Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1967, Síða 13
NÝ FORM
HVERT STEFNIR
ÚTLIT
BÍLSINS?
■■:i'
GTO er sérútgáfa af Ponti»ac með 360 Biestafla vél. I»etta er einn liezt
teiknaði bíllinn í ár, svo vel að ítalir gætu verið fullsæmdir af,
en lakara er, að teikningunni virðist bvo ‘til alveg stolið frá Maserati,
ítölskum sportbíl.
Meðan Ford, General JMotors og Chrysler hafa gefið ikaupendum kost
á sportleguin sérútgáfum, hefur American Motors reynt að byggja vel-
gengni sína á Ilambler; ódýrum bíl og harla hversdagslegum. hessi stefna
liefur iiú leitt licið af sér, að fyrirtækið er «á heljarþröm og þá er gripið
til þess að teikna og framleiða fallegan sportbíl, sem VJavelin nefnist og
á að heppa við Mustang og aðra slíka. Javelin, sem þýðir ispjót, þykir
hafa heppnazt vel og mun láta nærri að hann isé með allra bezt Iteiknuðu
amerísku bílunum í ár. Seljist hann vel, er líklegt að American Motors
lifi af kreppuna
Svo er að sjá, að árgerðir
1968 boði ekki almennt neina
byltingu í útliti bíla. Þó eru
á einstáka stað að gerast
merkilegir hlutir, sem eiga
eftir að hafa áhrif síðar. ítal-
ir eru hinir leiðandi form-
smiðir í bílaiðnaðinum, en
bezt gerðu bílar Itala eru að
dómi flestra kunáttumanna
hinir fegurstu í framleiðslu
heimsins. Þar má nefna teg-
undir eins og Lamborghini,
Iso Rivolta, Maserati, Ferrari
og hinn nýja Fiat Dino.
Straumlínan er ráðandi í þess
um bílum svo og mikil ná-
kvœmni í hlutföllum milli
lengdar, breiddar, hæðar.
í öllum háneyzluþjóðfélög-
um Vesturlunda eru bílar
orðnir það mikil álmennings-
eign, að sífellt fleiri gera
kröfur um sérstæða og per-
sónulega bíla. Verksmiðjurn-
ar leggja minni áherzlu nú
orðið á bíla, sem eru í œtt
við hluti eins og þvottavél-
ar. Sé bíllinn algerlega stand-
ard, verður að minnsta kosti
að gefa kaupandanum kost á
að kaupa í hann fjöldann all-
an af viðb ótarhlutum. Þá
getur farið svo að bíllinn
verði að enduðu nokkuð dýr,
en kaupandanum finnst hann
vera með bíl í höndunum,
sem er ekki eins og allir hin-
ir.
Eftir að Mustang kom á
markaðinn í Bandaríkjunum
1964, hafa flestir hinir stærri
bilaframleiðendur lagt kapp á
það sem þeir kalla ,,The per-
sonal car“, það er að sam-
eina útlit sportbílsins, dágóða
vélarorku og þolanlegt rými
í aftursæti fyrir farþega, eða
Framhald á bls. 14
Hér er einn þeirra, sem váða ferðinni í bílaiðnaðinum, Maserati
Ghibli ítalskur sportbíll d sérklassa og einstaklega vel teiknaður í alla
staði. Líklegt er að þetta sé form morgundugsins; fleiri og fleiri 'bílar
birtast með útlit, sem er eitthvað í þessa átt.
Iso Rivolta hefur lengi verið talinn frábærlega vel teiknaður bíll og
nú kemur hann með nokkuð nýtt, sem hingað til hefur þótt erfitt, »n það
er að rbæta við fullkomnu aftursæti og þar af leiðandi aukinni iengd, en
halda hinu sportlega útliti. *Það hefur tekizt sæmilega, en þó hefur eitt-
hvað tapazt. I*etta imun vera |hraðskrei«fasti fólksbíll, sem nú er fram-
leiddur; góður fyrir Um það bil 225 km. hámarkshraða.
Oldsmobile Toronado 1966 markaði tímamót vegna þess að iliann var
með framhjóladrifi og útlitið mjög nýstárlegt. (Svona er Toronado í ár og
hefur engu verið (breytt nema andlitinu og þær breytingar virðast fremur
hafa verið til skfaða.
Að ofan: Á Ítalíu er nýlega liafin framleiðsla á þessari sportútgáfu
af Fíat 124 og þykir hann að ýmsu leyti nýstárlegur og vinstaklega fallegur
a.m.k. aö innan.
Eitthvað í þessa átt stefnir þróunin, jafnvel með marga af liinum venju-
legri gerðum. Þessi sérútgáfa af Fiat Dino, teiknaður hjá Pininfarina á
Ítalíu, var á bílasýningunni miklu i London í h,aust. Hægt er að lyfta
upp þakinu aftanverðu og opna tafturendann.
NSU Ro 80 er líklega merkasta bílnýjungin í ár. Þar er á ferðinni
algerlega ný gerð af mótor, svonefndur ’Wankelmótor, wem er snúnings-
hreyfiil án strokka og byggist á allt öðru. En ekki aðeins vél er bylting,
heldur er útlitið í senn nýstárlegt og sportlegt. (Frágangur allur er mjög
góður, enda á NSU Ro 80 að keppa við BMW 2000 á heimamarkaði.
19. nóv. 1967
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13