Lesbók Morgunblaðsins - 29.02.1992, Side 6
I
Hvorki póstkort né kvikmyndir geta gefið rétta
mynd af Ríó de Janeiro, „Janúarfljótinu“ sem
stendur þó hvorki við fljót né árósa. Ríó er
engri borg lík, þar sem hún breiðir hátignar-
lega úr sér milli ávalla graníttinda og blátærs
Á hinni frægu baðströnd
Copacabana geta verið
uppí hálf milljón manna
á góðum sumardegi. Hjá
Ríó-búum er ströndin
ekki afþreying, heldur
lífið sjálft og þar skín
lífsgleðin út úr hverju
andliti.
Eftir ODDNÝJU SV.
BJÖRGVINS
Suður-Atlantshafs. Leifar af iðjagrænum
regnskógi ofan við hvíta sandströnd. Og
háhýsum stungið niður í svo óreglulegt
landslag, að fátt gefur tilfinningu um millj-
ónaborg. Náttúrufegurð slík, að sjálfur
Disney gæti ekki gert betur, þó að hann
legði sig allan fram um að skapa borg hug-
myndaflugsins.
Hallarhótelið Copa Og
Frægasta Baðströnd
S-AMERÍKU
Að morgni blasir við sviðsmynd eins fræg-
asta póstkorts um áratugi, Copacabana-
ströndin með Sykurtoppinn í baksýn. Ríó
varð fræg sem baðstrandarbær, þegar hall-
arhótelið „Copa“ opnaði 1923. Eina lúxus-
hótelið í S-Ameríku, með spilavíti að auki,
dró sannarlega til sín frægasta alheimsliðið.
Á „svartbindakvöldum" mátti sjá Lönu
Tumer, Tyrone Power og Evu Peron á Copa.
Og að sjálfsögðu lét John F. Kennedy sig
ekki vanta.
Ennþá er Copa miðpunktur á Copaca-
bana, þó það nái ekki upp í lúxushótel nútím-
ans. Á blómaskeiði Copacabana vildu allir
búa við ströndina. Of margir þrengdu sér
niður á lítið landrými og frægasta strönd
S-Ameríku fór að drabbast niður. Um 1960
byijaði ríka fólkið að flytja sig yfir á ná-
grannaströndina, Ipanema. En Copacabana
fékk „andlitslyftingu.“ Góð hótel risu. Hvít-
um sandi var dælt á land. Og ströndin fór
að heilla ferðamenn til sín aftur um 1980.
Á góðum sumardegi getur verið upp í
hálf milljón manns á Copacabana. Yfir
300.000 íbúar, sem pakkað er niður í há-
hýsi milli fjalls og strandar, koma allir á
ströndina. Og ferðamenn bætast í hópinn.
ískaldur bjór og sólarolía í háflæði. Ríó-flug-
drekar á lofti undir hrynjandi músíktónum.
Lífsgleðin skín úr hveiju andliti. Því strönd-
in er bæði fyrir ríka og fátæka. Og enginn
tekur frá Ríóbúum þessa fögru borg, þessa
yndislegu veðráttu. Hjá íbúum Ríó er strönd-
in ekki afþreyingarstaður. Hún er lífið sjálft.
SÓL í HÁNORÐRIUM HÁDEGI
En nú er kaldasti árstíminn. Ríóbúar
skjálfa úr kulda og fremur fámennt á strönd-
inni. Hitinn nær aðeins upp í 24 gráður,
þegar sól er í hánorðri. Já, hánorðri segi
ég! Eftir skoðunarferðir dagsins átti að
sleikja síðustu sólargeislana. Horft á fjalls-
topp og sundlaugarbekk. Já, einmitt þarna
væri best að vera til að njóta sólar sem
lengst. Engin orð fá lýst undrun minni,
þegar bekkurinn var augnabliki síðar í for-
sælu. Öfugur sólargangur sunnan við mið-
baug!
Ég stend og stari á ótrúlega fallega slíp-
aða steina í sýningarglugga hjá Sheraton.
„Viltu ekki sjá úrvalið í miðstöð okkar á
Copacabana?" segir afgreiðslustúlkan hjá
H. Stern, einum stærsta skartgripaframleið-
anda í heimi. „Við bjóðum upp á bíl fram
og tilbaka." Ekki svo vitlaust. Én bílstjórinn
skilar okkur upp að aðaldyrum, dyravörður
tekur á móti okkur og við verðum að skoða
dýra steina og skartgripi (langt fyrir ofan
Ríó, svo full af seiðmagni og Sykurtoppurinn með ljós á efstu brún.
kaupgetu) í heilan klukkutíma! En vel þess
virði fyrir áhugafólk um geysifallegar vörur.
Krakkagengi Og
PAPPAKASSAFÓLK
Á strætinu ofan við Copacabana er fjör-
ugt götulíf. Götusalar með fallegan varning,
handgerða heklaða dúka og allsstaðar þess-
ir yndislegu steinar. í kaffihúsum og útikr-
ám gengur kurteist sölufólk á milli borða,
með sitthvað smálegt heimaunnið. Afar
smávaxinn strákur, með logandi augu og
svo eldsnöggur í hreyfingum, að varla er
hægt að fylgjast með honum, vekur at-
hygli. Strákurinn skýst á milli borða og
sópar matarleifum ofan í poka. Hér er
mættur einn úr fjölmennum hópi utangarðs-
barna í Ríó.
— Hvers vegna eru þau svona mörg?
spyr ég Ríóbúa sem snæðir með okkur.
„Fátæktin er svo geysileg," segir hann.
„Börn þurfa jafnvel að flýja misþyrmingar
foreldra, sem stundum „brennimerkja“ af-
kvæmi sín inn í betlarastéttina. Þessir
krakkar hafa stofnað eigið þjóðfélag og
beijast fyrir lífi sínu. Nota allt sem til fell-
ur. Þau fá ekkert uppeldi og hafa litla sið-
ferðiskennd. Nauðganir eru daglegt brauð.
Og þeim fjölgar dag frá degi. Þau eru þjóðfé-
lagsvandamál. Hvíslað er, að lögreglan fari
vopnuð byssum í útrýmingarherferð að
næturlagi!"
Þrælar fyrri tíma söfnuðu öllum matar-
leifum saman af borði húsbóndans og settu
í baunasúpupottinn. Útkoman varð nagla-
súpan fræga, sem allir þekkja! Nú er „feijo-
ada“, þrælasúpan, vinsælasti þjóðarréttur
Brasilíubúa. Ef bjóða á ferðamönnum upp
á eitthvað þjóðlegt, verður þrælasúpan oft-
ast fyrir valinu. Ris einnar stéttar. Fall
annarrar. Einhvern tíma hefði ekki þótt fínt
að borða þrælasúpu! Skyldu utangarðsbörn-
in líka elda „naglasúpu“?
Ef gengið er út fyrir aðalgötu á Copaca-
bana má víða sjá útbreidd pappaspjöld á
gangstéttum, til hliðar pappakassa með
ýmsu matarkyns og fatnaði. Hér býr pappa-
kassafólkið, með allar sínar veraldlegu eigur
í pappakössum. Aðrir Ríóbúar ganga hratt
framhjá. Hættir að sjá samborgara sína sem
liggja þarna fyrir fótum þeirra, með korna-
Einhvern tíma hefði þrælasúpan ekki þótt hæi
börn í fanginu og smábörn hoppandi í kring.
Börn sem eiga trúlega eftir að bætast í hóp
utangarðsbarnanna.
í rökkurskilum kvikna bálkestir á strönd-
inni út frá Ríó. — Er verið að fagna ein-
hveiju? Ég geng að einu bálinu. — Hvað
sé ég? Hrófatildur úr bárujámi og pappa-
kössum. Fátæklingar að elda við bál. Nötur-
legt. Sóðalegt. Og ég get ekki horfst í augu
við þetta fólk. — Yrði maður eins og hinir
sem horfa framhjá eymdinni, ef maður byggi
hérna?
Borgaryfirvöld í Ríó eru að reyna að flytja
utangarðsfólkið úr sjónmáli, upp í efri
byggðir, upp í fjöllin. Sérkennilegasta fá-
tækrahverfi sem ég hef augum litið er Fa-
vela í fjallshlíð ofan við Ríó. Hús hvílir ofan
á húsi^ reist á staurum í Ieirkenndum jarð-
vegi. í mikilli rigningu getur allt skriðið
fram. Samt hvílir eitthvað ljóðrænt yfir
þessum samþjöppuðu húsakynnum.
„Komdu með mér,“ segir Mía, sænsk
stúlka sem rekur ferðaskrifstofu í Ríó. „Ég
er meðlimur í samtökum sem eru að reyna
að hjálpa. Einkum börnunum. Við rekum
hjálparstofnun uppi í fjöllunum. Hjá okkur
er núna 12 ára stelpa sem er nýorðin
mamma.“ Næsta dag ætla ég með henni.
En þá opnast allar flóðgáttir í Ríó. Hvílík
úrkoma! Rafmagnið fer af borginni. Lyftan