Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1969, Side 14
'■'•''/'/vV/VÍZ'í
II
Nú þegar hinn amsríski Mus-
tang hefur verið á boðstólurn
í ýmsum breyttum myndum í
fimm ár og valdið miklum
breytingum á útlitibíla aimennt
þá þykir ensku Fordverksmiðj
unum tími til kominn að fara
að uppskera eitthvað álíka. Ný
lega er kominn á markaðinn
Ford Capri 1600, hin evrópsk,a
útgáfa af Mustang, eins og það
er látið heita í auglýsingum.
Með sanni má segja, að þarna
hefur Bretum tskizt að teikna,
eða að hanna, ættum við
k;annski öllu fremur að segja,
sérlega smekklegan sportbíl,
sem vissulega minnir á Must-
ang, en er þó allur talsvert
minni. Það sem fyrst og fremst
leiðir hugann að Mustang eru
hlutföllin í lengd framhlutans
á móti afturhlutanum, og svo
brotið á hliðinni.
Ford Capri hefur verið mjög
lofsamlsga tekið í Evrópu og
enda þótt h.ann sé stundum
nefndur sportbíll vegna útlits-
ins, er það raunar ofmælt. Capri
er líkt og venjulegur Must-
ang miklu fremur sportlegur
bíll, en vantar að sjálfsögðu
alla þá orku og getu til að
standa undir sportbílsnafni.
Líkt og Mustang er Capri nokk
urs konar málamiðlun fyrir
sportlega sinnaðan ökumann,
sem verður að geta tekið fjöl-
skylduna með sér og hefur ekki
efni á tveggja sæta bíl.
Ford Capri 1600 GT er 4.26
m á lengd og 1.64 á breidd.
Því miður eru aðeins 11 cm
undir hann sem er í það lægsta
fyrir okkar aðstæður, þó er það
ekki minna en á Fiat 1100 til
dæmis. Þyngdin er 920 kg. svo
það leiðir að líkum, að liann er
sæmilega vel búinn með 4
strokka, 93 hestafla vél, sem
komið er fyrir á venjulegan
hátt að framan, en drif á aftur-
hjólum. Viðbragðið úr kyrr-
stöðu í 100 km liraða tekur að-
eins 12.9 sek, sem er svipað og
í fremur kraftmiklum, amerísk-
um bíl og hámarkshraðinn er
160 km/klst. Líkt og Mustang
er Capri fáanlegur með sex
gerðum mismunandi sterkra véla
Skarpasta útgáfan, Ford Capri
2000 GT er með 115 hestafla
vél, viðbragðið er 11.7 sek í
100 km hraða og hámarkshrað-
inn 171 km/klst.
Allar gerðirnar eru fáanleg-
ar hvort sem er með gólfskipt-
ingu og þá með fjögurra gíra
kassa, eða sjálfskiptingu. Raf-
kerfi er 12 volta, disk,abrems-
ur að framan, borðabremsur að
aftan. Að framan er svonefnd
McPhersons-upphenging, en
stífur baköxull.
Ford Capri fær hvarvetna
lofsamlega dóma fyrir góða
akstursleiginleika. Framsætin
eru vel formuð, en aftursæti
nánast aðeins fyrir börn. Verð
ið er merkilega hagstætt mið-
að við verð á bílum almennt,
eða frá 330 þúsund krónum.
BMW 2500
BMW
2500
Jafnframt aukinni v-slmegun
í Evrópu, leggj.a bílaverksmiðj
urnar aukna álicrzlu á vandaða
og tæknilega vel búna bíla og
sífellt stærri hópur mjög vand-
fýsinna kaupenda setur ekki fyr
ir sig, þó þeir séu dýrir. Samt
er það verð í flestum löndum
nánast hlægilegt miðað við nú-
verandi bílverð á ísl.andi, sem
í rauninni jafngildir innflutn-
ingsbanni. Þær gerðir venju-
legra fólksbíla sem hinir vand
fýsnu kaupendur i Evrópu taka
framyfir eru einkum Mercedes
Benz, hinar dýrari gerðir af
Citroén, Alfa Romo, Rover,
Jagúar og Rolls fyrir fáeina
útvalda, en uppá síðkastið hef
ur BMW komið eins og raketta
upp á þennan stjörnuhiminn.
Með nýju gerðunum, 2500 og
2800 sl haust, má segja, að
BMW hafi tekið sér örugga
stöðu í úrvalsflokki.
A heimamarkaði er hann í
beinni samkeppni við Merced-
es Benz, en höfðar þó meira til
yngri manna, þar sem hann er
léttari og snarpari og hefur
sportlegri eiginleika. Allur frá
gangur er hinsvegar á þann
v-eg, sem verður, þegar Þjóð-
verjar Ieggja sig alla fram.
Að undanförnu hefur mátt
sjá BMW 2500 hér á göt-
unum og sver hann sig óneit-
anlega í ættina, en hefur þó
verið breytt talsvert frá hinum
venjulegu gerðum, 1800 og 2000
Hvort sú breyting er til bóta
verður að teljast smekksatriði.
Að aka BMW 2500 er hrein
unun og nefna margir gagnrýn
endur sem að staðaldri skrifa
um bíla í fagrit, að þeir minn-
ist þess vart, að hafa ekið öllu
skemmtilegri bíl. Margt veldur
því. Innréttingin er svo frábær-
lega vönduð og falleg, að öku-
maðurinn kemst strax í sér-
staka stemningu, bara við að
setjast undir stýri. 1 öðru lagi
kemur í ljós, þegar bíllinn
er tekinn af stað, að þ.arna er
hreinræktaður gæðingur á ferð.
f þessum gerðum innleiðir BMW
6 strokka vél með knast-
ásnum ofaná. 2500 er með 170
hestafla vél, viðbragðið úr kyrr
stöðu er 10.4 sek og hámarks-
hraðinn 190 km/klst. 1 dýr-
ustu útgáfunni, 2800 er 190 hest
afla vél. Viðbragðið liðlega 9
sek og hámarkshraðinn 200 km
klst.
BMW 2500 er af hóflegri
stærð, lengd 470, breidd 175 cm
hæð 145. Hæðin undir hann er
15 cm, sem er að vísu ekki
mjög mikið, en þó ekki minna
en á f jölda mörgum bílum. Eins
og nálega alltaf í vönduðum
bílum, eru framsætin aðskildir
stólar, sem stillanlegir eru á
marga vegu, en aftursætið er
rúmgott fyrir þrjá f.arþega.
HAGALAGÐAR
Ráðin glíma.
Áður en Páll (lögmaður Vída
lín) fór að heiman, ritaði hann
hjartnæmt bréf og fagurt vin-
um sínum öllum í einu lagi. En
heldur mun honum hafa verið
þumgit innabrjósts, er hann fór
og er sem á horuum hafi verið
glímuskjálfti og hafi hann í
engu ætlað sér að vægja til við
óvini sína í ferð þessari. Þegar
hann sté á skip, orti hann þessa
alkunnu vísu:
Eins er leiks að bíða, börn,
befö’lum drottni tíma.
Þegar ég kemst yfir þessa tjörn
þá er mér ráðin glíma.
(Saga íslendinga).
Fráfall Jóns og Bjarna.
Níels Fúhrmann amtmaður
hafði skipað Jón Pálsson Vída-
lín fyrir Vaðlasýslu um sum-
arið. Hann reið um haustið með
Steini biskupi norður til
Munkaþverár og aug’lýsti bréf
sitt að Grund í Eyjafirði. Síð-
an reið hann til Möðruvalla og
ætlaði þaðan vestur til Hóla.
Var með honum Jón sonur Þor-
láks prests í Miklagarði ...
ungur maður vel tvítugur og
mannvænlegur og annar
sveinn einn, er í skóla
gekk ungur, Þorlákur Londe-
mann . . . Þeir riðu 12. okt. frá
Möðruvöllum til Myrkár. Þar
kvað Jón vísiu þessa, er þó er
eignuð páli lögmanni föður
hans:
Ó, hvað timinn er að sjá
undarlega skaptur
hvað mun dagiur heita sá,
er hingað kem ég aftur.
Gamall spádómur.
Kunnað hef ég lengi erind-
ið, sem á eftir fer, og minnir
miig siú saga fylgidi, að hún-
vetnskur eða skagfirskur bóndi
endursendi Þjóðólf með þeim
kviðlingi. Hannes Þorsteinsson,
sem er svo stálminnugur, kveð-
ur eigi hafa komið fyrir í sinni
tíð, væri þá eldra, og eigi man
hann að prentað sé. Hafa má
það yfir eigi síður en margt
annað og segi þeir gerr um, er
betur vita:
Sjón'líti‘11 á sjötugsaldri
sinnir lítið blaðaskvaldri
oft sem veldur úlfúð kaldri
og atar tíðum sannleikan(n)
Innlend stjórn mun öld
Sturlunga
endurvekja mörgum þunga,
illræmd mjög sú uppástunga
annan dóm þá hljóta kann.
Það var í svipuðum anda,
þegar einhver góður höldur í
Skaftafellssýslu sagði við dr.
Þorvald Thoroddsen:
„Skýldi koniungurinn ekki
gera það fyrir okkur, ef maður
bæði hann ve'l, að aftaka þetta
... alþing“.
(N. Kvl. 1910).
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
4. mai 1969