Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1988, Qupperneq 14
Mercedes Benz 190 er sem fyrr glæsivagn.
notkun beltanna þægilegri. Ódýrustu gerð-
imar af 190 bflnum kosta milli 1.400 og
1.700 þúsund krónur.
Af öðrum breytingum hjá Mercedes Benz
má nefna að allar gerðir frá 200 hafa ABS
bremsukerfið innifalið í verði og reyndar
hefur það lækkað ef menn vilja fá það í 190
bflinn. Kostaði það yfír 100 þús. krónur
áður.
Chrysler
Hjá Jöfri fengust þær upplýsingar að
nokkrar útlitsbreytingar yrðu á Dodge
Shadow ES Turbo gerðinni. Meira gerist þó
í vélarhúsinu, þar er að finna 2,5 1 150
hestafla turbó vél í stað 2,2 146 hestafla
turbó vélar. Þessir bílar eru væntanlegir í
iok nóvember og verða með miklum auka-
búnaði, rafmagni í rúðum, allæsingum, þeir
eru sjálfskiptir með vökvastýri og sport-
felgum. Sömu sögu er að segja um Plymo-
uth Sundance RS hvað varðar lýsingu og
búnað en verð þessara bfla liggur ekki end-
anlega fyrir.
Dogde Spirit og Plymouth Acclaim eru
nýjar gerðir frá Chrysler en ekki er reiknað
með þeim hingað til lands fyrr en eftir ára-
mót. Þeir verða báðir með 2,5 1 vélum og
líklega fáanlegir með eða án turbó.
B I L A R
9 8 9 ■ ■
Fáar stórbreytingar
Mazda - Lancia
Mazda fjölskyldan er fjölbreytt sem fyrr
og meðlimir eru bæði stórir og smáir. Sá.
minnsti, 121 gerðin, kostar kringum 500
þús. kr. í staðgreiðslu og er með 1100 eða
1300 vél 56 eða 66 hestöfl. Hann er 3 dyra,
4 eða 5 gíra og er á 12 tommu hjólbörðum.
Mjög margar gerðir eru til af 323 bílnum,
3, 4 eða 5 dyra, svonefnd hatchback út-
færsla og sedan og skutbfll. Hann er fáan-
legur með 1300, 1500 eða 1600 vél, sjálf-
skiptur með vökvastýri og sóllúgu og yfír-
leitt þeim aukabúnaði sem menn vilja hafa.
Hér verður haldið áfram að segja nokkrar frétt-
ir af bílum árgerð 1989 sem standa til boða
á íslandi. Eins og getið var um í síðasta
þætti er það mjög misjafnt sem umboðin
geta boðið af nýjungum. Sumar gerðir bíla
Eftir
JÓHANNES TÓMASSON
voru endumýjaðar frá grunni með árgerð
1988 og hafa því lítið breyst síðan, aðrir
bjóða nýjungar núna og enn aðrir luma á
einhveiju sem á eftir að koma í dagsins ljós.
Mercedes Benz
■ Ýmsar breytingar eru sjáanlegar á 190
gerðinni frá Mercedes Benz eftir að hafa
verið á markaði lítt breyttur í fímm ár. Að
utan ber helst að nefna eins konar hlíf sem
nær frá sflsum og upp undir miðja hlið
bflsins. Látur hennar er í samræmi við lit
bflsins, ýmist dekkri eða ljósari. Þá má nefna
nýjar vindskeiðar undir stuðurum að framan
og aftan og eru þær örlítið síðari en verið
hafa. Bfllinn er einnig orðinn 28 mm lengri
og breikkar um 12 mm vegna hinna nýju
hlífa. Gluggalistum hefur og verið breytt.
Þetta eru í sjálfu sér ekki miklar útlits-
breytingar en þær gefa bflnum samt nýjan
svip.
Að innan ber helst að nefna að ný gerð
áklæða er á sætum. Öryggisbelti í aftursæt-
um falla niður ( sætið en liggja ekki laus
og hægt er að stilla nokkuð hæð á upp-
hengju fyrir belti í framsæti. Allt gerir þetta
Volvo 440 er rökrétt framhald af 340 bílnum og nú framdrifinn.
Mazda 323 - ekki stórbreytingar hjá Mazda í ár.
Sá ódýrasti, 3 dyra, 1,3 1, 5 gíra LX Super
special kostar í staðgreiðslu kr. 517 þús-
und, sé hann tekinn 4 dyra er verðið komið
í 570 þús. kr. Skutbíllinn kostar 609 þús. kr.
Þá býður Mazda enn 626 bílinn sem náð
hefur mikilli útbreiðslu hér. Hann er til í
álíka fjölbreyttu úrvali og 323, með 1,8 eða
2 1 vél, 5 gíra og ailtaf vökvastýrður. Verð-
ið nær frá 826 þús. kr. upp í yfír 1.100
þús. kr. Skutbíllinn kostar 980 þús. kr. sjálf-
skiptur.
929 bíllinn er til með 2,2 1 vél, 115 eða
136 hestöfl, sjálfskiptur með vökvastýri og
kostar 1.181 til 1.315 þús. kr.
Bílaborg býður einnig Lancia skutluna
sem svo er kölluð í þremur gerðum. Vélin
er sú sama 1000, 45 hestafla og 5 gíra
kassi og er verðið frá 370 til 390 þús. kr.
Volvo
Volvo er sem fyrr til í sömu gerðum og
Frá Chrysler kemur þessi
nýi Plymouth Sundance.