem af sölunni kynni að leiða. Mönn-
um gat þá ekki dottið í hug, að land-
ið myndi fá sjálfsforræði og að fjárhag-
ur þess myndi verða aðskilinn frá fjár-
hag ríkisins. Góð var einnig meining
Reventlow’s greifa, sem meðal Dana
var mestur hvatamaður sölunnar; hann
vildi efla sjálfseign í landinu (sbr. Berg-
söe, Chr. D. Reventlow’s Virksomhed, II,
22Ó); M. Stephensen, Eptirmceli 18. ald-
ar, bls. 819). þar bar þeim á milli Re-
ventlow og Jóni Eiríkssyni síðustu æfi-
ár Jóns, að Jón, sem kunnugri var ái
íslapdi, óttaðist — og óttaðist rjettilega I
— að aðrir en ábúendur jarðanna myndi
ná kaupum á þeim, og það var einmitt
það,- sem honum sveið mest við söluna
(sbr. Eggerts, Philosophische Schilderung,
bls. 111; œfisögu Jóns Eiríkssonar, bls.
161). En—hvaðumþað, í augum lands-
búa leit salan út sem gróðavegur fyr-
ir einstaka peningamenn, sjer í lagi þá
Stephánssonu, Finnssonu og þórarins-
sonu. Enda hafa þeir orðið fyrir meira
ámæli sökum sölunnar, en þeir má ske
eiga skilið. -— Ekki kemst heldur hið
íslenzka landsuppfræðingarfjelag, sem
Magnús sonur Olafs, stofnaði, og sem
Ólafur varð forseti fyrir (1794), í neinn
samjöfnuð við lærdómslistafjelagið frá
1780. Meðan Ólafur vann í samvinnu
við Skúla Magnússon og Magnús Gísla-
son, vann hann landinu mest gagn.
Varla myndi hann, ef peir hefðu verið
á lífi, hafa haldið sjer fyrir utan beiðni
íslendinga 1795 um algjört verzlunar-
frelsi, hina svo ltölluðu „almennu bæn-
arskrá Islands“. Allir vissu bæði utan-
lands og innan, að hann var niðri í á
sama máli og beiðendurnir, eins og líka
nærri má geta, bæði af ritum hans og
þar sem sonur hans Magnús var höf-
undur bænarskrárinnar, og nöfn annara
frænda hans og embættismanna lands-
ins stóðu undir henni. Mun stjórnin er-
lendis einnig hafa gengið að þessu vísu,
þó hún notaði afskiptaleysi Ólafs af
bænarskránni til þess að hafna henni.
Hafði hann það því fyrir gætnina eða
deigðina, að hann spillti fyrir landinu,
án þess, að bæta fyrir sjálfum sjer, eins
og síðar varð raun á. því þó stjórnin
1797, þegar hún_ ávítaði undirskrifend-
urna, þakkaði Ólafi fyrir varfærnina,
þá sannaðist vonum bráðar, hver hug-
ur fylgdi máli. Átti það skömmu síð-
ar fyrir honum að liggja, að verða fyr-
ir líkri meðferð, eins og hann hafði
sjálfur látið koma fram við Skúla fógeta.
J>ann 18. júní 1800 setti stjórnin
nefnd manna til þess að verðleggja jarða-
göss á Islandi undir forstöðu Loðvíks
kammerráðs Erichsens (sonar Jóns kon-
ferenzráðs Eiríksonar); hinirvoru: Stef-
án assessor, síðar amtmaður, Stephen-
sen, Árni sekreteri Sigurðsson og G-unn-
laugur sýslum. Briem. Erichsen þessi
var ungur ákafamaður, en að öðru leyti
efnilegur maður og æfður í embættis-
störfum (sbr, æfisögu Jóns Eiríkssonar,
bls. 41, neðanmáls). Hvort hann hafði
erft eptir föður sinn einhvern kala til
Ólafs, og tók sárt til Skúla Magnússon-
ar, sem mestur hafði verið tryggðavin-
ur Jóns Eiríkssonar af öllum Islending-
um (Jón hafði t. d. látið heita í höfuð á
Skúla), eða honum sveið stólsjarða salan,
eða hann var einn af þeim Dönum, sem
bæklingur Halldórs Jakobssonar og
Kyhns Nedvœrge imod den i Island re-
gjerende 0vrighed (1797) töldu trú um,
að Ólafur hefði helzt of mikið vald og
frænda-afla hjer á landi, eða hvað með
öðru; — nokkuð er það, hann hóf hjer
störf sín með því, að leita að höggstað
á Ólafi. Höggstaður finnst optast, ef
velerleitað; enda heppnaðist Érichsen,
efhapp skalkalla, aðkoma því til veg-
ar, að nefndvarsett afkonungi 10. maí
1803 (Claus kammerráð Bendeke, um-
sjónarmaður hinnar grænlenzku verzl-
unar, og ísleifur yfirdómari Einarsson),
til þess að rannsaka embættisfærslu Ó-
lafs og annara embættismanna landsins,
ráðstöfun opinberra bygginga, stofnana
o. s. frv, Var Ólafur jafnframt losaður
(dispenseret) við stiptamtmannsstörfin —
því ekki var honum eiginlega vikið frá
— ogErichsen, sem skömmu áður (1802)
var orðinn amtmaður vestan, settur í
hans stað. Jað, sem helzt á að hafa
verið aðgæzluvert við embættisfærslu
Ólafs, voru — eins og hjá Skúla — óend-
urskoðaðir tukthússreikningar frá 1795
til 1802, helzt til mikil vægð við óbóta-
mann einn, tilsjónin með dómkirkju- og
skólahússbyggingunni í Reykjavík, að
hann hefði látið tukthússfanga róa á
vegum sínum, og, ef til vill, eitthvað
fleira smávegis, sem vjer ekki höfum
getað fundið greinileg deili á. Jað er
engin furða, þó sjötugur embættismað-
ur, sem bjó í Viðey, hefði ekki ávallt
getað haft fullt eptiriit með smiðum í
Reykjavík og með tukthússráðsmennsk-
unni, hitt má heldur lá honum, að hann
hafði tekið ráðsmennskuna að sjerv E-
richsen og Finné landfógeti, (sem Ólaf-
ur sýndi meiri vægð í reikninga-vand-
ræðum hans, en fyrrum Skúla) ætluðu
báðir utan um vorið 1804, en dóu báð-
ir áður; nefndarstörfin dofnuðu smám-
saman; Bendeke sigldi hjeðan úr landi,
og ísl. Einarsson reyndist óhlutdrægari
en Erichsen; Ólafur greiddi smámsam-
an úr sínum eigin vasa það, sem bresta
þótti á tukthússsjóðinn (hjer um bil 800
rd.), og fjekk 6. júní 1806, eptir beiðni
sinni, lausn í náð frá embætti með full-
um eptirlaunum (800 rd.), eptirgjalds-
lausri ábúð á Viðey æfilangt og ge-
heime-etazráðs nafnbót, jafnframt var
Stefán sonur hans skipaður amtmaður
vestan. Skal í þessu tilliti vísað til aug-
lýsingar Ólafs aptanvið III. bindi Minn-
isverðra tíðinda, sem endar með þess-
um orðum:
„-----Framar álít jeg mig skuld-
bundinn hjer með opinberlega að viður-
kenna og þakka mínum kæru lands-
mönnum, hærri og lægri stjettar, sem
allir kallast mega hafa borið mig sjer
á höndum, að einum eða tveimur frá
skildum, alla þeirra kærleiksfullu auð-
sveipni og staka velvild, mjer stöðugt
tjeða 1 þau 50 ár, sem jeg hef þjónað
föðurlandinu, í lögmanns-, amtmanns-
og stiptamtmannsembættinu,------samt
að gefa þeim þann, með stærsta rjetti
verðskuldaða vitnisburð, að sje þeim af
þeirra yfirvöldum stjórnað með skyn-
semi og góðfýsi, mun varla nokkur þjóð
auðveldari finnast í uppfyllingu skyldu
sinnar, en sú íslenzka, er framar gengst
fyrir mildri, en um of strangri stjórn,
hverja síðari mannkærleg yfirvöld aldrei
brúka, heldur í öllum sökum, jafnvel
þeim tvísýnu, ætíð framar þeim fyrst-
nefndu“.
Árið eptir, á jólaföstu 1807, dó kona
Ólafs, Sigríður Magnúsdóttir, afbragð
kvenna að vitsmunum, tryggð og still-
ingu. Eins og hún hafði komið fótun-
um undir auðsæld Ólafs,* eins reyndist
hún, að sögn kunnugra, alla æfi ham-
ingjustoð hans, kom ávallt fram til góðs,
sefaði örlyndi hans, en hvatti hann til
alls drengskapar. Sagt er, að Björn
lögmaður Markússon, sem flutti um
stundarsakir til Ólafs eptir húsbrunann
á Leirá (1769) og dó hjá honum á Innra-
hólmi 1791, hafi einnig reynzt Ólafi
ráðadrjúgur, þó ekki bætti hann um
vinfengið við Skúla Magnússon. Eptir
fráfall konu sinnar lifði Ólafur í 5 ár,
hjelt vel virðingu sinni, og dó, eptir
langa legu, 10. nóvbr. 1812, harmdauði
*) Hann fjekk með henni 4 hundruð hundraða f
fostu og 2 hundruð hundraða í lausu, og erfði,
að minnsta kosti annað eins eptir Magnús Gísla-
son dáinn, sem sje Leirá, Hvítárvöllu, Brokey,
Reykhóla, Bæ í Hrúlaíirði, Bræðrtungu, Innra-
hólm o. s. frv.