Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.2000, Side 8
Ein fallegasta myndin I bókinni er þessi, sem sýnir bjartan vetrardag í Landmannalaugum. Hér er vetrarfegurðin eins og hún verður mest á hálendinu í útmánaðabirtunni. Hér hefur allt veriö fyrir
hendi sem þarf til að gleðja sanna jeppakarla, hæfilega þung færð og góður félagsskapur.
Ljósmynd/Kjartan P Sigurðsson
Ferðalangar virða fyrir sér útsýnið af hábungu Tungnafellsjökuls í 1540 m hæð. Þaðan sést yfir hálft landið á björtum degi. Jökulhettan sjálf er ekki víðáttumikil, um 50 ferkílómetrar, og liggur í
gamalli öskju. Ekki hefur gosið í þeirri eldstöð síðan um ísöld svo vitað sé. Á dögum eins og þessum nær þetta útmánaðasport hámarki og þegar best lætur geta menn fækkað fötum um leið og þeír
njóta útsýnisins.
JEPPAR A
FJÖLLUM
NÝ MYNDABÓK KJARTANS P.
SIGURÐSSONAR, 4X4 A HALENDIISLANDS
Jeppi á Fjalli var þekkt persóna í
Reykjavík á fym hluta 20. aldarinn-
ar. Svo var Leikfélagi Reykjavíkur
fyrir að þakka, sem flutti gamanleik-
ritið um Jeppa oftar en einu sinni.
Nú virðist Jeppi gleymdur og graf-
inn en aðrir jeppar þeim mun vin-
sælli. Líkt og hjá dýrategundum í
ríki náttúrunnar má rekja uppruna þeirra til
sameiginlegs forföður, nefnilega Willies-jepp-
ans, sem varð skyndilega þarfasti þjónninn á
fslandi á stríðsárunum. Lengi vel var jeppa-
ílóran ekki fjölskrúðug og menn undu við
Rússajeppa og Land-Rover sem voru ekki síð-
ur landbúnaðartæki en farartæki, svo og Will-
iesjeppann.
Með Range Rover eða „Reinsanum" eins og
hann var stundum nefndur, kemur ný grein á
ættartré jeppanna: Lúxusbíll sem jafnframt er
fær í flestan sjó og er hvorki hemaðartæki eins
og Willies-jeppinn né landbúnaðartæki. Það er
síðan á tveimur síðustu áratugum aldarinnar
að vinsældir jeppanna verða framleiðendum
ljósar og fjölbreytnin er slík núna að minnstu
jeppunum má líkja við kjölturakka, en þeim
vígalegustu við scháferhunda.
Það getur líka talizt tímanna tákn að flottar
drossíur eins og Bjúkkar og Benzar eru ekki
stöðutákn númer eitt, heldur stærstu jepparn-
ir. Svo er sagt að fólk sem er loðið um lófana, en
hefur aldrei áður átt jeppa, panti nú þá
stærstu, Nissan patrol og Toyota Land Cruis-
er, og ekki að tala um annað en á 38 tommu
dekkjum eins og jöklafarar nota. Fyrir slík
dekk ásamt upphækkun og brettaköntum
borga menn glaðir milljón til viðbótar við bíl-
verðið.
Það er ljóst að með þessu er verið að kaupa
leiktæki, en hvemig nýtast slík leiktæki? Is-
land ætti að vísu að vera óskaland ofurjepp-
anna með vegleysur sínar og jökla. En þá ber
þess að gæta að akstur utan vega og slóða er 61-
eyfilegur, enda geta hjólför eftir bíl á viðkvæm-
um stöðum á hálendinu sést í mannsaldra.
Að sumarlagi halda löghlýðnir jeppamenn
sig við slóðana, en óskastundirnar í þessu
Ljósmynd/Haukur Snorrason
„Vetrarferðir á íslandi á sérútbúnum bílum þykja ævintýraleg tilbreyting i tæknivæddum og nátt-
úrufirrtum heimi, eftirsóttar af fyrirtækjum og ráðstefnugestum" segir í texta við þessa mynd í
bókinni og ugglaust er það rétt. Myndin er tekin þegar norrænir ráðstefnugestir nutu veðurblíðu
og góðrar veizlu á leiðinni frá Þingvöllum að Laugarvatni.
sporti em á útmánuðum. Það er sá tími sem
núna er upp mnninn; sá tími þegar skammdeg-
ið er að baki og hálendið allt snævi þakið. Þá
geta menn ekið á sléttu yfir úfin hraun, og yfir
ár án þess að vita hvar þær em. Hámarki nær
fjallasport af þessu tagi í akstri uppi á jöklum
og þar er raunar hægt að aka allan ársins
hring.
Nýlega er út komin Ijósmyndabók sem er
helguð_ þessu áhugamáli. Hún heitir 4x4 á há-
lendi íslands og forsíðumyndin sýnir ljóslega
muninn á snjóþynglsum á hálendinu og við
strendur landsins. Þar er jeppi á ferð á renni-
sléttri víðáttu, snævi þakinni. ekkert væri
merkilegt við myndina ef ekki væri vegvísir,
líklega mannhæðar hár, en af honum er ekkert
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 18. MARS 2000