Lesbók Morgunblaðsins - 29.02.1992, Blaðsíða 11
minningar af kynnum við Kristján Eldjárn,
sem á þessum tíma var þjóðminjavörður. í
þessu sambandi gæti ég rifjað upp að ég
kom tvisvar í Flatatungu í Skagafirði þar
sem hinar frægu Flatatungufjalir leyndust.
í fyrra skiptið, 1951, voru fjalirnar ennþá
faldar milli þils og veggjar, en árið eftir
var búið að rífa húsið. Mig langaði þá til
að taka myndir af fjölunum og gekk að
Flatatungu frá Silfrastöðum og þurfti að
vaða Norðurá sem þá var óbrúuð. Myndirn-
ar tók ég, en var rétt drukknaður í ánni á
leiðinni til baka, enda var hún í miklum
vexti. Þetta voru fyrstu myndirnar sem
teknar voru af ijölunum. Löngu seinna
skrifaði ég um þetta dálitla grein í afmælis-
rit sem gefið var út til heiðurs Kristjáni
Eldjárn.
Á SLÓÐUM MAURERS
Eftir þessa fyrstu íslandsdvöl hef ég ein-
göngu komið snöggar ferðir til Íslands.
Arið 1972, þegar ég vann að útgáfu ís-
lenskra ævintýra, rakst ég á bréf í Lands-
bókasafninu frá þýska prófessornum og
þjóðsagnasafnaranum Konrad Maurer til
Jóns Sigurðssonar forseta. Þá var Kládía
Róbertsdottir að vinna að ritgerð um Jón
Sigurðsson. Okkur langaði að athuga hvort
við gætum haft upp á afkomendum Maur-
ers í Múnchen eða nágrenni, sem kynnu
að eiga í fórum sínum gögn um hina merku
ferð Maruers til íslands árið 1858. Á endan-
um hafðist upp á sonarsyni gamla Maurers
í Augsburg. Hann sendi mér í skókassa
ferðasögu afa síns, gífurlegt handrit með
örsmárri rithönd. Tölvusett er það um 800
síður. Þetta er um margt mjög merkileg
saga og góð lýsing á íslensku samfélagi
um miðja síðustu öld, enda skrifuð af mik-
illi sögulegri þekkingu. Ýmsir hafa sýnt
áhuga á að gefa þetta út í íslenskri þýð-
ingu, og þá í styttu formi.
Árið 1980 fór ég til íslands með konu
minni og rakti þær slóðir sem Maurer hafði
fornnorrænu leggjum við mikið upp úr nán-
um tengslum við ísland og Stofnun Árna
Magnússonar, þar sem fengist er við rann-
sóknir á frumheimildunum sjálfum, handrit-
unum. Þessi kynni hófust fyrir alvöru í
sambandi við 4. alþjóðlega fornsagnaþingið
sem haldið var í Múnchen árið 1979; reynd-
ar fór hópur héðan á fornsagnaþingið í
Reykjavík 1973. Margir af nemendum okk-
ar hafa verið lengri eða skemmri tíma við
Árnastofnun og notið þar góðrar fyrir-
greiðslu. Þá er algengt að nemendur í norr-
ænudeildinni hafi aðrar miðaldagreinar sem
aukafög og víkki þannig fræðasvið sitt. Það
má kannski segja að við höfum lagt áherslu
á að tengja skyldar greinar í rannsóknum
okkar: handritarannsóknir, sagnfræði,
menningarsögu, þjóðfræði og fornleifa-
fræði. Eg nefni sem dæmi doktorsritgerð
Cornelíu Weinmann um hús á íslandi þar
sem stuðst er við fornleifafræði og bók-
menntir sem tvær sjálfstæðar greinar sem
síðan eru látnar styðja hvor aðra. Einnig
mætti í þessu sambandi nefna doktorsrit
Wilhelms Heinzmanns um lækningajurtir.
Af öðrum rannsóknarverkefnum nefni ég
rit Stefanie Wúrth um þætti í Flateyjarbók,
rit Ulrike Strerath-Bolz um Prologus Snor-
ra-Eddu, útgáfu Huberts Seelows á Hálfs
sögu og Hálfsrekka og verk hans um ís-
lenskar þýðingar á þýskum alþýðubók-
menntum. Bæði síðasttöldu verkin hefur
Árnastofnun gefið út.
Þá má geta þess að margir íslenskir stúd-
entar, hafa sótt tíma í deild okkar, ekki síst
í fornnorrænu, jafnhliða námi í aðalfagi
sínu. Á bókasafn okkar koma margir íslend-
ingar. Þannig myndast mikilvægt og örv-
andi samband milli landanna tveggja, Bæj-
aralands og íslands. Vissulega væri gott
að auka samskiptin á sviði menningar og
lista. Þetta mál ræddi ég við sendiherrann,
Hjálmar W. Hannesson, og konsúlinn,
Friedrich Schwarz, og tóku þeir mjög vel
undir þetta. Með samstillingu krafta sendi-
ráðs, konsúlats og norrænudeildar
***** 1
Ljósmyndir: Baldur Hafstað.
Eftir athöfnina. Frá vinstri: Hermann Schwarz, fyrrverandi konsúll, Hjálmar
W. Hannesson, sendiherra íslands í Bonn, Kurt Schier, Friedrich Schwarz, kons-
úll íslands í Bæjaralandi.
verið á, m.a. til að spyijast fyrir um hvort
eitthvað af þeim sögum sem Maurer safn-
aði væru ennþá á vörum fólksins. Ferðin
var skemmtileg þó að maður hafi kannski
ekki fundið allt sem leitað var að. Við kom-
um til dæmis í Hítardal ásamt dr. Jónasi
Kristjánssyni, en þar segist Maurer hafa
að beiðni prestsins á staðnum skráð nafn
sitt í Nafnaklett svonefndan. Maurer reist
nafn sitt með bandrúnum. Því miður fann
ég ekki þessar rúnir, en hins vegar voru í
klettinum nöfn ýmissa frægra manna sem
verið höfðu gestir í Hítardal, m.a. nafn
Eggerts Ólafssonar.
NORRÆNUDEILDIN í
MÚNCHEN
Á árunum eftir stríðið áttu norræn fræði
erfitt uppdráttar í Þýskalandi; menn settu
þau óverðskuldað í samband við Þýskaland
nazismans. Það voru því fáir sem lögðu
stund á þessa hluti þá. I Múnchen var eng-
in norrænudeild, heldur aðeins einn lektor
á sviði norrænna fræða. Ég var um árabil
aðstoðarkennari við Múnchenar-háskóla og
það var reyndar ekki fyrr en 1976 að ég
var skipaður prófessor og forstöðumaður
deildarinnar. Nú eru þar starfandi allmarg-
ir kennarar, og við höfum m.a. sérstakan
lektor í nútímaíslensku, Dr. Bárbel Dymke.
Allir spm hér stunda nám þurfa nú að læra
fornnorænu og við mælum eindregið með
að stúdentar geti a.m.k. lesið nútímaís-
lensku sér til gagns. Sérhæfí menn sig í
Múnchenar-háskóla mætti örva ýmis sam-
skipti Islands og Bæjaralands.
Allir í fjölskyldunni Með
DOKTORSGRÁÐU
í þakkarræðu sinni við athöfnina, sem
getið var um hér að ofan, vék Kurt Schier
að því hve honum hafi þótt merkilegt að
hitta fyrir á íslandi mjög víðlesna alþýðu-
menn sem glímdu jafnvel við flókin fræðileg
atriði á sviði bókmennta og náttúrufræði.
En eins og fram kom hér í viðtalinu hefur
virðing fyrir menntun einnig ríkt á heimili
glerslíparans í Bæheimi. Og á heimili sonar
glerslíparans hafa menntun og vísindi verið
í hávegum höfð: Kona Kurts Shier er Uta
Schier og er hún doktor í þjóðháttafræði.
Hún hefur einkum rannsakað barnamenn-
ingu, leiki og barnabókmenntir. Þau hjón
eiga tvö uppkomin börn. Dóttirin Gertrud
er doktor í mannfræði og hefur aðallega
rannsakað menningu indíána í Norður-
Ameríku. Hún er nú lektor við Háskólann
í Aþenu. Sonurinn Wolfram er doktor í forn-
leifafræði og hefur unnið að fornleifarann-
sóknum innan Þýskalands og utan, að und-
anförnu í Júgóslavíu. Hann er starfandi við
Háskólann í Heidelberg.
Við þökkum Kurt Schier fyri viðtalið og
óskum honum, fjölskyldunni og norrænu-
deildinni í Múnchen heilla.
Höfundur býr'í Þýzkalandi.
FERíMBIáfí
Evrópa allra 1
fyrir ferðam;
FERÐ4BF
Hótel fyrir fa
*£* FERÐ4BMÐ
Efnisyfírlit Ferða-
blaðs Lesbókar
í tölublaðaröð fyrir árið 1991
1. tbl. Helgiskrín í miðju kviksyndi, St.
Michael í Normandy, bls. 14- 15, Oddný
Sv. Björgvins. Skíðað í frönsku Ölpunum,
grein I, bls. 15, O.Sv.B.
2. tbl. Skíðað í frönsku Ölpunum, grein
II, bls. 11, Oddný Sv. Björgvins. Siglingar
með lystisnekkjum, bls. 12, O.Sv.B.
3. tbl. Ástralía 1990 bls. 13-15, Arn-
laugur Guðmundsson. Skíðað í frönsku
Ölpunum, grein III, bls. 14-15, Oddný Sv.
Björgvins.
4. tbl. Ferðalag á stríðstíma, bls. 11-12,
Oddný Sv. Björgvins. Drykkjusiðir víða
um heim, bls. 12, O.Sv.B.
5. tbl. Hótel fyrir fagurkera, bls. 13-14,
Gísli Sigurðsson. _Áhrif stríðs á ferðalög,
bls. 14, Oddný Sv. Björgvins. Skíðað í
svissnesku Ölpunum, bls. 15, O.Sv.B.
6. tbl. Islendingar fljúga áfram, bls. 10,
Oddný Sv. Björgvins.
7. tbl. Leiguflug til London og Hafnar
bls. 14, viðtal við Guðna Þórðarson, Oddný
Sv. Björgvins
8. tbl. Hvert er öryggi flugfarþega? bls.
10, Oddný Sv. Björgvins.
9. tbl. Eyjar, opin skólabók fyrir nátt-
úrufólk, viðtal við Pál Helgason. bls. 11-12,
Oddný Sv. Björgvins.
10. tbl. Sumarfrí og ítölskunám í Róm,
bls. 9, Oddný Sv. Björgvins.
11. tbl. Hvernig má spara í ferðalaginu?
bls. 14-15, Oddný Sv. Björgvins.
12. tbl. Vegvísar í sumarleyfið. Ætlar
þú að aka um Bandaríkin? Vinstra megin
á veginum, bls. 14-15, Oddný Sv. Björg-
vins.
13. tbl. Ríó heillar, bls. 9-10, Ámi Matt-
híasson.
14. tbl. Suðlæga sólareyjan Jamaica,
bls. 13, Oddný Sv. Björgvins.
-15. tbl. Hvað býður sögueyjan Malta?
bls. 9-10, Oddný Sv. Björgvins.
17. tbl. Himnaríki á jörð, Guangzi Zhu-
ang hérað í Kína, bls. 9-10, Jón Helgi
Egilsson.
18. tbl. Golf í Danmörku, bls. 13-14,
Gísli Sigurðsson.
19. tbl. Slegið á Mozart-strengi í Salz-
burg, bls. 9-10, Oddný Sv. Björgvins.
20 tbl. Hvar er best að gista? bls. 13
Oddný Sv. Björgvins. Hvers vegna íslands-
dagur bls. 14. O.SV.B.
21. tbl. Regnhlífaborgin Bergen, bls.
9-10, Oddný. Sv. Björgvins.
22. tbl. Suðurland býður fegurð og fjöl-
breytni, viðtal við Valgeir Inga Ólafsson,
bls. 13-14, Oddný Sv. Björgvins. Himna-
faðirinn úthlutar ekki flugréttindum, viðtal
við Guðna Þórðarson, bls. 15, O.Sv.B.
23. tbl. í fótspor Eiríks rauða á Græn-
landi, bls. 9-10, Oddný Sv. Björgvins.
24. tbl. Finnst ég vera inní heljarstórum
ísskáp. Viðtal við ferðamálaráðherra
Égyptalands, bls. 13-14, Oddný Sv. Björg-
vins
25. tbl. í návígi við Mýrdalsjökul, viðtal
við DroplaugU Erlingsdóttur framkvæmd-
astjóra Jöklahesta hf. bls. 9-10, Oddný
Sv. Björgvins.
26. tbl. Staldrað við í Staðarskála, bls.
11- 12, Oddný Sv. Björgvins. Finnland, bls.
12- 13, RSv.
27. tbl. Bara að bremsurnar gefi sig
nú ekki, bls 10-11, Agnes Bragadóttir.
28. tbl. Vetrarferð í Ástralíu, bls. 11-13,
Grétar Haraldsson. Þorvaldsdalur, bls.
12- 13, Kristján Jóhannsson.
29. tbl. Hólar í Hjaltadal: Náttúruperla
og söguslóð, bls. 10, Oddný Sv. Björgvins.
Jöklaferðir með Hafþóri „Hveravalla-
skrepp“, bls 10, O.Sv.B.
30. tbl. Skyggnst um á Algarve, bls.
13- 14, Oddný Sv. Björgvins.
31. tbl. Til hægri eða vinstri, í bílaleigu-
bíl á Bretlandi, bls. 11, Oddný Sv. Björg-
vins. Tekst að bjarga Miðjarðarhafinu?,
bls. 12, O.Sv.B.
32. tbl. Newcastle við Tyne-fljót, bls.
13-14, Gísli Sigurðsson. Nýi fjallaskálinn
á Fimmvörðuhálsi, rætt við Jóhönnu Bo-
eskov, eina af stofnfélögum Utivistar, bls.
15, O.Sv.B.
33. tbl. Ævintýraeyjan Madeira, bls.
9-10, Oddný Sv. Björgvins. Enska bjórkrá-
in, bls. 10, O.Sv.B.
34. tbl. Himalaya, Sahara og Fjallabaks-
leið, viðtal við Filipus Pétursson hjá ís-
lenskum fjallaferðum, bls. 9, O.Sv.B.
PETUR Ó EINARSSON
Nafnlaust
Þar loga kaldir eldar yfír kulnuðum glæðum
og sprungur þekja vegginn sem tíminn af sér fæddi
í fjarska ómar bergmál löngu hljóðnaðar klukku
þenjandi út tómið er býr með þér innra
þá veggurinn er reistur var á veikum grunni
fellur undan fargi tóms og tíma
sem fyrirheit úr fögru ljóði
frelsið birtist þér í dýrðarljóma
og þú tekur stökkið en þú stekkur ei
því viljinn var fyrir löngu negldur á kross vanans.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 29. FEBRÚAR 1992 1 1