Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1996, Síða 16
ÞINGEYRAKIRKJA er hlaðin úr steini sem sótt var um langan veg og dreginn á ísi yfir Hópið.
FJÓRIR postulanna úr hinni sérstæi
EFTIR BJÖRN HRÓARSSON
Ásgeir Einarsson alþingismaður fluttist að Þingeyrum
•-----—.. ....................................7----
vorió 1 860 en þó var þar torfkirkjg hrörleg. As-
geir ákvaó aó byggja upp kirkju á staónum úr ís-
lensku grjóti og var þaó flutt vestan úr Nesbjörgum
og dregió á sleóum yfir ísi lagt Hópió. Kirkjan er
í senn fögur7 svipmikil og sérkennileg.
HIMNAFÖR Krists. Tréskurðarmynd yfir alt-
arisbríkinni eftir Guðmund Pálsson bíldskera.
ALTARISBRÍKIN í Þingeyrakirkju er með
merkustu kirkjugripum hér á landi. Á minni
myndinni sést miðhluti hennar í smáatriðum.
SKÍRNARSÁRINN er íburðarmikill og prýddur
litfögrum málverkum.
AFÖR um þær sveitir Húna-
vatnssýslna sem liggja inn
af Húnaflóa vekur athygM
dökkleit kirkjubygging á
ávölum hól úti við ysta sæ.
Svo flatt er landið á þessum
slóðum að húsið stendur þó
aðeins í um þijátíu metra
hæð yfir sjó, suðaustan í Þingeyrabungu, og
þótt það virðist úti við ysta sæ frá hringvegi
séð eru rúmir fímm kflómetrar frá kirkjunni
niður í ijöru. Þessi dökka þúst sem þannig lað-
ar, kallar og jafnvel seiðir til sín huga ferða-
langa er allrar athygli verð enda um að ræða
eitt merkasta guðshús á íslandi, Þingeyrakirkju.
Afleggjarinn frá hringvegi að Þingeyrum er
um sjö kílómetrar og er sveigt inn á hann við
skógarreit og áningarstað við mynni Vatnsdals
þar sem nyrstu Vatnsdalshólamir hvíla á víð
og dreif. Skammt vestan við skógarreitinn og
áningarstaðinn eru Þrístapar þar sem síðasta
aftaka á íslandi fór fram. Þar féllu þau Agnes
Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson fyrir hendi
böðulsins 12. janúar 1830. Höggstokkurinn og
öxin eru varðveitt í Þjóðminjasafni.
Bærinn Steinnes stendur skammt austan
afleggjarans að Þingeyrum. Þar er stundum
hægt að fá fylgd að kirkjunni en alla jafna er
hún læst sem flest önnur guðshús á Islandi.
Steinnes var prestsetur Þingeyrasóknar um
langan aldur en það var flutt til Blönduóss árið
1968. Núverandi prestur Þingeyrasóknar er
séra Ámi Sigurðsson. Vestan Þingeyra er Hóp-
ið, sjötta stærsta stöðuvatn landsins, en austan
kirkjustaðarins er Húnavatn sem talið er þrítug-
asta stærsta stöðuvatn landsins. Vötnin standa
bæði aðeins í um eins metra hæð yfír sjó og
eiga þannig sinn þátt í því hversu myndarlegt
er að sjá heim að Þingeyrum og hversu þaðan
er víðsýnt. Sér þaðan norður um Strandir, aust-
ur á Skaga og suður til jökla.
Þingeyrar em eitt kunnasta stórbýli í Húna-
þingi. Taiið er að enginn bær á íslandi hafí
verið jafn stór og vel hýstur sem Þingeyrar
enda sátu þar auðmenn og höfðingjar öld fram
af öld. í Landnámu er þess getið að Ásmund-
ur, förunautur Ingimundar gamla, hafi numið
land frá Helgavatni út um Þingeyrasveit. í
Heiðarvíga sögu segir að Barði í Ásbjamamesi
hafí farið á mannamót milli Hóps og Húna-
vatns til að leita sér liðveislu til bróðurhefnda.
Hafa rnenn því safnast saman til þinga á þess-
um stað allt frá því um aldamótaárið 1000 eða
frá fyrstu kristni í landinu. Frá því segir í sögu
Jóns helga Hólabiskups að eitthvert vorið á
fyrsta tug elleftu aldar hafí verið ákaflega kalt.
Hallæri þrengdi að mönnum og gróður hafði
ekkert tekið við sér þegar komið var að vor-
þingi. Biskup fór til vorþings að Þingeyrum og
með samþykki þingheims var ákveðið að þar
skyldi reisa kirlq'u. Markaði biskup sjálfur
grundvöll undir kirkjuna og i þeirri sömu viku
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. DESEMBER 1996