Lesbók Morgunblaðsins - 21.03.1981, Page 10
t
Á BÍLALEIGU-
BÍL UM SUDUR-
ENGLAND
wbörg
■\t LJiviubBum baöy
Newbörgh, ’■: St Mary's
' BendS wSSÍ&3Bindo.v “
IARE
og þeir sem aka lengst til hægri eru
áreiðanlega á 150.
Kantaraborg svíkur engan og er
sjálfsagöur áningarstaður á þessari leiö.
Á ferö eins og þessari, sem Bretinn
kallar „Do it yourself journey“ er yfirleitt
ráölegt aö sneiða hjá öllum stærri
borgum. Ævinlega er ánægjulegra aö
koma í smábæi og jafnvel þorp, — og
þær borgir, sem hafa varðveitt gamlan
kjarna eins og Rochester og Kantara-
borg.
Á þessari nýbyrjuöu verslunarmanna-
helgi var talsverö bílamergö og mann-
fjöldi í Kantaraborg og hvorki þar né
annarsstaðar í bæjum er leyft aö leggja
á götum og stöðumælar sjást yfirleitt
ekki. Þess í staö eru bílageymsluhús, eöa
sérstök stæöi, og ekki annarra kosta völ
en leggja þar og ganga síöan.
Þeir Kantaraborgarmenn eru öfunds-
veröir af gamla bæjarkjarnanum, sem er
í nánd viö þá hina miklu dómkirkju,
byggöa úr brúnum steini og ber höfuö
og heröar yfir öll mannaverk á þessum
staö. Þaöan má heyra erkibiskups
boöskap, en ekki nam ég hann í þetta
skipti og heföi kannski haft hann aö
engu. En ólíkt væri skemmtilegra aö búa
í Reykjavík, ef gamli bærinn væri
eitthvaö í líkingu — eöa hliöstæöur — viö
miðhluta Kantaraborgar. Rammger virk-
ismúr hefur í fyrndinni verið hlaöinn utan
um bæinn eins og hann var þá og
stendur múrinn víöa. En viö Kristskirkju-
hliö þar sem mætast stræti heilags
Péturs og heilags Georgs (þess er drap
drekann) er indælis torg, þar sem bílum
er meinaöur aögangur, en veitingahús
allt um kring og serverað út á torgiö, sé
þess óskað. Húsin eru yfirleitt í Tudor-
stíl, allavega skekkt og mjög myndræn.
Þaö var nú komið framá miöjan dag og
mál að fá sér eitthvaö í gogginn. Þaö var
kjúklingur og bjór á snyrtilegum staö
meö útsýni yfir torgið. í Ijósi þess aö
Kantaraborg er ekki stór bær, er
athyglisvert, aö þar eru 32 hótel og á
fjölda heimila er auk þess hægt aö
kaupa gistingu og morgunverö. Eins og
annarsstaöar, þegar kemur út fyrir
London, er veröiö á sæmilegum hótelum
um 10 pund á mann fyrir sólarhringinn,
en auövelt er aö finna hótel á 7—8 pund
og gisting meö morgunverði í heimahúsi
er yfirleitt á 5 pund.
Búöirnar hafa opiö á laugardögum og
19.
Hastings er meiriháttar sumarleyfastaður með urmul af hótelum. Þetta er viðfeldinn bær með
gamlar minjar, baðstrendur, frumstæða útgerð og aðstöðu fyrir allskonar sport.
I Hastings: Efri myndin: Bryn-y-mor hótelið, sem áður var glæsilegt íbúðarhús. Að
neðan: A sjávarkambinum standa þessi einkennilegu þurrkhús, þar eru pöbbar og
fisksölur.
eftir ösinni þar aö dæma, nota Kantara-
borgarbúar laugardaginn til þess aö
verzla í Debenhams eöa Marks &
Spencer.
Suður aö Ermarsundi
Nú var um ýmsar leiöir að velja til
Hastings, þar sem áfangastaður haföi
veriö ákveöinn um kvöldið. Þaö teygöist
meira á tímanum en mig grunaði og því
breytti ég útaf þeirri upphaflegu ætlun
aö halda áfram austur til Dover, hins
kunna ferjustaöar yfir Ermarsund frá
fornu fari. Þess í staö var ákveöið aö
sneiöa af dálítinn alboga og halda beint
suöur aö Ermarsundi eftir mjóum sveita-
vegi framhjá Barham, Elham og Lym-
inge. Enginn hefur nokkru sinni heyrt né
séð þessi þorp, en þeim er það
sameiginlegt, að þar er á hverjum staö
ágæt krá, húsin viröast komin til ára
sinna, en umvafin trjágróðri og allsstað-
ar er snyrtilegt.
Þar heitir Folkstone, sem komiö er til
sjávar; Ermarsundið var slétt og blátt
eins og heiöartjörn og vegurinn liggur
meöfram sendinni strönd. Alltaf er nú
viökunnanlegt aö vera meö hafiö í nánd,
og nokkur stuðningur, því minni hætta
er á aö fara villur vegar. Þarna eru víöa
dágóöar baöstrendur, sýndist mér; eink-
um viö Dymchurch. Þar voru byggð
varnarmannvirki til aö taka á móti
hugsanlegri árás frá Napóleoni á sínum
tíma, en mikiö var allt friösælt á þessum
ágústdegi og töluveröur fjöldi á strönd-
inni.
Rye: túristar og te-
hús í stað smyglaranna
Næsti áfangastaöur er Rye, gamall og
frægur smábær á hæö viö ána Rather;
þangaö er svo sem hálftíma akstur og
um leiö er skilið viö héraöiö Kent og
komið í Austur-Sussex. Ekkert pláss á
þessum slóöum ku vera myndað önnur
eins ósköp, og kemur ekki á óvart, því
þaö er malerískt í meira lagi; göturnar
örmjóar og lagöar sæböröu hnullungs-
grjóti, en húsin viröast flest slúta
framyfir sig og veröa þeim mun fyrirferö-
armeiri, sem fjær dregur undirstööunni.
Þar eru þó nokkrar byggingar frá
Sturlungaöld og ekki sjást jjess merki aö
neinn hafi þurft aö byggja uppá nýtt á
þessari öld.
Rye var annálaður smyglarabær, en
þaö var meöan sjórinn náöi þangaö
uppeftir. Nú hefur ströndin hopaö og
staöurinn oröinn smyglurum óhagstæö-
ur. Eftir standa nokkrar svokallaöar
„smyglarakrár“ og heitir sú veigamesta
The Mermaid. Þaö er raunar veitingahús
og gatán sú arna er alveg dýrleg; blómin
uppeftir veggjum. Tehúsin í Rye eru
alveg sér á báti; standa í rööum uppi í
hæðinni, en kirkjan aö sjálfsögöu efst.
Svo og turn til aö fylgjast meö Napó-
leoni. Allur var nú varinn góöur.
Sérstaklega er óhætt aö mæla meö
The Flushing Inn, veitingahúsi frá því
allar götur á 15. öld og þykir ekki mikiö í
Rye. í hverju brezku plássi er þess
minnst meö lotningu, ef kóngurinn eöa
drottningin hafa einhverntíma í aldanna
rás látiö svo lítiö aö hafa smá viödvöl.
Þeim finnst ennþá þó nokkuð til þess
koma í Rye, aö Elízabet drottning kom
þar viö og drakk vatn úr Drottningarlind.
Það væri út af fyrir sig skiljanlegt, ef þaö
væri sú Elízabet, sem nú situr á tróni. En
svo var nú ekki; þetta var nefnilega
Elizabet I og þessi merkisatþurður átti
sér staö sumarið 1573. Þessvegna er aö
sjálfsögöu The Elizabethan Restaurant
meö tilhlýðilegu svipmóti. Og á ná-
kvæmlega sama tíma og Þorleifur lög-
maöur var aö brenna galdramenn vestur
á fjöröum, stóö mikið galdrafár í Rye. Nú
hafa menn snúiö sér aö meinlausari
viðfangsefnum, þeir brenna leir, búa til
keramik og reka hótel.
Mikill myndarbragur
hjá frú Sally
Þaö var á degi úthallanda, aö viö
kvöddum Rye og tókum aö elta þær
merkingar, sem leiða mann heilu og
höldnu til Hastings. Þar var næturstaöur
til reiöu hjá frú Sally, sem rekur
einstaklega heimilislegt og um leiö
glæsilegt hótel á hæöarbrún ofarlega í
bænum. Þaö heitir Bryn-y-mor, sem er
eldgamalt Keltamál og þýðir Hús viö sjó.
Þarna haföi verið meiriháttar glæsivilla
meö tilhlýöilegum glæsibrag í stofum á
neöri hæö, en svefnherbergi uppi. Sally
keypti slotiö fyrir nokkrum árum og
breytti því í hótel. Herbergiö var í
annexíu viö hliðina, en garöurinn fyrir
framan er í einu oröi sagt stórkostlegur.
Þetta líkist allt saman fremur því aö búa
í virðulegum klúbbi; boröaö meö af-
gömlum silfurhnífapörum og viö reynd-
um kola, eöa einhvern flatfisk, sem var