Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1988, Qupperneq 20
Kanadískar og sovéskar
borgir keppa í heilsurækt
Sex kanadískar borgir munu verða valdar til að keppa
við sex sovéskar borgir — um hvor þjóðin er betur á sig
komin líkamlega! Þetta verður sex vikna dagskrá, sem ríkis-
stjórnir beggja landanna standa að.
„Heilsuræktarkeppnin", sem
verður haldin snemma næsta ár,
er byggð upp á svipaðan hátt og
sambærilegar keppnir á milli
kanadískra borga, sem haldnar
eru árlega á vorin. En þetta er í
fyrsta skipti, sem Kanada keppir
við annað land í heilsurækt — ef
undanskilin er þátttaka þess í
„Sportaid" árið 1986 til aðstoðar
fyrir þróunarhjálp í þriðja heimin-
um.
Hugmyndin að keppninni varð
til í heimsókn Ottós Jelinek, þá-
verandi heilbrigðisráðherra til
Sovétríkjanna. Hópur sovéskra
fulltrúa í heilsurækt kom til
Kanada síðastliðið vor til að fylgj-
ast með hinni árlegu keppni. „Þeir
voru yfir sig undrandi að sjá hvað
heilsurækt er stór þáttur í daglegu
lífi Kanadamanna og hvað þeir
eru almennt vel á sig komnir",
sagði Janet Connor, fulltrúi
heilsuræktarsamtaka Kanada.
„Þeim fínnst mikið skorta á,
að Sovétmenn séu eins meðvitaðir
um líkamlega heilsu sína og eru
að biðja okkur um aðstoð," segir
Janet. „Þeir eru að reyna að stuðla
að bættum lífsháttum hins al-
menna borgara — þeir ætla að
kynna sér hvernig við framkvæm-
um þetta í Kanada og reyna að
byggja það upp á svipaðan hátt
hjá sér.“ Heilsuræktarsamtök
Kanada eru nú að velja þær borg-
ir sem munu taka þátt í keppn-
inni. Þó að valið verði ekki gert
opinbert fyrr en seinna í þessum
mánuði, er sagt að Toronto og
Moskva verði ekki þátttakendur.
Það má segja að margt sé gert
til að stuðla að ferðalögum og
samskiptum á milli þjóða —
kannski getum við staðið fyrir
svipaðri keppni við nágrannaþjóð-
ir okkar.
TOYOTA
rOYOTA
FJÖLVENTLA
VÉLAR
í V
Verðfrá kr. 899.000.-*
* Verð getur breyst án fyrirvara.
.,-.i
BÍLLSEM
SKER SIG ÚR
Toyota Corolla 4wd er óviðjafnanlegur bíll með framúrstefnulegt
útlit. Sítengt aldrif, vökvastýri og kraftmikil 16 ventla vél gera hann
hreint frábæran í akstri. Toyota Corolla 4wd er sniðinn fyrir
íslenskar aðstæður - á því er enginn vafi!
Toyota - svipmikill og snar.
Ensku krárnar eru oft notaleg-
ar heim að sækja í gömlum
húsakynnum.
Síðdeg-
isdrykkja
í enskum
krám
Englendingar þykja fast-
heldnir á gamlar venjur og
mikið þarf til að þeir breyti
þeim — eins og til dæmis opnun-
artími kráa, sem hefur verið
óbreyttur I 72 ár. Ferðamenn
hafa ósjaldan þurft að snúa frá
lokuðnm kráardyrum síðdegis
— þurrbijósta! En nú hafa Eng-
lendingar breytt ríkjandi lög-
um í 72 ár og nú mega krár
hafa opið frá klukkan 11 f.h.
til 11 e.h. eins og í Skotlandi
þar sem lögum var breytt fyrir
12 árum. A sunnudögum eru
vínveitingar leyfðar fram til
klukkan þijú, þannig að veit-
ingamenn ná rétt að rýma til
eftir hinn hefðbundna „roast-
beef“-hádegisverð, áður en
krárnar opna að nýju klukkan
sjö.
Lögin voru sett 1916, aðallega
til að halda verksmiðjufólki, sem
vann að vopnaframleiðslu, frá
dryklqu. Ferðamenn og kráareig-
endur munu fagna rýmri opnunar-
lögum, en það er ekki víst að all-
ar krár — 70.000 talsins — muni
strax hafa opið samkvæmt þeim.
Það er undir kráareigendum kom-
ið hvort þeim finnst aukin velta
réttlæta, að þeir missi tveggja og
hálfs tíma hvíld síðdegis. Kráar-
eigendur í West End í London og
á ferðamannastöðum munu nýta
sér rýmri opnunartíma, en ekki
víst að það verði tilfellið á minni
stöðunum.