Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1976, Blaðsíða 4
Þór Jakobsson
veðurfræðingur
( rannsóknar-
leiðangri í íshaf-
inu við Baffins-
land. Skipið er
fast f (snum og
sjálfur stendur
Þór á (snum
framan við skip-
ið.
Olíklegt að tæknin
breyti veðurfarinu
Öraunhæf draumsýn, f bili að minnsta kosti: Stundum hafa menn
fmyndað sér, að vfsindamenn gætu með háþróaðri tækni ráðið gangi
lægða og hæða. En á þvf bólar ekki, kannski sem betur fer.
álíka að stærð og Reykjanesið.
Kunningi minn einn vinnur ein-
mitt við slíkar rannsóknir. Fyrir
þeim vakir aðallega að koma í veg
fyrir mikla þurrka eða slökkva
skógarelda, en slikt getur verið
mikils virði.
Ný heyrast stundum raddir um
að ný fsöld sé f aðsigi?
Ég held að menn ættu að vera
varkárir í slíkum fullyrðingum.
Að minu áliti er frekar um veður-
farssveiflur að ræða en nýja ísöld.
En mér dettur i hug dæmi um
það, hvernig visindapólitík er
stundum rekin á röngum grund-
velli. í slíkum málum er oft um að
ræða milljónir dollara, sem deilt
er um hvernig eigi að veita. Þá
getur það gerst að talsmenn hinna
ýmsu vísindagreina fara að skelfa
fólk og fullyrða eitthvað sem þeir
vita þó alls ekki með vissu og án
þess að hafa sína visindamenn
með í ráðum. Þetta er barnaleg
ákefð og höfð í frammi til að
klófesta fjármagn. En þvi er likt
farið um visindamenn og skáldin
— allt kemst upp ef það sem
undir býr er ekki „ekta“.
Nýlega var gerð tilraun til þess
að koma á áberandi þingi i
Ottawa, þar sem útlista átti mikil-
vægi veðurfarssveiflna og hversu
áriðandi væri að taka tillit til
þessa í sambandi við verklegar
framkvæmdir. Til þingsins var
boðið 1200 stjórnmálafrömuðum
og viðskiptajöfrum, en þeir voru
ekki fleiri en 18 sem fannst
ástæða til að þiggja boðið. Þarna
var sem sé skotið yfir markið, því
enn er langt í land þar til hægt er
að spá fyrir um veðurfarssveiflur
í framtíðinni.
Geturðu sagt okkur nokkuð sér-
stakt um ný viðhorf varðandi
veðurfræði?
Ef til vill mætti nefna það ný
viðhorf, að nú er farið að tala um
ýmsar greinar náttúruvísindanna
i meira samhengi en áður var.
Aður var þeim vandlega skipt í
sérstakar greinar. Nú skilja menn
betur samhengið í þessu náttúru-
kerfi okkar — andrúmsloftinu,
hafinu, hafísnum, jöklunum,
lífrænum efnum, sólinni o.s.frv.
Allt hefur þetta áhrif á orku-
búskapinn, svo þessar greinar
eiga því saman. Mönnum er sem
sé farið að skiljast æ betur að
jörðin er ein heild.
Um veðurfræðina má segja að
þar bíða vissulega mörg og að-
kallandi verkefni. Hún er
heillandi framtíðarfag fyrir
menn, sem vilja leggja fyrir sig
náttúruvísindi, ekki síst fyrir þá
sem áhuga hafa og ánægju af
jarðeðlisfræcji, stærðfræði,
tölvum, eða umhverfinu yfirleitt.
©
Hrafn Gunnlaugsson
GRAFARINN
MEÐ
FÆÐINGAR-
TENGURNAR
i
öxina brýnir ískaldur vindur
liggja nú hálshöggnar útlendar rósir
flaksast um gapastokk gráar hærur
gular af blóði
s
föl ert þú ástin fálát og hljóð
finnurðu ekki lyktina af lyfjum og blóði
langt er F upprisu
langur er svefninn
láttu þig dreyma um Ijóshærða elskhuga
III
þegar hendur þínar
vaxa inn F hár mitt
heitir skuggar
F svartasta skammdeginu
þegar stormurinn steytir hnefann
og húsið stynur af gleði
þegar viðatturnar
opnast F örmum þínum
rís heimurinn úr ösku sinni
VI
ó hlátrar sem nötra
niður F iður jarðar og brotna F brimi hafsins
hverja nótt reyndum við
að þrýsta okkur hvort inn F annað
engdumst F krepptum örmum
eins og ormar F feitu kjöti
Your worm
is your only emperor for diet:
we fat all creatures else to fat us,
and we fat ourselves for maggots:
yourfat king and your lean beggar
is but variable service — two dishes,
but to one table: that's the end
svart hár þitt
ský af glansandi fiskiflugum
flaksast F vindinum
suðandi út um brotinn glugga
fyllir vit mín hvltum vtum
fjötraður F örmum þinum
fjötraður F IFfi þFnu
fjötraður við dauðann
fjötraður við dauðann
fjötraður við dauðann
grafarinn beitir fæðingartöngunum af öryggi
yfir opinni gröf og erfið fæðing
glýja og myrkur
grafir eftir grafir
á fleygiferð um himingeiminn
fæða nýja IFkama
nýtt Ijós, nýtt efni F nýjan dauða
J’ai essayé d'inventer
de nouvelles fleurs, de nouveaux astres,
de nouvelles chairs, de novelles langues.
J'ai cru acquérir des pouvoirs surnaturels.
Eh bien! je dois enterrer
mon imagination et mes souvenirs!
Une bella gloire
d'artiste et de conteur emportée.