Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.1989, Síða 13
Skjaldbakan var engin smásmíði að fá í tjaldheimsókn!
Framandi, fjarlægar slóðir:
Safariferð
í Kenýa
Kikuju-menn skreyta sig jafiivel með plastpokum!
i r .■iHf ■ £ wi □21
1 Lv 'i l m
Rætt við Bergþóru Eiríksdóttur
FÁIR fá tækifæri til að sjá ljón, tígrisdýr, antilópur,
fila og flóðhesta í sínu upprunalega umhverfi, flestir
virða dýrin fyrir sér í dýragörðum stórborganna. En
Bergþóra Eiríksdóttir lét sér það ekki nægja, heldur
fór hún ásamt skólasystur sinni, Lindu, í safariferð
til Kenýa síðastliðinn september. Ferðablaðið tók
Bergþóru tali og bað hana að segja frá þessari ævin-
týralegu ferð.
Af hveiju Kenýa?
„Ég hef alltaf haft brennandi
áhuga á dýrum, hef heimsótt alla
dýragarða, sem ég hef getað, en
mig hefur alltaf langað til að sjá
dýrin í sínu upprunalega um-
hverfi. Og eftir menntaskóla lét
ég það eftir mér að heimsækja
draumalandið, Kenýa í Afríku, þar
sem ég sá blettatígra og hræ-
gamma rífa í sig bráðina; sá ljón-
ynjur með unga, svo vinalegar,
að mig dauðlangaði að klappa
þeim; barðist við freka, jafnvel
áleitna apa, sem vildu steia öllu
steini léttara — í einu orði sagt
„ævintýraleg og ógleymanleg
ferð“.
V egabréfsáritun
og seinagangur
Við fengum ekki vegabréfs-
áritun hér heima, en í London var
okkur tjáð, að áritun fengist á
flugvellinum í Nairobi. Flugið frá
London til Nairobi tekur níu og
íslenskar stelpur i þjóðgarði i
Kenýa. Bergþóra er til vinstri.
hálfa klukkustund. Kenýabúar
eru þekktir fyrir seina þjónustu
og við bjuggum okkur undir næt-
urlanga bið á flugvelli, en áritun-
in tók aðeins stutta stund. Aftur
á móti þurftum við að bíða lengi
til að skipta peningum, eftir far-
angri og gistirými, en allt var
yfirbókað. Þegar loks fundust laus
hótelherbergi, um miðja nótt,
þurftum við að bíða meðan verið
var að þrífa þau! Safariferðin
hófst um hádegi, en auglýst var
að ferðin hæfist kl. 9.30! Ferða-
maður í Kenýa verður að vera
þolinmóður, en á móti kemur að
Kenýabúar eru mjög vingjamleg-
ir.
Ferðafélagar
og ferðatilhögun
Sex manns tóku þátt í safari-
leiðangrinum, með okkur Lindu.
v