Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1988, Síða 18
{
heiminum. Nokkrir gæða sér á
ungverskum tertum — sem gefa
Vínartertunum ekki eftir — í
frægasta kaffihúsi Ungveija-
lands, Gerbeaud, á meðan þeir
horfa á götulífið. Ungverskt
menntafólk safnast gjaman sam-
an undir snjóhvítri styttu fræg-
asta ljóð- og leikritaskálds Ung-
veijalands, Mihály Vörösmarty,
sem torgið dregur nafn sitt af.
Götumálarar og söngvarar setja
svip sinn á torgið og ungversk
tónlist með ívafí af tataratónum
hljómar í hveiju homi. Lífíð á
torginu er núna létt og kátt, en
á þessum stað, árið 1956, hófst
ungverska uppreisnartilraunin —
blóðugur hildarleikur, sem átti sér
stað á mínu lífsskeiði og kannski
þínu.
Á Dónárbökkum
Ferðamenn þreytast seint á að
sitja á hinum fjölmörgu veitinga-
húsum á bökkum Dónár, Pest
megin og virða fyrir sér útsýnið
yfír til Kastalahæðar Buda. í
rökkurskilunum er gaman að sitja
yfír kaffíbolla eða glasi af sól-
sætu, ungversku víni og sjá þegar
Kastalahæðin uppljómast í skini
smíðajámsljósanna, horfa á bát-
ana líða hjá og hlusta á róandi
ámiðinn. íbúar á Kastalahæð risu
upp, þegar átti að rífa niður gömlu
smíðajáms-götuljósin og einn íbú-
anna tók sig til og endumýjaði
búnað þeirra í bflskúmum hjá sér
— og þau lýsa nú til yndisauka
fyrir gesti og gangandi. Upp úr
ljósaviðgerðum í bílskúmum
spratt eitt fyrsta einkafyrirtækið
í Ungveijalandi „Candelabra Inc“,
alþjóðlegt fyrirtæki er framleiðir
götuljós í gömlum ungverskum
stíl. Lýsandi tákn um breytta
tíma.
Efst á Kastalahæð
Frá svölum og í gegnum boga-
myndaðar hvelfíngar „Halász-
bástya" eða Veiðimannavirkis efst
á Kastalahæð — horfum við yfír
til Pest. Virkið gæti verið frá
miðöldum, en var í raun byggt í
byijun 20. aldar. Turnar, svalir
og bogagöng, er minna á ævin-
týrabyggingar í Ðisneylandi,
teygja sig eftir austurhlíð Kast-
alahæðar og gefa stórkostlegan
myndramma yfir til Pest — yfír
til þinghússins á Dónárbökkum —
staðsett og byggt líkt og breska
þinghúsið á Thames-bökkum.
Torg heilagrar
þrenningar
Frá upphækkuðum svölum
horfum við í hina áttina yfir lífleg-
an götumarkað við Torg heilagrar
þrenningar, þar sem Matthíasar-
kirkja stendur; þar sem súla þak-
in englum og dýrlingum teygir sig
upp í hæðir — reist sem þakkar-
gjörð af eftirlifendum svarta
dauða; þar sem riddarastytta af
Stephani 1. konungi og dýrlingi
Ungvetja gnæfír yfír torgið. A
tyrkneskum yfírráðatíma var
Matthíasarkirkju, helgustu kirkju
Ungveijalands, breytt í mosku og
kirkjan hefur gengið í gegnum
mörg mótunarskeið og geymir
rnerkt kirkjusafn. Franz Josef 1.
var krýndur hér 1867, undir tón-
spili Krýningarmessunnar eftir
Liszt.
Sagnarík stræti
Það er gaman að ganga um
brúnsteinslögðu strætin í Buda,
þar sem annaðhvert hús virðist
vera með skilti, sem sýnir að það
er á minjaskrá. Hér eru fjölmörg
lítil söfn, veitingahús og litlar
verslanir. Innigarðar frá miðöld-
um eru sérkennilega fallegir, en
þar eru víða komin útiveitinga-
hús. Konungshöllin geymir mörg
söfn og gaman er að ganga á
milli listaverka í hallargörðunum
og virða fyrir sér margfalda virk-
isveggi niður með hlíðunum.
Heita vatnið og
heilsuræktarstöðvarnar
Ifyrir 2000 árum var rómverskt
borgarvirki á Kastalahæð, nefnt
„Aquincum" eða borg vatnsins.
Upp úr iðrum jarðar á Kastalahæð
streymir heitt vatn hlaðið orku-
efnum eins og íslenska vatnið.
Fyrstu heilsuræktarstöðvar í
Ungveijalandi voru byggðar í
Buda. Rómveijar nýttu sér heita
vatnið og Tyrkir líka — hin frægu
tyrknesku böð voru eitt af því
fáa, sem blómgaðist undir 150 ára
tyrkneskri hersetu í Ungveijal-
andi — og þau standa enn! En
ungversku sléttumar geyma líka
heitar uppsprettur. í leit sinni að
olíu fundu Ungveijar aðeins heitt
vatn! En hver veit nema að það
verði jafnvel gjöfulli orkulind en
olían, þegar fram líða stundir!
Áætlanir eru um að byggja fleiri
heilsuræktarhótel við heita-vatns-
uppsprettur og eins og komið hef-
ur fram í fréttum munu íslenskir
jarðhitasérfræðingar væntanlega
aðstoða við þá uppbyggingu.
Göngugatan - Váci utca
Verslunargötunni, Váci utca í
Pest, má líkja við Bond-stræti í
London. Allan daginn er hún ið-
andi af litríku mannfólki, enda er
vöruval og verðlag freistandi. En
útstillingar í búðargluggum eru
oft villandi — verslunin er auglýs-
ir gæti verið staðsett í hliðargötu
eða lengra frá. Mikið er um list-
Póstkassar eru skrautlegir í
Búdapest.
Séð úr Veiðimannavirkinu yfir til þinghússins.
Á Vörösmarty-torgi.
Séð úr veiðimannavirki á Kast-
alahæð.
munaverslanir með úrval af nýjum
oggömlum munum — málverkum,
kirkjumunum, útskomum trévör-
um, postulíni og húsbúnaði. Hér
er um auðugan garð að gresja
fyrir þá, sem vilja gamlan fatnað.
Ungverskur handiðnaður er líka
mikið á boðstólum — útsaumaðir
og ofnir dúkar, teppi, blússur og
kjólar. En gestsaugað nemur fljótt
endalausar biðraðir fyrir framan
tvær verslanir, sportvörubúðina
Adidas og hamborgarastaðinn
Macdonald’s; byltingarkenndar
verslunamýjungar — áður for-
boðnar, sem Ungveijar sækja
mikið í!
Litríkur græn-
metismarkaður
Ævintýralegt er að heimsækja
grænmetismarkaðinn í gömlu
byggingunni, sem minnir á járn-
brautarstöð. Hingað streyma
bændur snemma á morgnana með
ferskt grænmeti og ávexti, nýja
kjúklinga og kjöt, enda er hér
stöðugur straumur íbúa með inn-
kaupakörfur. Borðin svigna und-
an litríkum ávöxtum, geislandi af
sólarhita og ferskleika — á gjaf-
verði fyrir íslending. Kaupgeta
Ungveija er líka býsna miklu
minni en okkar, en meðal mánað-
arkaup er rúmar 4000 íslenskar
krónur! Margt óvenjulegt er á
boðstólum eins og risasveppir og
margvíslega löguð grasker, sem
búið er að myndskreyta. Fiskurinn
er dreginn spriklandi upp úr ketj-
um og blóðgaður fyrir framan
viðskiptavini. En frá fiskinum er
hægt að ganga yfir í blómamark-
aðinn, þar sem allt ilmar og ang-
ar.
Margrétareyja
Ef þú þreytist á ys og þys í
kringum verslanahverfin, þá er
auðvelt að finna friðsæla vin úti
á miðri Dóná — á Margrétareyju.
Fyrir sjö öldum fól Béla konungur
IV. Margréti dóttur sína guði á
hönd í nunnuklaustri. Og prins-
essan gaf upp lystisemdir heims-
ins og settist að á litlu eyjunni,
sem ber nafn hennar. Ennþá líta
íbúar Búdapest á Margarétareyju
sem hvíldarstað frá ys og þys hins
daglega lífs. Inni í friðsælum
skógarlundum standa heilsuhæli,
útisundlaugar og íþróttasvæði.
Eyjan er samfellt útivistarsvæði
og vinsæll ferðamannastaður.
Áhugaverðir staðir
Búdapest er oft líkt við París
og vissulega minnir ein fallegasta
breiðgatan — Népköztársaság
útja — á Champs Elysées í París.
Sérhver bygging við götuna hefur
sín einkenni — gosbrunn eða
myndastyttu í garði — súlur eða
hvelfíngar á framhlið. Frægasta
byggingin er Ríkisóperan, en hana
prýða styttur af 16 óperuskáldum.
Þar ber hæstan Franz Liszt, sem
hélt fyrstu tónleika sína í Pest
aðeins 12 ára. Við enda götunnar
blasa við hin stóru listaverk á
Friðartorginu — táknrænir minn-
isvarðar um sögu og baráttu Ung-
veijalands fyrir sjálfstæði sínu. Á
miðju torginu er steintafla til að
minnast þeirra er létu lífið í ung-
verska stríðinu. Mörg merk söfn
eru við torgið. Handan Friðart-
orgsins byijar listigarður Búda-
pest, sem nær yfir 250 ekrur. Þar
er meðal annars tilbúið vatn fyrir
skemmtibáta og kastalasafn.
Ungversk veitingahús
Fyrir nokkrum árum var skorin
upp herör í Ungveijalandi gegn
óhollu mataræði, en ungverskt
bændafólk þótti neyta of mikils
feitmetis. Þessar ábendingar hafa
greinilega verið teknar til athug-
unar, en ungverskur matur er
mjög til fyrirmyndar, blandaður
bragðmikilli papriku og margs-
konar grænmeti. Ungverskt gúll-
as þekkja allir, en hvergi er það
matreitt eins og í sínu heimal-
andi. Ungversk gúllassúpa er líka
þess virði að prófa bragðið. Fiski-
súpa er þjóðarréttur hjá Ungveij-
um og þeir blanda gjarnan öllu
handbæru grænmeti út í — stund-
um fljóta beinin líka með! Erfitt
getur verið að velja á milli veit-
ingahúsa í Búdapest. Þó má nefna
tvö gamalkunn veitingahús, bæði
í Pest. „Mathias Pince" er vel til
þess fallið að eiga þar góða kvöld-
stund, en vissara að panta með
fyrirvara. Sérkennilegt andrúms-
loft hvílir yfir veitingahúsinu,
Apostolok eða Postulahúsinu í
gömlu járnbrautarstöðinni, þar
sem básamir eru tileinkaðir
postulunum með tilheyrandi
myndum af þeim og tilvitnunum.
Margt er sjá í nágrenni Búda-
pest, svo að um það mætti rita
aðra grein.
Oddný Sv. Björgvins
18