Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1988, Side 17
Borgir heimsóttar
BÚDAPEST
- litla „Parísarborgin“ í A-Evrópu
Ungveijaland virðist vera það Austur-Evrópuland sem leggur mesta áherslu á
ferðaþjónustu og kynnir hana í vaxandi mæli á Vesturlöndum. Árið 1992 verður
alþjóðleg heimssýning í nágrannaborgunum Vín og Búdapest og undirbúningur í
fullum gangi. Ferðir til beggja borganna, oftast vikuferðir, eru stöðugt að verða
vinsælli firá Norðurlöndum og farið er að bjóða upp á þær héðan. Það er 5 klst. sigl-
ing efitir Dóná milli borganna, með elsta gufiuskipi í heimi sem býður útsýni og ævin-
týralegt umhverfí, innan þilja sem utan! Vínarborg þekkja margir íslendingar —
borgin líka verið kynnt á þessum vettvangi, en Búdapest þekkja færri.
Borgarhlutarnir Buda og Pest,
sem áður voru sjálfstæðar borgir,
eru mjög ólíkir. Kastalahæðin í
Buda er síðasti endi Transdanub-
ian fjallanna; en í Pest, hinum
megin við Dóná, byrja hinar
Dúkar seldir og saumaðir á útimarkaði.
víðáttumiklu ungversku sléttur.
Buda er byggð á miðöldum, með
kastala, konungshöll, klaustrum,
virkjum og kirkjum frá fortíð. En
Pest býr yfír breiðgötum, hringt-
orgum, opinberum byggingum og
hótelum, sem fylgja öld tækniþró-
unar. í Búdapest má segja, að
mætist fegurð andstæðna, bæði í
landslagi og byggingalist, sem
gefur hinni austurrísku systur-
borg, Vín, ekkert eftir. En Aust-
urríkismenn hafa efni á að hreinsa
sínar byggingar, en hér eru því
miður margar eldri byggingar
svartar af mengun. Það er sorg-
legt að sjá stórbrotinn minnis-
varða, efst á kastalahæð; er bygg-
ir á minni einnar vinsælustu, ung-
versku þjóðsögunnar - um kon-
unginn og skógardísina — með
svargræna mengunartauma.
Gömlu smíðajárnsljósin.
Hin leynda þrá
En fáar þjóðir eru áhugasamari
um að taka vel á móti ferðamönn-
um og ungverskur málsháttur
segir: „A magyarok vendigszereto
emberek" eða „Ungverjar elska
að taka á móti gestum". Ungverj-
ar eru í eðli sínu afar léttir, en
undir yfirborðinu leynist angur-
vær þrá — að fá að vera fijálsir
og lifa samkvæmt vestrænum
lífsstíl. Þessi þrá kemur fram,
jafnt hjá leigubílstjóra og veit-
ingaþjóni, sem og hinum aimenna
borgara. Ungveijar hafa komist
næst vestrænum lífsstíl af A-
Evrópuþjóðum, en samt fínnst
þeim enn á brattann að sækja.
Götulíf á sagnaríku torgi
Á torgi í miðri Evrópu eru sam-
ankomnir ferðamenn víða að úr