Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1996, Qupperneq 10
1918. Frá þeim degi var ísland frjálst og
fullvalda ríki í samfélagi ríkja heims. Þar
með varð þessi hávetrardagur, 1. desem-
ber, þjóðhátíðardagur í þessu norræna landi,
en 2. ágúst var þeim einum eftir skilinn,
sem sérstaka tryggð höfðu við þann dag
bundið, og eru þeir áður nefndir.
Ég minnist þess frá því að ég var barn
hér í Reykjavík, hvernig ytri hlið þessara
hátíðarhalda leit út. Þeir sem öðrum fremur
settu svip á daginn og nærri stappaði að
allt frá upphafi gerðu hann að sínum degi,
voru stúdentar, einkum hinir yngri, sem enn
voru við nám, en einnig hinir eldri mennta-
menn, sem voru virkir í Stúdentafélagi
Reykjavíkur. Dagurinn einkenndist af sölu
merkja og blaða stúdenta og ýmissa félaga
þeirra eða samtaka. Þá var ævinlega boðað
til útifundar á Austurvelli og ræðumaður
fenginn til þess að tala yfir fundarmönnum
af svölum Alþingishússins. Voru hlið vallar-
ins höfð opin, en það var býsna sjaldgæft,
meðan járnrimlagirðing umlukti hann.
Þá eins og nú deildu Háskólastúdentar
oft hart um ræðumann dagsins. En skylt
er að leggja áherzlu á, að aldrei örlaði á
ágreiningi meðal þeirra um, að segja bæri
sambandslagasamningunum upp jafnskjótt
og leyft væri, og lýðveldi stofnað í stað
konungsríkisins.
Ástæðan til þess, að ræða dagsins var
haldin af svölum Alþingishússins, var sjálf-
sagt einkum sú, að allt frá stofnun Há-
skóla íslands, 1911, ogtil 1940, var Háskól-
inn til húsa í Alþingishúsinu á fyrstu hæð
þess, jarðhæðinni. Eftir að Gamli Garður
var kominn upp, þ.e. 1934 eða 1935, fóru
stúdentar þaðan fylktu liði undir blaktandi
fánum og hornablæstri niður í miðbæ. Þá
þarf naumast að geta þess, að eftir að Rík-
isútvarpið tók til starfa, sem var í árslok
1930, var dagskrá þess 1. desember að
verulegu leyti helguð fullveldishátíðinni.
Það var vitaskuld allt frá upphafi ljóst,
að vart gat óheppilegri árstíma fyrir þjóðhá-
tíðarhöld á íslandi en 1. desember. Olli því
bæði skammdegið og hitt, að sjaldan mátti
með meiri sanni segja, að þá væri allra
veðra von. Samt fór nú svo, að ótrúlega
sjaldan megnaði veður að spilla að ráði
þeim stutta þætti hátíðarhaldanna, sem
reynt var að hafa utanhúss. En þá verður
auðvitað að kannast við, að þar hafí ein-
bert glópalán ráðið, en ekki fyrirhyggja.
Allt frá 1911 (ef ekki lengur) var sérstak-
ur hátíðardagur tekinn að keppa við alla
aðra daga um hylli landsmanna. Þá var
aldarafmælis Jóns Sigurðssonar minnzt
hinn 17. júní, og þann dag var Háskóli ís-
lands stofnaður. Einkum voru það svokölluð
ungmennafélög og íþróttafélög landsins,
sem helguðu sér á þessum árum afmælis-
dag Jóns forseta. Fleiri komu í humáttina
á eftir, og má til dæmis geta þess, að þann
tíma sem hér starfaði nazistaflokkur, fóru
félagar hans ævinlega að morgni hins 17.
júní fylktu liði í kirkjugarðinn við Suður-
götu og lögðu krans á leiði Jóns. Munu
þeir síðast hafa gert þetta sumarið 1939.
Árin 1943-1944 var leikinn síðasti þátt-
urinn í hinni gömlu sjálfstæðisbaráttu þjóð-
arinnar. Heimurinn stóð þá í björtu báli
ófriðarins mikla, og ísland var hersetið af
tveimur stórveldum. Eftir talsvert þref var
almennt fallizt á, að allir hefðu vitað og
aldrei hefði það dult farið, að íslendingar
hygðust segja upp konungssambandinu við
Danmörku við fyrsta tækifæri. Var þá und-
inn að því bráður bugur að ganga formlega
frá þessum málum, að vísu einhliða. Hörm-
uðu margir það, en sögðu sem satt var, að
sízt væri þar íslendinga um að saka.
Nú var stillt þannig til í samræmi við
eindregnar óskir allra, sem til sín létu heyra,
að lýðveldið nýja yrði stofnað hinn 17. júní,
Jóni Sigurðssyni til heiðurs, en landi og
þjóð til heilla. Var svo gert sumarið 1944,
og upp frá því hefur sá dagur verið hinn
eini og sanni þjóðhátíðardagur okkar, þó
að aldrei hafi hann verið lögtekinn sem frí-
dagur eða helgidagur. Hefur sú venja skap-
azt, að árlega auglýsir ríkisstjórnin, að það
séu vinsamleg tilmæli, að atvinnurekendur
fari að dæmi hennar og veiti öllum starfs-
mönnum sínum leyfi frá þeim störfum, sem
ekki er lífsnauðsynlegt að sinna.
Eftir 1944 fór vegur 1. desember smám
saman minnkandi. Þar kom, að hann var
numinn úr tölu frídaga - nema í skólum
landsins. Má nú næstum segja, að stúdent-
ar.sitji orðið einir að deginum. Enn deila
þeir hart um umræðuefni og ræðumenn
dagsins hveiju sinni. En fundi sína og mann-
fagnað þann dag hafa þeir nú lengi einung-
is haft innan húss, enda er útvarpið flestum
þægilegri ræðustóll en svalir Alþingishúss-
ins, ég tala nú ekki um, ef hann blæs á
norðan.
Höfundur er sagnfræðingur.
SEYTJÁNDAJÚNÍ-hátíðahöld á Arnarhólstúni í Reykjavík fyrir um aldarfjórðunjri,
.Ola
Ljósm. OlafurK. Magnússon.
íslenzkir þjóð-
hátíðardagar
ú mun svo komið, að flestar eða allar þjóðir
heimsins - eða að minnsta kosti ríki - eiga
sér þjóðhátíðardag,^ sumar meira að segja
fleiri en einn. Við íslendingar höfum tollað
í þessari tízku í rúma öld eða frá árinu 1874,
Hvert mannsbarn á Is-
landi veit um þjóð-
hátíðardaginn okkar og
flestir vita að 1. desember
var þar áður í sama hlut-
verki. Hitt vita kannski
færri, að frá 1874 til 1918
var litið svo á að 2. ágúst
væri þjóðhátíðardagur
íslendinga.
Eftir BERGSTEIN
JÓNSSON
þegar hér var í fyrsta sinn haldin veraldleg
þjóðhátíð og þess minnzt, að liðin voru
þúsund ár frá komu fyrsta landnámsmanns-
ins hingað til lands.
Auðvitað vissi enginn hvaða dag Ingólfur
steig hér á land, þó að allir teldu sig vita
með vissu hvaða ár það var. En danska
stjórnin leysti þennan vanda, enda var hún
eins konar stjúpmóðir íslendinga í þá daga.
Ráðgjafar Kristjáns 9. konungs felldu þann
úrskurð, að hinn 2. ágúst 1874 skyldi þjóð-
hátíð íslendinga haldin, fyrst og fremst í
Reykjavík, stjórnaraðsetrinu og verðandi
höfuðstað landsins. Þann dag skyldi líka
messað alls staðar, sem því yrði við komið.
Annað mál er það, að íslendingum fannst
sjálfum aðalhátíðin vera sú, sem fram fór
á Þingvelli við Öxará dagana 5.-7. sama
mánaðar. Þá voru hliðstæð hátíðarhöld á
samkomustöðum víðsvegar um landið um
svipaðar mundir, og á nokkrum stöðum
erlendis sameinuðust íslendingar og vinir
þeirra um mót af þessu tilefni. Má sem
dæmi nefna, að í Kaupmannahöfn komu
íslendingar saman í tvennu lagi, og í Norð-
ÞJÓÐHÁTÍÐ á ÞingvölIum 1874. Fréttateikning úr London Illustrated News.
Ákveðið var að 2. ágúst yrði þjóðhátíðardagur.
ur-Ameríku áttu þeir fagnaðarfund með sér
í Milwaukee.
Upp frá þessu og allt til 1918 var talið,
að 2. ágúst væri þjóðhátíðardagur íslend-
inga, þó að hátíðarhöld þá væru aldrei al-
menn.
Þess ber að geta, að snemma gerðu verzl-
unarmenn, einkum i Reykjavík, þennan dag
að sérstökum frídegi sínum. Löngu seinna
eða rétt fyrir 1940 breyttu þeir þannig til,
að þéir helguðu sér fyrsta mánudaginn í
ágúst. Þá hafa Vestmannaeyingar haldið
tryggð við þessa hátíð, þó að dagurinn hafí
einnig hjá þeim færzt lítið eitt til. En þeir
halda þjóðhátíð árlega snemma í ágúst, og
stendur hún að jafnaði í tvo eða þrjá daga.
Loks má hér nefna vesturíslendinga, að
minnsta kosti þá þeirra, sem búa í Man-
itoba i Kanada. Þeir hafa að minnsta kosti
frá því um eða rétt eftir 1890 haldið hátíð-
legan íslendingadag í byggðum sínum við
Winnipegvatn hinn 2. ágúst eða því sem
næst.
Allt frá 1848, þegar Danir fengu stjórn-
frelsi og konungur afsalaði sér einveldi sínu
að afstaðinni frönsku febrúarbyltingunni,
háðu íslendingar baráttu fyrir stjórnfrelsi
í eigin málum. Einum markverðasta
áfanganum náðu þeir 1874, þegar þeir
fengu sérstaka stjórnarskrá, sem var þegin,
þó að flestum fyndist þar heldur smátt
skammtað. Öðrum áfanga var náð 1904,
þegar heimastjórn fékkst, þ.e. innlendur
ráðherra, búsettur á íslandi og ábyrgur
fyrir Alþingi.
Loks var það 1918, þegar leið að lokum
heimsstyijaldarinnar fyrri og menn bjugg-
ust almennt við, að reglur Wilsons Banda-
ríkjaforseta yrðu látnar gilda við væntan-
lega friðarsamninga. Þá settist nefnd
danskra og íslenzkra þingmanna á rökstóla,
og náðist þar vonum fyrr samkomulag um
samninga. Var þar kveðið á um, að ísland
yrði frjálst og fullvalda ríki í konungssam-
bandi við Danmörku, og yrði stjórnin þing-
bundin. Framvegis átti Danakonungur að
kalla_ sig konung Danmerkur og íslands -
eða íslands og Danmerkur — eftir því að
hveijum hánn sneri. Þessir samningar áttu
að gilda í 25 ár, en þá mátti hvor aðilinn
sem var segja honum upp.
Þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram um
samningana á íslandi, og voru þeir sam-
þykktir með yfírgnæfandi meirihluta at-
kvæða í kosningum, sem fram fóru seint á
hausti og voru lengi alræmdar fyrir ótrú-
lega litla þátttöku. En margar viðhlítandi
afsakanir eru fyrir þessari litlu þátttöku,
þó að ég fari ekki frekar út í það hér og nú.
Fullveldið gekk í gildi hinn 1. desember
10