Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1966, Page 7
Ja, söng-urinn, hann er vort mál, sagð’l karlinn forðum. Eflaust er þetta siglfirzka æskufólk sam-
mála karli. (Myndirnar tók Ól.Ragnarsson.)
Hér á æskan heima“
Löngum hafa nöldur-
samir siðferðispost-
ular hrópað um það himin-
hátt, að æska vors lands hafi
misstigið sig geipilega á
þeim troðningi siðgæðisins,
sem eldri kynslóðin hefur
markað henni. Máli sínu til
stuðnings bendir þetta góða
fólk m.a. á svallsamkomur
þær, sem unglingar hafa
undanfarin ár efnt til í
skauti guðsgrænnar náttúru.
Hitt er mála sannast, að
þeir eru einnig til, sem
varpa fram þeirri spurningu,
hvort það sé nokkuð undar-
legt, að unglingarnir hagi
sér svona, þar sem þeir eigi í
engin skjól að venda í hjá-
stundum sínum. Lítið sé
gert fyrir blessaða ungling-
ana; ýmsar ráðagerðir þessu
vonda máli til úrbótar séu
aðeins til á pappírnum.
Okkur lék því hugur á að
sannprófa það, hvort ofan-
greindir menn færu ekki með
staðlausa stafi. Við höfðum
haft nasaþef af því, að í Siglu-
firði væri starfrækt gróskumik-
il æskulýðsstarfsemi. Bæri þar
einna hæst Æskulýðsiheimili
þeirra Siglfirðinga, sem talið
er ein fullkomnasta stofnun
sinnar tegundar hérlendis.
f>að var öldungis ekki komið
að tómum kofanum, þegar við
gengum á vit Ólafs Ragnarsson-
ar, ungs Siglfirðings, sem nú er
búsettur hér í borg, í þeim til-
gangi að fá nánari vitneskju af
starfsemi fyrrnefnds heimilis.
Er eigi að kynja, þótt piltur
kunni frá mörgu að segja í sam-
bandi við Æskulýðsheimilið,
því að meðan hann var búsettur
nyrðra var hann ein af aðal-
driffjöðrum æskulýðsstarfsem-
innar í heimabæ sínum.
Ólafur sýndi okkur kvik-
mynd, sem fjallar um Æsku-
Jýðsheimili Siglufjarðar og
starfsemi þess. Það var kvik-
myndaklúbburinn Linsan í
Siglufirði, sem tók myndina. Á
meðan við horfðum á kvik-
myndina sagði Ólafur okkur
sögu Æskulýðsheimiiisins og
skýrði okkur frá starfsemi þess.
Hann komst m.a. svo að orði:
Æskulýðsheimili Siglu-
fjarðar eyða hinir yngri ibúar
bæjarins tómstundum sinum
við leiki eða störf að margvís-
legum óhugamálum sinum.
Hugmyndin um heimilið
skaut fyrst upp kollinum í
Lionsklúbb Siglufjarðar. Var
hugmyndinni mjög vel tekið af
hálfu bæjarbúa, og fyrir at-
beina Lionsklúbbsins völdu tíu
menningarfélög í bænum full-
trúa úr sínum hóp og þessir
fulltrúar, sem síðan hafa nefnt
sig Æskulýðsráð Siglufjarðar,
bundust samtökum um að koma
hugmyndinni í framkvæmd.
Æskulýðsheimilið hóf siðan
starf sitt í febrúarmánuði árið
1963, svo að heimilið er þriggja
ára um þessar mundir.
Framkvæmdastjóri Æsku-
lýðsheimilisins er Júlíus Júlíus-
son. Öll hin margháttaða starf-
semi heimilisins hvílir verulega
á herðum hans. Má með sanni
segja, að hann hafi unnið mikið
og óeigingjarnt starf, sem seint
mun verða fullþakkað.
Já, það má með sanni segja,
að í heimilinu eigi æskan
heima. Á vegum Æskulýðsráðs-
ins eru starfandi margir klúbb-
ar, sem eru til húsa í heimilinu.
Sérhver klúbbur ihefur sína
eigin stjórn, sem er skipuð af
meðlimum sjálfum. Hver klúbb-
ur hefur síðan sinn leiðbein-
anda, sem jafnan er einhver
fullorðinn, sem ber eitthvert
skynbragð á málefni viðkom-
andi klúbbs.
f þeim klúbbum, sem
einna hæst ber, er ljósmynda-
klúbburinn. Meðlimir hans eru
verið klúbbsmeðlimum innan
handar með góð ráð, en hann er
sjálfur mikill frímerkjasafnari.
Eins og ljósmyndaklúbburinn
hefur frimerkjaklúbburinn hald
ið sýningu.
Af öðrum klúbbum má nefna
málfundaklúbbinn, bridgeklúbb
inn og myntklúbbinn. En áhuga
mál meðlima hans er eins og
nafnið gefur til kynna að safna
mynt. í módelklúbbnum eru
þeir, sem áhuga hafa á því að
sýsla við að gera módel, mála
þau og snurfusa, sér og öðrum
til ánægju, því að þessir ungu
völundar hafa haldið sýningu á
smíðisgripum sínum.
K,
að sjálfsögðu mjög áhugasamir
um Ijósmyndatöku og framköll-
un mynda. Mjög góð aðstaða til
ljósmyndagerðar er í heimilinu
og nota áhugasamir ljósmynd-
arar það óspart. Það má geta
þess, að meðlimir klúbbsins
hafa efnt til sýningar á mynd-
um sínum, svo og happdrættis.
Miðarnir voru allnýstárlegir;
tölusettar ljósmyndir. Ágóðan-
um af sýningunni og happdrætt-
inu vörðu þeir til kaups á fork-
unnarfögru málverki, sem þeir
síðan afhentu Æskulýðsheimil-
inu að gjöf.
Á vegum taflklúbbsins eru
haldin regluleg taflmót í heim-
ilinu. Er jafnan mikil þátttaka í
mótum þessum. Árlega er keppt
um titilinn „Skákmeistari
Æskulýðsheimilisins“. Milli
móta æfa meðlimir sig í tafllist-
inni. Stundum koma góðir gest-
ir í heimsókn og tefla við þá
fjöltefli.
Starfsemi frímerkjaklúbbsins
er einnig mjög gróskumikil.
Vikulega eru haldnir fundir,
eins og raunar hjá öllum klúbb-
um, en þess á milli bera menn
saman bækur sínar og ræða um
frímerki og frímerkjasöfnun.
Formaður Æskulýðsráðsins, sr.
Ragnar Fjalar Lárusson, hefur
i-venpeningnum er öldungis
ekki gleymt. Auk þess sem
stúlkurnar taka verulegan þátt
í starfsemi framangreindra
klúbba, hafa þær innan sinna
vébanda tvo klúbba, sem eru
einungis ætlaðir þeim. Það er
snyrtiklúbburinn og föndur-
klúbburinn. Snyrtiklúbburinn
er nokkurs konar visir að tízku-
skóla. Þar er stúlkum kennt
hvernig þær eiga að snyrta sig,
greiða hár sitt, ganga rétt og
margt fleira, sem öllum stúlk-
um er hollt að kunna. í föndur-
klúbbnum dunda stúlkur hins
svo góð, að jafnan eru haldnar
tvær sýningar hvern föstudag.
Ekki má heldur gleyma hinu
svonefnda opna húsi, sem nýtur
mikilla vinsælda. Þá koma
unglingarnir saman og eyða
tímanum við leiki, spil og sitt-.
hvað fleira, sem til fellur.
Hlustað er. á hljómplötur og
stiginn dans, þegar verkast vill.
Um helgar eru svo jafnan haldn
ir dansleikir.
Einnig má nefna þær skemmt
anir, sem Æskulýðsráðið held.-
ur fyrir bæjarbúa. Þær eru,
auk hinna margvíslegu sýn-
inga, eins konar kynning á
starfseminni. Þar koma img-
lingarnir fram með sitthvað
til skemmtunar, sem æft og
undirbúið hefur verið í heim-
ilinu.
Ekki er þó öll starfsemi
Æskulýðsráðsins miðuð við
skemmtanir einar. Æskulýðs-
félag Siglufjarðarkirk-ju hefur
einnig fengið húsnæði í heimil-
inu með starfsemi sina.
Efri hæð hússins hafa svo
skátarnir í bænum til afnota
og vinna þar að málefnum
sínum.
Það nýjasta í sambandi við
æskulýðsstarfsemina þar
nyrðra er, að í haust var
stofnað Ungtemplarafélagið
Setið að spilum í vistlegum salar kynnum Æskulýðsheimilisins.
vegar við föndur og tágavinnu.
Fyrir utan alla þessa klúbba-
starfsemi er margt annað gert í
heimilinu til fróðleiks og
ánægju. Hvern föstudag eru
haldnar kvikmyndasýningar.
Sýndar eru myndir frá ýmsum
löndum, jafnt fræðslu- og gam-
anmyndir. Aðsókn hefur verið
Hvönn. Markmið félagsins er
skemmtanir og ferðalög án
áfengis.
Þ
Þessi mynd er af Æskulýðsheimili Siglufjarðar. Stórt og glæsi-
legt hús, miðað við liöfðatölu staðarbúa.
egar hér var komið
sögu var kvikmyndin að enda
komin. Það stóð líka heima,
því að Ólafur taldi sig vera
búinn að fræða okkur um það
helzta, sem viðvíkur Æsku_
lýðsheimilinu í Siglufirði, þó að
margt fleira mætti gjarnan
minnast á.
Eftir að hafa horft á kvik-
myndina og hlýtt á sögu Ólafs,
urðum við sammála um gildi
slíks heimilis. Það má með
sanni segja, að æskulýðsheim-
ili þeirra Siglfirðinga sé þeim
til sóma. Að okkar dómi hef-
ur slíkt heimili margt sér til
ágætis. Æskulýðsheimili veita
unglingunum aðhald. Þau eru
staðir, sem unglingarnir geta
leitað til í hjástundum sínum.
Fer vel á því, að við sláum
botninn í þessa grein með því
að bera fram þá frómu ósk, að
flest bæjarfélög fari að dæmi
þeirra Siglfirðinga.
— b.sív.
13. fébrúar 1966
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS