Lesbók Morgunblaðsins - 06.03.1982, Qupperneq 15
OG MINJAR
Bíldudalskirkja er frá 1906 og ein af kirkjum Rögnvalds Ólafs-
sonar arkitekts, sem teiknadi nokkrar fallegar kirkjur, þar á
medal kirkjuna á Húsavík og þjódkirkjuna í Hafnarfiröi. Mynd-
irnar tók Hannes Pálsson Ijósmyndari.
Einaf
kirkjum
Rögnvalds
Olafssonar
búin góðum gripum
Altaristaflan er frá 1916 og eftir einn af brautrydjendum íslenzkrar
myndlistar á þessari öld, Þórarin B. Þorláksson.
Bíldudalskirkja varö sjötíu og fimm ára
annan desember síðastliðinn, en Bjarni
Símonarson prófastur á Brjánslæk vígði
kirkjuna 2.12. 1906. Ásamt honum voru
viö athöfnina séra Jón Árnason sem var að
taka við sem fyrsti sóknarprestur Bildu-
dalskirkju, en þar áður var hann prestur í
Otradal. Við þessa athöfn var einnig séra
Böðvar Bjarnason prestur á Hrafnseyri.
Bíldudalskirkja stendur á lítt áberandi
stað á sléttri eyri, en hún myndi sóma sér
vel hvar sem er, því hún er hið reisulegasta
hús. Svo rúmgóð aö hún tekur um tvö-
hundruð og fimmtíu manns í sæti, sem er
mikið miðað við stærð safnaðarins þegar
hún var byggð. En þá er þess að geta, aö
Bíldudalur var í hröðum uppgangi og fór
fólki þar fjölgandi þegr mesti athafnarmað-
ur landsins Pétur Thorsteinsson var búinn
aö byggja upp staðinn í athafna og félags-
málum. Sumir kölluðu hann Arnarfjarðar-
kónginn og vissulega var hann kóngur i ríki
sínu. Maður með hugsjónir langt á undan
sinni samtíð. Þeir voru ekki á hverju strái í
þá daga. Enda gerðust hér þeir hlutir sem
hreinlega þekktust hvergi annarsstaðar á
landinu.
Hér i kauptúninu stendur minnisvarði um
þau hjónin Pétur og Ásthildi eftir Ríkharð
Jónsson. Þau hjón áttu mörg börn. Eitt
þeirra var Muggur listmálari, en honum var
reistur minnisvarði hér í sumar sem leið
eftir Guðmund Elíasson. Muggur er mjög
ástsæll með þjóðinni. Eitt verka hans er
altaristaflan í Bessastaðakirkju.
Það mun hafa kostað tólf þúsund krónur
að byggja kirkjuna hér á Bíldudal en það
mun hafa verið mikið fé í þá daga, því þá
kostuðu altir hlutir færri aura en krónur nú.
Bíldudalskirkja er úr steini með viðar inn-
réttingu. Stöpullinn er einnig steyptur með
áttstrendum timburturni. Krossmarkið efst
á turninum er í 17,5 metra hæð. Ýmsa
gamla merka muni á Bíldudalskirkja, sem
hún fékk úr Otradal. Þar var áður prests-
setur og sóknarkirkja Bílddælinga svo og
kirkjugarður. Meðal þessara muna er altar-
istafla frá 1737 með kvöldmáltíðarmynd.
Hún hangir ekki fyrir altarinu; þar er nýrri
tafla máluð af Þórarni B. Þorlákssyni 1916,
sem sýnir Maríu viö gröfina er Kristur mæt-
ir henni og segir: „Kona hví grætur þú.“
Annar forngripur kirkjunnar er prédikun-
arstóllinn frá 1699. Á honum eru myndir af
Kristi og postulunum. Þriðji forngripurinn
er skírnarfontur með mynd af skírn Jesú.
En munir Bíldudalskirkju minna ekki aðeins
á liöna tið. Inni í þessum helgidómi er stór
og mikil bók, er geymir minningar og
svipmót og æfiatriði þeirra mörgu Bílddæl-
inga er fórust með vélskipinu Þormóði
nóttina milli 17. og 18. febrúar 1943. Mun
Jens Hermannsson þáverandi skólastjóri
hafa staðiö fyrir því að þessi bók varð til.
Ennfremu eru silfurskildir sem tilheyra
þessu sjóslysi og öðrum af sömu tegund.
Rögnvaldur Ólafsson, arkitekt teiknaði
kirkjuna, en hann var fyrsti arkitekt lands-
ins. Múrarar voru Þorkell Ólafsson, Reykja-
vík og Þorsteinn Guðmundsson og Finn-
bogi Jóhannsson báðir frá Bíldudal. Tré-
smiðir voru Björn Jónsson, Kristinn Grímur
Kjartansson og Valdimar Guðbjartsson,
allir frá Bíldudal. Þessi minnisvarði þeirra
er nú oröinn sjötíu og fimm ára og vonandi
á kirkjan eftir að þjóna um langan tíma og
bjóða kynslóðum sóknarinnar skjól í
stormbyljum lífsins. Megi hún standa sem
lengst.
Þeir prestar sem hafa þjónað við Bíldu-
dalskirkju frá fyrstu tíð til þessa dags eru
Jón Árnason, Helgi Konráðsson, Jón Jak-
obsson, Jón Kr. ísfeld, Sigurpáll Óskars-
son, Óskar Finnbogason, Tómas Guð-
mundsson (þjónaði frá Patreksfirði), Hörö-
ur Þ. Ásþjörnsson, Erlendur Sigmundsson
og Þórarinn Þór (prófastur á Patreksfirði).
Núverandi prestur við Bíldudalskirkju er
séra Dalla Þórðardóttir.
Jón Kr. Ólafsson, Bíldudal.
Myndskreytingar á gamla predikunarstólnum eru ekki mádar að
ráói og hann getur vel talizt kjörgripur.
15