Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1967, Síða 15
„ALLT ER FERTUGUM FÆRT
Einhverjir þeir furðuiegustu
menn, sem lagt hafa fyrir sig
hljóðfæraleik eru én efa hin-
ir bandarísku MOTHERS OF
INVENTION .Meðlimoir hljóm-
sveitarinnar eru nokkuð komn
ir til aldurs sín.s, eins og raun-
ar sjá má á myndinni eða allt
að fertugu, og eru þeir hinir
undarlegustu bæði í orðum og
tiltekturn. Nú ekki alls fyrir
löngu héldu þeir til Englands
til hljómleikahalds og annarra
afreka. Sá þeirna, er vakið hef
ur hvað mesta athygli er for-
vígismaður hljómsveitarinnar
FRANK ZAPPA, en hann hef-
ur meðal annars látið birta
mynd af sér í víðlesnu tíma-
riti, sitjandi á klósettskál,
kviknakinn og önnum kafinn
gjörða sinna. Á áðurnefndum
hljómleikum var leik þeirra og
sviðsframkoimu ágætlega tek-
ið af áheyrendum þó sumum
þeirra hafi fundizt klúryrði
Franks keyra um þvembak á
köflum.
Skrípaleikurinn í Háskólabíói
Miðvikudaginn 8. nóvember
hópuðust reykvískir unglingar
saman í Háskólabíói til að sjá
og heyra íslenzk átrúnaðargoð
sín leika „listir“ sínar.
Saimkoma þessi, sem sumir
vildu kalla hljómleika, ein-
kenndist af s'kipulagsleysi, suði
og braki í mögnurum, hlaup-
andi mönnum yfir sviðið í
miðjum lögum og skrípalátum.
Á „hljómleikunum" komu
frarn ýmsar hljómsveitir, en
engin þeirra verður talin í hópi
hinna beztu hér á landi. Hljóm
sveitin SÁLIN, með Sigurð
Árnason í broddi fylkingar,
kom einna bezt út úr kvöldinu
en Sigurður er einn þeirra fáu
manna hérlendra sem ná hin-
um réttu tökum á áheyrendum
■
Ljósm.: K. Ben.
SPENCER DAVIS.
Lítið sem ekkert hefur
heyrzt til Spencer Davis upp
á síðkastið og má því ef til viil
um kenna missi þeirra á snjall
ajsta manni hljómsveitarinnar
Steve Winwood sem yfirgaf
hljómsveitina fyrr á þessu ári
en Steve sem er afburða snjall
hljóðifæraleikari og lagasmiður
hefur nú ákveðið að ganga
listabrautina með sína eigin
hljómsveit. Að sjáliflsögðu varð
þetta uppátæki Steve’s mikið
áfall fyrir hljómisveitina en
Spencer lagði ekki árar í birt
heldur stofnaði nýja hljóm-
sveit. Hin nýja „Spencer Dav-
is Gnoup“ hefur nú nýlega ver
ið á hljómJeikaferðalagi í
Bandaríkjunum sem þótti tak-
ast með ágœtum og um þessar
mundir vinna þeir félagar að
nýrri L.P. plötu sem væntan-
leg er á markaðinn á næst-
unni.
og fá þá til að taka virkan
þát’t í því sem hljómsveitin er
að giera. Dúmbó sextett, sem
kiom þarna fram án Sigursteins
Hákonarsonar, stendur alltaf
fyrir sínu svo og Ernir þó ekki
sé hægt að eegja að þeir hafi
fallið inn í kramið þetta kvöld
því að þó flutningur laga sé
með ágætum verður ekki sagt
'að hljórhsveitin sé beint til
þess fallin að leika á hljóm-
leikum.
Eftir að hafa orðið vitni að
atburðum sem þessum er sann
arlega ástæða til að vona að
slíkt eigi ekki eftir að endur-
taka sig og eru það vinsamleg
tilmæli til þeirra hljóðfæraleik
ara sem í framtiðinni eiga
eftir að standa að slíkum
hljómleikum að stilla ekki
hljóðfæri sín á meðan kynn-
irinn er að tala, því að til
hvers er að hafa mann til
slíkra starfa ef ekkert kernst
til skila af því sem hann seg-
ir?
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15
19. nóv. 1967