Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.2000, Page 10
Lónakotsbærinn á fyrri hluta 20. aldar. Málverk eftir Jóhann Björnsson myndskera.
Morgunblaðið/Golli
BYGGÐ OG NÁTTÚRA í HRAUNUM - 2. HLUTI
EYÐIBYGGÐ
VIÐ ALFARALEIÐ
Byggðin í Hraununum var ekki aðeins við alfaraleiðina
suður með sjó \ leldur í næsta nógrenni við mesta
þéttbýli ó land inu. Samt leið hún undir lok. Hér
verður reyntað bregða Ijósi ó búskapinn í Hraununum
og litið ó einstakar jarðir.
GREINOGLJ Ó S MYNDIR:________
GÍSLI SIGURÐSSON
arna raætti lifa á fegurðinni, sagði
hrifnæmur maður eftir gönguför á
fallegum degi suður í Hraun. Peim
Hraunamönnum hefði þótt það
skrýtin og fjarstæðukennd álykt-
un, enda hefði fegurðin ein verið
létt í maga í þurrabúðum og kotum
Hraunanna á liðnum öldum. Hús-
gangurinn íyrmefndi, sem segir að Hrauna-
mennimir gapi og góni, íar að því að þeir hafi ver-
ið eitthvað slakari sjósóknarar en Garðhverf-
ingar. En Hraunamenn vom seigir og það er í
rauninni ótrúlegt hversu lengi ábúð hélzt á smá-
kotum og hjáleigum í þessu plássi.
Búskapurinn á Hraunajörðunum lognaðist að
mestu útaf á kreppuárunum eftir 1930; þó var
búið á Óttarsstöðum vestri til 1966, en kindabú-
skap var eitthvað haldið áfram eftir að fólkið á
bæjunum var flutt í burtu.
Þegar ég leitaði upplýsinga um endalok bú-
skapar á Hraunajörðunum virtist sem vitneskja
um þessa byggð væri mjög á hverfanda hveli í
Hafnarfirði, þar sem eðlilegast var þó að leita fyr-
ir sér. Engir frægðarmenn höfðu bmgðið ljóma á
Hraunin og markverð afrek virðast ekki hafa ver-
ið unnin þar, önnur en þau að lifa af á smáum efn-
um og koma mörgum bömum til manns. Við
þessa samantekt hef ég reynt að styðjast við
minni ýmissa fullorðinna Hafnfirðinga, en flest-
um er þeim sameiginlegt að vita frekar takmark-
að um þessa nágrannabyggð fortíðarinnar. Und-
antekning er Ragnheiður Guðmundsóttir, sem nú
er 84 ára, skýr kona og skilmerkileg. Hún ólst
upp hjá foreldmm sínum á Óttarsstöðum vestri.
Við þessa samantekt hefur ég einnig getað
stuðzt við óútgefnar heimildir frá alnafna mínum,
Gísla Sigurðssyni, lögregluþjóni í Hafnarfirði,
sem var vandaður fræðimaður og óþreytandi
skrásetjari. Allur sá fróðleikur er varðveittur í
handritum í bókasafni Hafnarfjarðar sem veitti
góðfúslega aðgang að þeim. Á þessum heimildum
er hinsvegar sú gloppa að nafna mínum hefur
ekki enzt aldur til að skrá hinar afdrifaríku breyt-
ingar á Hraunabæjunum þegar kemur fram á 20.
öldina.
Lónakot
Eins og tekið var fram í fyrri hluta greinarinn-
ar var byggðin í Hraununum að stærstum hluta í
hnapp á graslendinu kringum Óttarsstaðabæina.
Lónakot skar sig úr; bærinn stóð einn sér við
ströndina, 2-3 km vestur frá Óttarsstöðum. Al-
faraleið í Lónakot hefur að líkindum legið með
ströndinni þar sem nú er merkt gönguleið. Annar
stígur lá þangað sunnan að og verður síðar vikið
að honum.
Bærinn stóð á fallegum stað uppi á hraunhóli
sem hefur verið talsvert sprunginn og ekki stærri
en svo að ofanverðu að bæjarhúsin hafa orðið að
vera afar fyrirferðarlítil. Þetta undarlega bæjar-
stæði á sér þá líklegu skýringu, að Lónakotsbær-
inn hafi áður staðið lægra, en að mikið sjávarflóð
eftir 1700 hafi eytt honum. Tófth-nar standa
merkilega vel ennþá, enda hlaðnar úr úrvals
hraungrjóti, en vitna um mikið þröngbýli á mæli-
kvarða nútíðar.
Þarna er fallegur útsýnisstaður og sést annars
vegar vestur yfir fjöruna og malarkambinn upp
af henni, svo og túnið sem nú er víða þakið rasli
og rekaviðarsprekum, en mest er þar þó af lá-
börðum hnullungum úr fjörunni. Sá ágangur hef-
ur ugglaust alltaf verið fyrir hendi, en þá hefur
grjótið verið fjarlægt jafnóðum. Út yfir tók í flóði
og stórsjó 1958; þá brast varnargarður og eftir
það seig á ógæfuhliðina. Hinsvegar sést af bæjar-
hólnum austur yfir hraunin og lónin sem bærinn
dregur nafn sitt af.
Eitt þeirra, Suðurtjörnin, er alveg við bæjar-
hólinn og merkilegt er að brunnur bæjarins var
niðurgrafinn í tjörnina. Annað lón er lengra inni í
hrauninu, Þessi hraunalón, svo og Branntjörnin
hjá Straumi, sem er samskonar náttúrufyrir-
bæri, eru undursamlega falleg og í þeim er
merkilegt lífríki segja náttúrafræðingar. Á logn-
kyrram degi speglast hraunhólar í miklum fjöl-
breytileika í lónunum og gegnum spegilmyndina
sést botninn langar leiðir.
Lónin þarna og við Straum eiga sér þá skýr-
ingu, að undir öllu hrauninu og raunar undir
mestöllum Reykjanesskaga mun vera jarðsjór á
talsverðu dýpi. Ofan á jarðsjónum flýtur ferskt
jarðvatn, sem er eðlisléttara og blandast mjög
takmarkað jarðsjónum.
í lónunum gætir sjávarfalla. Jarðvatnið hækk-
ar þegar fellur að og sjávarstraumur flæðir inn
undir hraunin. Þessvegna hækkar í lónunum á
flóði, en vatnið er samt alltaf ferskt. Sum lón
verða þurr á fjöru en geta orðið tveggja metra
djúp á flóði, til dæmis Jónsbúðartjöm út með
Straumsvíkinni.
í Brunntjöm hjá Straumi er um 2 m munur á
vatnsborði eftir sjávarföllum og gróðurinn um-
hverfis lónin býr við sjávarföll ferskvatns, sem
eru einstök skilyrði. Þessar ferskvatnstjarnir eru
Útsýnid af bæjarhólnum í Lónakoti er dýrðlegt su
urtjörnin með tæru ferskvatni efst, sem
Ekkert stendur eftir af Lónakc
Lónakot er nefnt eftir lónunum sem ná drjúgan s|
taldar svo sér á parti sem náttúrufyrirbæri að
þær eiga ekki sinn líka, hvorki hér né erlendis.
Ég kom fyrst að Lónakoti 1975 og málaði þá
mynd af því sem eftir var af bænum, en sú mynd
virðist vera glötuð. Eina myndin sem til er af
Lonakotsbænum er líklega sú sem hér birtist;
málverk Jóhanns Bjömssonar, sem því miður er
ekki ársett.
Bærinn á mynd Jóhanns var naumast þekkjan-
legur fyrir aldarfjórðungi; járn að hluta fokið af
þökum og sperrur brotna. Nú er ekkert eftir af
yfirgerðinni; öll hefur hún eyðst og fokið burt.
Vestar á túninu var fjárhús; einnig það er fallið
niður og tóftin fúll af spýtnabraki.
Austar og innar í hrauninu standa grjótgarðar,
en ekki er ljóst hvort þar voru túnblettir, eða ein-
ungis gerði, sem vora algeng og til þess ætluð áð-
ur en girðingar komu til sögunnar að halda fénaði
heima við. Austur af bænum, innan túngarðs, er
sérkennilega spranginn hraunhóll sem heitir
Kramfótur. Fyrrum lá stígur suður í Lónakotssel
og var hluti af samgöngukerfi Hraunanna. Nú
liggur vegarslóði, fær aldrifsbílum, austur úr tún-
inu og þræðir milli hraunhóla 2-3 km leið unz
komið er á Keflavíkurveginn, en þar er þessum
1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. MARS 2000