Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.1989, Síða 10
Mynd Donatellos: Hinn ágjami með steinhjartað.
rauðum og bláum litum sést hægri hönd
Guðs halda á krýndu hjarta keisarans.
Nokkrar persónur sem teknar hafa verið
í dýrlingatölu, t.d. heilög Birgitta, sjást
stundum á myndum með mismunandi tákn,
þar á meðal hjarta. Það er erfítt að sjá
hvort nokkur munur er á merkingu þess
þegar hjartað er logandi, rekið í gegn eða
með krossi. Það er eiginlega ekki fyrr en
með barokkinu að hægt er að sjá samband
á milli merkingar táknsins og viðbragða og
sýnilegs hugarfars persónanna. Hér er eitt
dæmi um þetta: Á minnisvarða um Mazarin
kardinála á leiði hans í París er stytta sem
barokkmyndhöggvarinn Coysevox gerði.
Styttan er af ungri konu sem er tákn fyrir
náungakærleikann sem á upptök sín í kær-
leikanum til Guðs, „Caritas" (sjá mynd).
Þetta sýnir hún greinilega með því að halda
utan um lítið bam með vinstri hendi og
sýna því logandi hjarta sem hún heldur í
hægri hendi.
TÍMABILIÐ EFTIR1700
HERZ-JESU-DÝRKUNIN
Við lok 17. aldarinnar kom upp trúar-
hreyfing sem kölluð hefur verið Herz-Jesu-
dýrkunin (hjarta Jesú), sem fyrir utan mynd-
listina felur í sér bænir og íhugun í sam-
bandi við hjarta Jesú, bæði í líkamlegu formi
Sigurðarristan á Ramsundsberget.
Auðveldara er að túlka tvær graflkmynd-
ir eftir norska expressjónistann Edvard
Munch sem hann gerði 1896 og 1899, þar
sem ástin er mótívið, Myndimar heita báðar
„Stúlkan og hjartað." (Piken og hjertet.)
Sú fyrri sýnir unga stúlku, skærgræna með
svart hár sem heldur á skarlatsrauðu hjarta
sem er litur heitrar löngunar. Hjá Munch
táknar græni liturinn afbrýðisemi, samanber
mynd sem hann málaði af sjálfum sér græn-
um í framan og heitir „Sjalusi" (Afbrýði-
semi). Hin myndin sýnir unga nakta stúlku
sem situr og heldur á hjarta með báðum
höndum og lætur blóð úr því dijúpa á fætur
sér. (Sjá mynd). Munch gerði sér ekki háar
hugmyndir um ást og tryggð kvenna. „Hún
var fögur og tælandi en frjálslynd í meira
lagi...“ sagði hann um eina þeirra.
Svipaðan boðskap gæti mynd sem hér
fyigir með, „Eitt hjárta i brand“ (Logandi
hjarta) eftir N. von Dardel, frá 1931, haft
en hún sýnir fólk vera að slökkva eld í log-
andi hjarta.
Aðalviðfangsefni málarans J. Dine er
hjartað. í hans augum er hjartað voldugt
tákn: Ávöl formin vekja ekki eingöngu hug-
renningar um rómantíska ást heldur einnig
um kynfæri. Þannig er það sambland heil-
agrar og veraldlegrar ástar og „slær“ segir
hann „á frumstæðan streng." Um verk sitt
„Nancy and I at Ithaca" (Stráhjarta)
Með hjartað í hendinni. Minnisvarði
e/lir Coysevox.
Konan með hjartað í mynd Giottos.
og sem tákn um kærleika hans. Einnig
fylgdu hreyfíngunni sérstakir helgisiðir, ljóð
og sálmar. Upphaf hreyfingarinnar var á
miðöldum en við lok 17. aldarinnar breidd-
ist hún óðfluga út sérstaklega fyrir tilverkn-
að nunnunnar Marguerite Marie Alacoque,
eftir að hún hafði fengið nokkrar undarleg-
ar vitranir. Jesúítamir voru fljótir að átta
sig á þýðingu dýrkunar á hjarta Jesú og
þeim áhrifum sem þetta tákn gæti haft á
fjöldann. Þeir lögðu líka mikla atorku í að
breiða út þessa dýrkun. Hún náði hámarki
á 19. öld og í byijun 20. aldarinnar en hef-
ur síðan minnkað töluvert mikið. Fræg
kirkja, Sacré-Coeur í París, dregur nafn sitt
af þessari dýrkun.
Enn þann dag í dag hafa menn í Suður-
Tyról þann sið að kveikja elda á fjallatopp-
um eitt sunnudagskvöld. Eldamir era stund-
um látnir mynda hjarta en í hjartanu era
bókstafimir HJS — Herz-Jesu-Sonntag.
Jesú-hjarta í þessari tegund mjmdlistar
er jafnan sýnt á bijósti Jesú, en ekki í hend-
inni. Tengslin við Kristmyndina era óijúfan-
leg. Hjartað er sýnt með krossi, kransi, elds-
logum eða sári eftir sverð hermannsins.
Önnur málverk innan trúarlegrar listar, t.d.
af persónu með hjarta í hendinni, era ekki
táknræn fyrir þessa dýrkun.
HJARTAÐ í nútíma
Veraldlegri List
Ameríski listfræðingurinn og prófessor-
inn Didier hefur sagt: „Það sem listamaður-
inn telur að sé list er list.“ Vandi áhorfand-
ans er því oft að finna út hvað listamaður-
inn er að meina með verkinu sem oft er
einskonar myndgáta. Ef listaverkið er ekki
mynd af einhveiju ákveðnu getur oft verið
erfítt að túlka boðskapinn sem er árangur
mannlegrar viðleitni en ekki tilviljun.. Þetta
á við um nútímalistaverk, en stundum er
áhorfandanum líka fíjálst að túlka listaverk-
ið eftir sínu höfði. Gott dæmi um það er
mynd af pappahjörtum eftir franska lista-
manninn Marcel Ducamp, „Coeurs volants"
(Hjörtu að slá), frá árinu 1936. Myndin er
af tveim ekki alveg sammiðja pappírshjört-
um í sterkum bláum og rauðum lit sem virð-
ast titra. Hvað ætli Duchamp sé að meina
með þessu verki? Það væri hægt að túlka
myndina á tvo vegu, sem hjarta að slá út-
frá stærðinni og iitnum, rautt og blátt að
myndin sýni hjarta í samdrætti og útvíkk-
un. Eins væri hægt að túlka myndina á
rómantískari hátt, að stóra, bláa hjartað sem
umlykur það rauða sem er minna, en saman
mynda þau eitt hjarta, tákni ást karls og
konu.
Bandaríkjamaðurinn Jim Dine hefur gert hjartað að einskonar vörumerki sínu og kemur það fyrir í ótal myndum eftir
hann. Hér er það í nýlegri mynd hans, Restaurant Black Ceiling.
Mynd frá eldri steinöld af mammút með hjarta, i El Pindal helli & Spáni.
1966—1969, segir hann: „... sambland af
hjarta og stráum kallar fram hugrenningar
um ærslafulla ást í heyhlöðu."
Eftir miðja 20. öldina hefur hjartað smám
saman glatað hinni fyrri táknrænu og trúar-
legu merkingu og list og vísindi nálgast
hvort annað í túlkun á hjartaforminu. I al-
þjóðlegri samkeppni þekktra listamanna
sem Bayer lyfjafyrirtækið hélt árið 1974
bárust 200 verk um viðfangsefnið sem var
hjartað. í keppninni komu fyrir allar nútím-
astíltegundir, en engin myndanna sýndi
hjartað í táknrænni merkingu, að minnsta
kosti ekki trúarlegri.
HEIMILDIR:
Edvard Munch Werk in Schweizer
Sammlungen Kunstmuseum Basel.
Hall: Dictionary of Subjects and Symbols
in art.
Hássleinformation. Hássle Lákemedel AB
431 83 Mölndal Sverige.
J.E. Cirlot: Dictionary of Symbols.
Jime Dine: Five Themes by Graham W.J.
Beal.
Marcel Duchamp, Edited by Anne D’Ham-
oncourt and Kynaston Mcshine.
MEDICINE, An Illustrated History, By Al-
bert S. Lyonhs, M.D. and R. Joseph Petrac-
elli, 11, M.D.
The Art of the Renaissance, Peter and Linda
Murray.
The Story of Art, E.H. Gombrich.
Nils Dardel 1888—1943, Modema Museet
Stockholm.
Sven B.F. Jansson: Runinskrifter i Sverige.