Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1999, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Ásdís
Óiafur Kvaran afhendir Þóroddi Bjarnasyni styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu
Eiríksdóttur. Við h lið Þórodds er Arngunnur Ýr Gylfadóttir, sem einnig hlaut styrk úr sjóðnum, og
Halldóra Ingimarsdóttir, sem tók við styrknum fyrir hönd systur sinnar, Guðnýjar Rósu Ingi-
marsdóttur.
ÚthlutaS úr StyrktarsjóSi
Svavars Guonasonar
Norræna húsiS
Persónur Kalev-
ala með augum
Huldéns
BÓKMENNTASÍÐDEGI
verður með Finnlands-
Svíanum Lars Huldén í
Norræna húsinu á morg-
un, sunnudag kl. 17.
Lars Huldén hefur ný-
lokið við þýðingu sína á
finnska þjóðkvæðabálkn-
um Kalevala yfir á sænsku
og hefur þýðingin fengið
lofsamlega dóma í finnsk-
um fjölmiðlum, segir í fréttatilkynningu.
Þetta er samvinnuverkefni Lars Huldén og
sonar hans Mats og kvæðið sem hefur að
geyma 50 erindi hefur ekki verið þýtt í heild
sinni á sænsku frá árinu 1860.
Þeir feðgar voru beðnir að vinna þetta
verk og hafa þeir undanfarin tvö ár unnið að
þessari þýðingu.
I erindi sínu í Norræna húsinu mun Lars
Huldén segja okkur frá þessari vinnu sinni
og sýn hans á persónum Kalevala og atburð-
um.
Svanhildur Óskarsdóttir mun lesa kafla úr
þýðingu Karls ísfelds á íslensku.
Hann var prófessor i norrænni málfræði
við Háskólann í Helsinki í aldarfjórðung og
er eitt af virtustu ljóðskáldum Finna.
Hann hefur komið til Islands ótal sinnum
og skrifaði m.a. ljóðabók sem nefnist „Island
i deeember och andra resedikter“.
Arið 1997 komi út úrval ljóða hans í þýð-
ingu Njarðar P. Njarðvík.
Hann var gerður að heiðursdoktor við
Heimspekideild Háskóla íslands árið 1996.
Koma Lars Huldéns er í samvinnu við
finnska sendiráðið á Islandi, Upplýsinga-
skrifstofu um finnskar bókmenntir og Nor-
ræna hússins.
Erindið er flutt á sænsku.
Aðgangur er ókeypis.
í LANGHOLTSKIRKJU verður flutt í dag
kl. 17 Sálumessa Ferenc Liszt fyrir karlakór,
fjóra einsöngvara, orgel, trompeta, básúnur
og pákur. Það er Karlakórinn Stefnir sem
flytur Messuna ásamt einsöngvurunum Jón-
asi Guðmundssyni, 1. tenór, Gísla Magna-
syni, 2. tenór, Eiríki Hreini Helgasyn, bari-
tón, og Stefáni Jónssyni, bassa. Stjórnandi er
Lárus Sveinsson, stjórnandi Karlakórsins
Stefnis. Undirleikarar eru: Jón Stefánsson,
orgel, Ingibjörg Lárusdóttir, trompet, Þór-
unn Lárusdóttir, trompet, Hjördís Elín Lár-
usdóttir, trompet, Guðrún Rútsdóttir, bás-
úna, Hugi Jónsson, básúna, og Baldur
Rafnsson, pákur.
Karlakórinn Stefnir flutti Sálumessuna
sumarið 1997 m.a. í Búdapest og Vín ásamt
einsöngvurum og hljóðfæraleikurum. Tón-
skáldið Ferenc Liszt, eða Frans Liszt,
þekkja flestir m.a. fyrir rapsódíur hans, en
hann samdi einnig nokkur verk kirkjulegs
ÞREMUR ungum myndlistarmönnum var
úthlutað styrkjum úr Styrktarsjóði Svavars
Guðnasonar og Astu Eiríksdóttur í Lista-
safni íslands sl. fimmtudag.
Dómnefnd skipuð þeim Olafi Kvaran, Hall-
dóri Birni Runólfssyni og Björgu Atladóttur
komst að þeirri niðurstöðu að af mörgum
verðugum umsækjendum væru þau Guðný
Rósa Ingimarsdóttir, Arngunnur Ýr Gylfa-
dóttir og Þóroddur Bjarnason best að styrkj-
unum komin, en alls bárust 45 umsóknir. Til
úthlutunar fyrir árið 1999 voru þrír styrkir,
að upphæð 300.000 kr. hver.
Þóroddur Bjarnason er fæddur árið 1970
og stundaði nám við Myndlista- og handíða-
skóla Islands 1992-1996 og var við nám í Jap-
an 1997-1998. Hann hélt sína fyrstu einka-
eðlis. Liszt var ungverskur að uppruna en
starfaði jöfnum höndum í Búdapest og Vín.
Kórinn 60 ára
Karlakórinn réðst í flutning Sálumessunn-
ar af þrenns konar ástæðum: 60 ára afmæli
kórsins, 1000 ára afmæli kristnitöku á Islandi
og í tilefni af nýju orgeli Langholtskirkju.
Framundan eru margvísleg verkefni hjá
kórnum, m.a. í tilefni 60 ára afmælis hans,
sem er á þessu starfsári, en kórinn var stofn-
aður í ársbyrjun 1940. Sunnudaginn 14. nóv-
ember syngur kórinn í opnu húsi fyrir al-
draða í Hlégarði á milli 15 og 17.
Sunnudaginn 5. desember verður jólakon-
sert í Árbæjarkirkju kl. 15 í samvinnu við
Reykjalundarkórinn. Sunnudaginn 12. des-
ember verður svo jólavaka í Hlégarði kl. 20 í
samvinnu við barnakór Varmárskóla.
Miðar á tónleikana í Langholtskirkju eru
seldir við innganginn.
sýningu árið 1996. í áliti dómnefndar segir:
„Þóroddur hefur á sínum stutta ferli sýnt
óvenjulegt áræði í vali á miðlum og vettvangi
fyrir list sína og fjalla tilraunir hans á áleit-
inn hátt um samfélagslegt hlutverk lista-
mannsins og virkni hans í margbreytilegu
umhverfi. Viðleitni Þórodds að flétta saman
líf og list er í senn óvænt og margræð. Lista-
hugtakið í verkum hans er víðfeðmt og opið
með þeim samfélagslegu spurningum sem
verkin fela í sér.“
Guðný Rósa Ingimarsdóttir er fædd árið
1969 og lauk námi frá Myndlista- og hand-
íðaskólanum árið 1994. Þá stundaði hún
framhaldnám í Brussel á árunuml994-1996.
„Það má fullyrða að Guðný takist á við
reynsluheim konunnar í verkum sínum.
Um leið nýtir hún sér hina löngu hefð
hannyrðanna og býr til þrívíða list sem fram-
kallar í upplifun áhorfandans vangaveltur og
spurningar um hina kvenlegu reynslu. Þann-
ig hafa verk Guðnýjar Rósu til að bera sterka
sögulega og tilvistarlega skírskotun. Enn-
fremur búa verk hennar yfir formrænum eig-
inleikum sem endurspegla fagurfræðilega
reynslu sem á sér djúpar rætur í náttúr-
unni,“ segir í áliti dómnefndar.
Ai-ngunnur Ýr Gylfadóttir er fædd árið
1962 og stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskólann 1982-1984 og síðan fram-
haldsnám í Hollandi og Bandaríkjunum.
jjMmgunnur Ýr er eini málarinn í hópnum og
tengist landslagshefðinni í íslenskri mynd-
list, en þó á mjög sérstakan og persónulegan
hátt. Verk hennar taka ekki aðeins mið af
hinum formrænu eiginleikum náttúrunnar
eða síbreytilegu spili birtunnar heldur einnig
því ástandi náttúrunnar sem maður tengir
við tilurð og upphaf. Verk hennar fjalla í senn
um landið í mótun og um frumform og frum-
krafta náttúrunnar. Þau fjalla um umbrot,
hreyfingu og árekstra og varpa ljósi á sam-
band náttúru og menningar og þá sjálfsmynd
sem sprettur af þessu lífræna sambandi,"
segir í dómnefndarálitinu.
Islenskt mál og
menntun
ÍSLENSK málnefnd stendur fyrir málrækt-
arþingi í tilefni af Degi íslenskrar tungu í há-
tíðarsal Háskóla Islands í dag. Þingið er að
þessu sinni haldið í samvinnu við Samtök
móðurmálskennara og Rannsóknarstofnun
Kennaraháskóla Islands.
Aðalefni þingsins er íslenskt mál og
menntun og hefst með ávarpi Björns Bjarna-
sonar menntamálaráðherra kl. 11.05. Þá
ræðir Kristján Arnason, formaður Islenskr-
ar málnefndar, um íslensku í vísindum og
æðri menntun. Guðni Olgeirsson deildarsér-
fræðingur kynnir aðalnámskrá; Anna Ing-
ólfsdóttir íslenskukennari fjallar um íslensku
í leikskólum; Hildur Heimisdóttir grunn-
skólakennari fjallar um íslensku í grunnskól-
um; Knútur Hafsteinsson menntaskólakenn-
ari ræðir um íslensku í framhaldsskólum;
Tryggvi Gíslason skólameistari fjallar um
málrækt í ljósi fortíðar og skugga framtíðar
og Baldur Sigurðsson lektor stýrir pallborðs-
umræðum um íslenska kennaramenntun.
Þinginu lýkur kl. 16.
Lars Huldén
Karlakórinn Stefnir æfir Sálumessu Ferenc Liszt sem flutt verður í Langholtskirkju í dag.
LANGHOLTSKIRKJA
SALUMESSA,FYRIR
KARLAKOR
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLISTARSÝNINGAR
Ásmundarsafn: Yfirlitssýning á verk-
um Asmundar Sveinssonar.
Gallerí Fold: Soffía Sæm. Til 28. nóv.
Gallerí Fold, Kringlunni
Brian Pilkington og Gunnar Karlsson.
Galleri(3)hlemmur.is. Baldur J. Bald-
urss. og Kristinn Pálmas. Til 21. nóv.
Gallerí Smíðar/Skart: Ragnheiður
Ingunn Ágústsdóttir. Til 4. des.
Gallerí Stöðlakot
Linda Eyjólfsdóttir. Til 5. des.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
Vignir Jóhannesson. Til 19. des.
Gerðarsafn: Bjarni Sigurbjörnsson,
Guðrún Kristjánsdóttir, Helga Egils-
dóttir og Guðjón Bjarnason. Til 21. nóv.
Gerðuberg: Eiríkur Smith. Til 9. jan.
Hafnarborg: Sverrissalur: Sigurður
Magnússon. Aðalsalur: Jón Baldur
Hlíðberg. Til 13. des.
Hallgrímskirkja
Jón Axel Björnsson. Til 28. nóv.
i8, Ingólfsstræti 8
Magnús Pálsson. Til 5. des.
Kjarvalsstaðir:Grafík í mynd: innlend-
ir og erlendir listamenn. Ragna Rób-
ertsdóttir. Til 19. des.
Listasafn ASLÁsmundarsalur: Ingi-
mar Ólafsson Waage, Karl J.Jónsson.
Gryfja: Harpa Björnsdóttir. Til 5. des.
Arinstofa: Verk úr eigu safnsins.
Listasafn Akureyrar
Stefán Jónsson og Dauðahvötin, yfir-
litssýning á vegum safnsins. Til 5. des.
Listasafn Einars Jónssonar
Opið laugard. og sunnudaga kl. 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn íslands: Ásgrímur Jónss. í
Skaftafellssýslum. Fimm Súmmai'ar.
Til 28. nóv. Kaffistofa: Málverk Dung-
anons. Til 31. des.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Valin verk eftir Sigurjón Ólafsson.
Listasalurinn Man: Sigurborg Stefáns-
dóttir. Til 5. des.
Mokkakaffi: Tennur og list: Ljós-
myndaverk Snorra Ásm.. Til 3. des.
Norræna húsið: Lifi Kalevala. Nýlista-
safnið: Didda Hjartardóttir Leaman,
Þórunn Hjartardóttir, Olga Bergmann
og Anna Hallin. Til 12. des.
One o one Gallerí: Haraldur Jónsson.
Stofnun Árna Magnússonar: Hand-
ritasýning opin þri-fös kl. 14-16.
TÓNLIST
Laugardagur
Seltjarnarneskirkja: Lúðrasveit
verkalýðsins. Kl. 15. Ráðhús Reykja-
víkur: Lúðrasv. Rvk. Kl. 15-Langholt-
skirkja: Sálumessa Liszt í flutningi
Stefnis ásamt einsöngvurum. Kl. 20.
Salurinn: Jónas Ingimundarson píanól.
Kl. 16.
Sunnudagur
Fríkirkjan í Reykjavík: Kór Frí-
kirkjunnar og einsöngvarar Kl. 20.
Þriðjudagur
Salurinn: Tríó Romancé. Kl. 20.30.
Kapella HÍ: Vox academica. Kl. 20.30.
Fimmtudagur
fslenska óperan: Einsöngstónleikar
Helgu Rósar Indriðadóttur, sópran.
LEIKHUS
Þjóðleikhúsið: Sjálfstætt fólk: Bjartur,
lau. 20. Ásta Sóllilja, lau. 20. nóv. Krít-
arhringurinn, mið. 24., fim. 25., fös. 26.
nóv. Glanni glæpur í Latabæ, sun. 21.
nóv.Abel Snorko býr einn, þrið. 23. nóv.
Fedra, sun. 21. nóv.
Borgarleikhúsið: Litla hryllingsb., lau.
20., fim. 25. nóv. Fegurðardrottningin
frá Línakri, fim. 25. nóv. Pétur Pan,
sun. 21. nóv. Leitin að vísbendingu, lau.
20. sun. Sex í sveit, sun. 21. nóv.
íslenska óperan: Mannsröddin, mið.
24. nóv. Baneitrað samband, lau. 20.,
sun. 21. nóv. Hellisbúinn, fös. 26. nóv.
Loflkastalinn: Jón Gnarr, lau. 20., sun.
21., fös. 26. nóv.
Bioleikhúsið: Kossinn, lau. 20. nóv.
Iðnó: Frankie & Johnny, lau. 20., fim.
25. nóv. Leitum að ungri stúlku, lau. 20.
nóv. Gleym mér ei og Ljóni kóngsson,
lau. 20. okt. Leikhússport, mán. 22.
nóv.
Kaffileikh: Ó, þessi þjóð, mið. 24. nóv.
Tjarnarbíó: Töfratívolí, sun. 21. nóv.
Möguleikh:,Langafi prakkari, sun. 21.
nóv. Einar Áskell, lau. 20. nóv.
Hafnarljarðarleikhúsið: Salka, 26.
nóv.
Hugleikur: Kötturinn sem fer sínar
eigin leiðir, sun. 21. nóv.
LA: Klukkustrengir, lau. 20. nóv.
Baneitrað samband, mið. 24., fim. 25.,
föst. 26. nóv.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 20. NÓVEMBER 1999