Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Blaðsíða 16
X . > *? - Landsbyggðin á línunni: V c stmannaeyj ar — Kaprí norðursins „Nýi báturinn siglir inn í alla hella og eltir uppi háhyrn- inga,“ segir Páll Helgason í Vestmannaeyjum Góð aðstaða er til skoðunar bæði uppi á þilfari og neðan þilja — og útsýnið er stórbrotið! Það er fallegt að horfa yfir Vestmannaeyjar í góðu skyggni. Förum við ekki oft langt yfir skammt, í leit okkar að náttúru- vættum og sérkennilegri fegurð á ferðalögum? ÖruggJega hafa flest okkar heyrt talað um Bláa hellinn á Kaprí, en hve margir kannast við svipaðan helli, rétt við túnfótinn hjá okkur — Kaf- hellinn í Vestmannaeyjum? Og nú eru ekki vandræði með að skoða Kafhelli og öll „Fjósin“ í Stórhöfða! Páll Helgason er bú- inn að fá nýjan hraðbát til að sigla með ferðamenn. „Nú er öll sjóveiki úr sögunni, segir Páll; — konur geta gengið um borð með „túberað" hár og í háum hælum — og lyft kokkteil- glasi fyrir litadýrð í Kafhelli og í Fjósum! Sjóferðin tekur nú um 1 'A tíma — fer eftir því hvað við eltum marga háhyminga! Ég var yfir 2 '/2 tíma að sigla sömu leið á gamla Vini og þá þurftu farþegar að búa sig vel fyrir opna bátsferð — en nú eru regngallar dottnir út! Menn brostu í kampinn, þegar ég kynnti bátinn á ferðakaupstefnu í Laugardalshöll í haust. Enginn trúði því, að hann yrði tilbúinn fyr- ir sumarið! En ég tók við PH Vik- ing í Hafnarfjarðarhöfn 10. apríl, kl. 2 e.h. — afhendingin stóðst upp á mínútu! íslendingar geta staðið við sitt! Síðan hafa 3.000 manns siglt með honum. Þessi fullkomni bátur gjörbreytir allri aðstöðu til að skoða Eyjarnar. Á þessum árstíma iða björgin af fugli og maður getur jafnvel snert hreiðrin, þegar siglt er í hálfs metra fjarlægð!" — Styggjast fuglamir ekki af hreiðmm, þegar komið er svona fast upp að þeim? „Nei, þeir em farnir að þekkja bátinn og sitja sem fastast. Mér finnst mjög heillandi að sigla með fólk inn í Fjósin til að sýna fugla- björgin og litadýrðina. Margir standa alveg agndofa og hafa ekki rænu á að taka upp myndavél!" — Af hveiju heita hellamir í Stórhöfða Fjós? „Á heitum sumardögum lokast fugladritið þar inni' og orsakar mikla fýlu.“ — En af hveiju Kafhellir? „Kafhellir er í eyjunni Hænu, sem er 78 metra há. I vonda veðr- inu í vetur gekk sjór svo yfír eyj- una, að allur gróður er horfinn. Kómantísk kvöldkyrra í Fjósunum. Golfvellir gerast óviða myndrænni! vera þessi Grafið eftir rúgbrauðsdunkum í heitu hrauni. Hvaðan úr heiminum skyldi hún í fanginu á Páli? Kafhellir fer líka á kaf í miklu brimi og stórviðmm. Fólk sem sér hellinn er furðu lostið, að þetta skuli geta gerst! Aðkoman að hellinum er mjög myndræn, þegar hinn geysi- stóri og mikli hellismunni opnast inni í eyjunni. Guðni Þórðarson (oftast kenndur við Sunnu) líkti Kafhelli við Bláa hellinn á Kaprí vegna litadýrðar — og sagði að Vestmannaeyjar væm „Kaprí norð- ursins"! Og marga ferðamenn dreymir um að heimsækja Vest- mannaeyjar, þó þær séu ekki eins þekktar og Kaprí. Fólki finnst líka gaman að eltast við háhymingana, sem þekkja okk- ur og hafa gáman af að sniglast í kringum bátinn — elta okkur síðan með sporðaköstum! Háhyrningar em tignarleg dýr, sem halda sig í hópum, kannski 20-30 saman. Ferðir í kvöldkyrru eru líka vinsæl- ar fyrir hópa, sem vilja gera sér glaðan dag. Þá býð ég upp á kokk- teil og snittur. Við tökum á móti ferðamönnum kl. 8 að morgni úti á flugvelli og fömm beint í skoðunarferð um hraunið og höfnina. Síðan bátsferð, þar sem við segjum frá sögu eyj- anna, mannlífi og gosinu. Eftir bátsferð er vel við hæfi að horfa á myndina „Reginsund", sem sýnd er daglega. í henni leikur Guðlaug- ur Friðþórsson sjálfan sig í sundaf- reki sínu — að synda 5 ‘A km í ísköldum sjó og ganga berfættur yfir hvassar hraunnibbur! Byggða- safn og náttúrugripasafn, golfvöll- ur og sundlaug draga til sín. Og við Vestmanneyingar emm fúsir að kenna öllum að spranga. Sprangan hangir uppi fyrir hvern og einn til að reyna sig. Allar ferðaskrifstofur selja ferðir hingað og sumarið lítur vel út. í maí hefur verið óhemju mikið af skólakrökkum hér, sem er sérstök ánægja að taka á móti, en fram- koma þeirra er til fyrirmyndar. Eina vikuna gistu daglega 35-40 manns heima hjá mér — annars staðar var fullt! Kvenfélög fjöl- menna líka hingað. Ég hef örugg- lega lést um 1 '/2 kg á hlaupum með Kvenfélagi Seltjarnarness — þær voru svo léttar á sér! í Vestmannaeyjum em yfir 100 gistirám. Hótel eru Ileimir, Gest- gjafinn og Þórshamar. Skátar reka farfuglaheimili. Gistiheimilið Hvíld selur heimagistingu kr. 1.500. Og gott tjaldsvæði í Heijólfsdal. Skoð- unarferð með Páli kr. 1.200. Páll býður pakkaferðir, sem kosta með svefnpokagistingu: kr. 6.700 — með uppbúnu rúmi: kr. 8.600. í þeim er innifalið: akstur til og frá skipi eða flugvél; gisting í 2 næt- ur; 2 morgunverðir; 2 kvöldverðir; skoðunarferð um land og sjó; að- gangur í náttúmgripasafn. Veit- ingahús em þijú: Skútinn er nýtísku veitingastaður, Muninn aðeins minni og Bjössabar meira með smárétti. Með Heijólfi fram og til baka kr. 2.300 og flugfar báðar leiðir kr. 6.910. Oddný Sv. Björgvins 16

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.