Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1976, Side 13
stór almenningsbirgi, hiaðin
vistum og þar eru jafnvel
albúin sjúkrahús.
Tökum til dæmis smábæinn
Veyier, suður af Genf. Þar
liggur ákveðinn vegur sem all-
ir bæjarbúar þekkja, niður f
jarðgöng, unz komið er að
þykkum stál- og steinsteypu-
hurðum, sem birginu er lokað
með. Þar er geymdur fatnaður,
áhöld, matur og hvaðeina sem
þarf til að geta lifað af f birg-
inu f talsvert langan tfma.
Stjórnstöðin er máluð f glað-
legum fitum og þar er bjart og
vistlegt og unglingarnir f bæn-
um koma þangað tif þess að
leika borðtennis. Þarna er
mjög fullkomið eldhús, að
mestu úr ryðfrfu stáli, svefn-
skáfar fyrir barnaskólann, sem
þar er einnig ásamt sfmstöð.
Að sjálfsögðu er vel fyrir
loftræstingu séð og sérstök raf-
stöð bfður tilbúin. Þarna eiga
sem sagt ailir fbúar Veyier,
sem eru 6 þúsund, að geta
hafst við f að minnsta kosti tvo
mánuði ef með þarf og styrk-
leikinn er nægur til þess að
þola þrjár loftþyngdir, eða
eina megatonns sprengju, sem
spryngi f aðeins mffu f jarlægð.
I stærri borgum hafa verið
gerðar sérstakar ráðstafanir;
til dæmis er neðanjarðarbirgi
fyrir 4000 manns undir járn-
brautarstöðinni og ný skauta-
höll þar f borginni er búin
birgi handa 2000 manns. Bæði
þar og annarsstaðar eru troð-
fullir skápar af ábreiðum, dýn-
um, kfæðnaði, meðöfum og
hverskyns áhöldum. Samtals
eru tilbúin 600 sjúkrahús á vfð
og dreif um landið.
Svissneski herinn er ekki
stór, en einnig hann getur svo
að segja horfið undir yfirborð
jarðar, ef þörf krefur. Búið er
að hola innan heilu f jöllin, svo
þar eru flugvélaskýli hvað þá
annað. Að sjálfsögðu er Sviss-
lendingum umhugað að bjarga
einnig þvf, sem landið er frægt
fyrir: Vmiskonar smáiðnaði,
ekki sfzt úraframleiðslunni —
og laumufénu, sem gróðabrall-
arar og f járplógsmenn úr öll-
um heiminum geyma f sviss-
neskum bönkum, verður
komið nægilega djúpt f jörðu
til þess að það verði óhult.
Þetta er skipulag, sem gerir
ráð fyrir þvf versta — þvf það
góða skaðar ekki eins og kunn-
ugt er. Möguieikarnir eru
fyrir hendi; kjarnorku- og
vetnissprengjurnar eru til
reiðu, hvenær sem einhverjum
nýjum Hitler þóknast að nota
þær f brjálæði valdakapp-
hlaupsins. Þetta eru almanna-
varnir, sem eru meira en nafn-
ið tómt.
Þættir úr íslenzkri
skáksögu
eftir Jón Þ. Þór
I síðasta þætti bar skýrt nokkuð frá sím- og loftskeyta-
skákum, sem hér tiðkuðust á árum áður. Ekki er mér
fyllilega kunnugt um það hvenær Íslendingar fóru fyrst
að tefla þannig, en það mun hafa verið skömmu eftir að
simasamband komst á um landið. Mikið var teflt sim-
leiðis hér á landi, skákfélög tefldu sin á milli og einnig
átthagafélög, hagsmunasamtök og skólar. Keppni sumra
félaga var árviss viðburður um áraraðir. í þessum þætti
verða birtar tvær gamlar simskákir, hin fyrri var tefld í
keppni Skákfélags Akureyrar og Taflfélags Hafnarfjarðar
árið 1934. Þar var teflt á 10 borðum og hlutu Hafn-
firðngar 7,5 v. en Akureyringar 2,5.
Hvítt; Adolf Ingimarsson (AK.)
Svart: SigurðurT. Sigurðsson (Hafn.)
jtalski leikurinn
1. e4 — e5 2. Rf3 — Rc6, 3. Bc4— Bc5, 4, 0-0 — d6,
5. d3 — Rf6 6. Bg5 — h6, 7. Bh4? — g5, 8. Bg3 —
h5, 9. Rxg5 — h4, 10. Rxf7 — hxg3 11. Rxd8 — Bg4,
12. Re6 Bxf2, 13. Hxf2 — gxf2, 14. Kxf2 — Bxd1,
15. Rxc7 — Ke7, 16. Rxa8 — Hxa8, 17. Rc3 — Bh5,
18. Rd5 — Rxd5, 19. Bxd5 — Bf7, 20. c4 — Bxd5, 21.
exd5 — Rd4 og svartur vann nokkrum leikjum siðar.
Siðari skákin var tefld i simskákkeppni milli Esk-
firðinga og Norðfirðinga 5. janúar 1935.
Hvítt: Lárus Stefánsson ((Eskif.)
Svart: Jóhannes Stefánsson (Norðf.)
Möllersbragð
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bc4 — Bc5, 4. c3 —
Rf6, 5. d4 — exd4, 6. cxd4 — Bb4, 7. Rc3 — Rxe4, 8.
0-0 — Bxc3, 9. d5 — 0-0, 10. bxc3 — Ra5, 11. Bd3 —
Rf6, 12. Da4 — b6. 13. Dh4 — g6, 14. Bh6 — He8,
15, Hae1 — Hxe1, 16. Hxe1 — Bd7, 17. Bg5 — Kg7,
18. Rd4 — h5, 19. c4 — c5. 20, He3 — cxd4 21. Hf3
— De8, 22. Bxf6 — Kg8, 23. Dg5 — De1. 24. Bf1 —
Kh7, 25. Hh3 — Ddl. 26. g4 — Hg8, 27. Hxh5 —
gefið.
Efst: Stigvél og hverskonar annar fatnaBur er meSal þess sem Svisslendingar
eiga I birgjunum slnum. Hér að ofan sýnir umsjónarmaður ýmislegt af þvi,
sem Þ° r er taliS gott að hafa, allt frá litlum mótorum til hamra og axa.
HurSirnar eru þykkar eins og á peningaskápunum. þer sem Svisslendingar
geyma misjafnlega vel fengna peninga úr öllum heimi. i þessu birgi komast
fyrir allir fbúar bæjarins Veyier, 6 þúsund talsins.
Pétur Örn Björnsson
ÞREYTA
Um eyktir daganna
liðast vansvefta búkur.
Einungis ummyndað tómið
þungað geislum sólar
sýnir þroska dagsins.
Hvað er skuggi minn langur?
Eigrar líkamans myrkur,
undan hnignandi birtugeislum
lokkuðum áfram: Einungis til að deyja
í faðmi grásvartrar steinsteypu,
alla leiðina heim?
Hefur skuggi hreiðraðum sig
í velktum fötum
fjarlægs rúms?
Ef svo er vildi ég spyrja
um hvort ég sofi
eða vaki?