Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1968, Blaðsíða 8
Hippar velja sér afkáralega búninga í fatamiðstöð, þar sem
slíkum fötum er útbýtt.
Á ensku eru þeir kallaðir
Hippies og í Bandarikjunum-
einum saman er talið, að þeir
séu rúmlega milljónarfjóröung-
ur. Yfirgnæfandi meirihluti
þessa fólks eru unglingar, 15
til 19 ára og flestir hafa þeir
einhverra liluta vegna hlaupizt
að heiman. Þeir leita saman með
al sinna líka og stundum í geysi
stórum hópum. Hreyfingin byrj
aði fyrir tveim árum í hverf-
inu Haigh Ashbury í San Fran-
sisco venjulegu miðstéttarhverfi
þar sem bjó fjöldi stúdenta og
listamanna. Þarna hafði gripið
um sig allmikil Bítladýrkun og
eiturlyfið nýja, LSD, var þar
um hönd liaft. Menn gengu
þarna eins og í öðrum heimi
með Ijóðbrot eftir Bob Dylan
á vörunum og skynjuðu, að nýtt
viðhorf og ný heimspeki var
að ryðja sér til rúms, eða svo
fannst þeim. Þeir þóttust skilja
sitt eigið tungumál, þ.e. þeir
hafa sín eigin nöfn á þeim lilut-
um, sem þeir umgangast. Þeir
skerða hvorki hár né skegg og
hafa sem minnst saman að sælda
við sápu og vatn. Venjulegum
fatnaði liafa þeir fleygt til að
verða gjaldgengir og annað-
hvort klæðast þeir peysum og
gallabuxum, piltar jafnt sem
stúlkur, eða allskonar afkára-
legum samsetningi, náttfötum,
rósóttum fötum og þar að auki
skreyta þeir sig í andliti með
málningu: sumir eru alflúraðir
rósum, líkt og Sölvi lieitinn
Helgason hefði komizt í andlit-
ið á þeim með sína sérkenni-
legu skreytilist. Þar af er dreg-
ið nafnið „flower child“ blóma-
barn, sem er eitt af viðurnefn-
um þeirra.
Hipparnir eru að sjálfsögðu
hjartanlega andsnúnir hernaði
og láta fremur varpa sér í fang
HIPPAR
\AXANDI ÞJÓÐFELAGS-
NANDAMÁL I BANCA-
RÍKJUNUM OG VÍEAR
Það er varla gleði, sem lýsir af andlitum
þeirra en miklu fremur tómleiki. Þeir
hvorki þvo sér né greiða og gamlir ein-
kennisbúningar eru þ e i rra eftirlæti. —
Sumir mála sig skrautlega í framan og
parið hér tii hægri hefur komið sér not-
arlega fyrir í forarvilpu.
að tæknin væri einskisnýt, sam-
keppnin viðbjóðslega, en hin
sanna útópía væri sú, að leita
að sálarfriði og rósemi og sann
leikann mundi maður helzt
höndla með hjálp örvandi lyfja.
Hatrinu, sögðu þeir, væri hægt
að útrýma með ást og fegurð
og frjálsu atferli.
Það stóð ekki á lærisveinum.
Einskonar undirkúltúr myndað
ist í öllum stærstu borgum
Bandaríkjanna: stærstu söfnuð
irnir í New York, San Frans-
iscó og Cambridge í Massacliu-
setts.
Þessir söfnuðir leituðu athvarfs
í skítugum kjöllurum, sem kall
aðir eru „crash pads“: þarsofa
þeir og eyða jafnvel dögunum,
því fílósófían gengur útá að hafa
sem minnst fyrir stafni utan
það að útvega sér örvandi lyf
eða eiturlyf, helzt LSD. En
eiturlyf eru dýr og Hipparnir
geta ekki keypt mikið í einu.
Önnur lyf af sama tagi eru ,pot‘
(marijuana) „coke“ (cocaine)
„smack“ (heroin) „speed“ (met
hedrine) og LSD heitir á þeirra
máli sýra (acid).
Hipparnir hafa að mörgu leyti
elsi en skrá sig í herinn. Þeir
krýna andstæðinga sýna blóm-
sveigum og kyssa þá jafnvcl,
en friðarhugsjónin á þó ekki
algerlega uppá pallborðið inn-
byrðis og ekki alls fyrir löngu
voru framin tvö morð í Hippa-
nýlendu í New York. Þar voru
myrt piltur og stúlka, sem raun
ar var af svellríku foreldri, en
hafði eins og fleiri hlaupizt að
heiman til þess að lifa með
Hippunum.
Hipparnir hafa koinið á fót
eigin málgagni: það heitir „The
Oracle“ Véfréttin. Þeir hafa svo
kallaðar „Diggers Free Stores“
einskonar fatamiðstöðvar, þar
sem fátækir Hippar fá skraut-
lega fatnað fyrir lítið sem ekki
neitt og sumstaðar eru samtök
um útveganir á örvandi lyfj-
um. Allmiklu fleiri stúlkur eru
í þessum hópum en piltar, en
samlíf þeirra og ástir eru eftir
frjálsu formúlunni og að stúlk-
ur taki þátt í frjálsum ástum
„er ein af leikreglunum“. Verði
stúlkur barnshafandi er leitað
til skottulækna með fóstureyð-
ingar.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
3. marz 1968