Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1957, Qupperneq 16
300
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
+ 6 5
V 4 2
♦ G 9 8 4 2
* K D G 4
“ * A K 8 7 2
V A *AD!
s ♦ -
+ 10 3 7 6 5
* D 9 4
V G 10 9 6 5
* K 7 3
* Á 3
Austur sagði 4 spaða og S slær út
H G. Þann slag fær V á H K og svo
kemur láglauf, en N fær slaginn á
L G. Hann slær svo út trompi og A
drepur og aftur kemur lauf. Þann slag
frar S og hverju á hann nú að slá út?
Ekki dugir hjarta, því að A fær þann
slag og slær svo út laufi. Þótt S drepi
með S D og slái svo út trompi aftur,
þá er enn einn. spaði eftir í borðinu
tii þess að drepa lauf. Nákvæm yfir-
vegun sýnir, að S verður að slá út
S D. Það er ekki hættulegt, því að
þegar næsta lauf er trompað í borði,
þá er S 9 orðin hæsta spil í þeim lit
Með þessu móti tapar A spilinu, miss-
ir 3 slagi í laufi og einn í trompi.
♦ G 10 3
V K 7 3
♦ ÁD 1065
+ 92
HVÍTASUNNA í LUNDÚNUM
Úr bréfi skrifuðu í Lundúnum 30.
maí 1907: — Við lifum í vellystingum
praktuglega, því eg á hér ekki svo fáa
ágæta vini, en um þetta leyti er hér
allt hringlandi vitlaust undir Hvíta-
sunnuna; þá skiftir um seasona (árs-
tíðir), þá hamast allir skólamenn við
prófstörf, ríkisfólkið er að flytja út á
búgarða sían, eða norður og niður, og
businessfólkið er að saldera bækurnar
— allt áður en stórveizlu-seasonin
byrjar í júní. Satt að segja er þetta
Lundúnalíf drepandi; maður lifir á
sífelldu rápi og flögri, og þeir sem
vilja finnast, geta ekki fundizt. —
(Matth. Joch.: Bréf),
GRÆNLANDSFJÖLL — Eitt af kvæð-
um Gríms Thomsen er um það, er
Sveinn Pálsson læknir brauzt yfir
Jökulsá á Sólheimasandi ófæra, til þess
að bjarga konu i barnsnauð. Hefir
skáldinu fundizt mjög til um það af-
rek, en í kvæðislok segir hann:
Þó að liggi lífið á
láta þeir núna bíða
í jökulhlaupi Jökulsá
og jakaburði að ríða.
En mætti Grimur Thomsen nú líta
upp úr gröf sinni — mundi hann þá
ekki hafa gert bragarbót og orkt kvæði
um það er Björn Pálsson flugmaður fór
á lítilli flugvél norður til Scoresby-
sunds að sækja þangað konu í barns-
nauð? Slíkt afreksverk mundi eflaust
hafa verið honum að skapi, því að eigl
er það heiglum hent að fara ókunn-
ugir norður í siika Jötunheima.
Grönd mörg við Grænland
grá eru og heldur flá,
auðnin er alhljóð,
af sér talar ei það skraf,
ströndin er steind kennd,
stórlyndur auður sjór,
gjalfursöm gnaps elfur,
geigar um þögul feigð.
Svo kvað Fornólfur. Og hér á mynd-
inni sést Grænlandsströnd hjá Scores-
by-sundi, himingnæfandi fjöll og
hættuleg í dimmviðrum, hafís úti fyr-
ir og hvergi flugvélarhöfn. — Myndina
tók Björn Pálsson er hann fiaug norð-
ur þangað.
iÞRÓTTIR UNGLINGA
Fyrir 70 árum (1887) báru þeir Ó.
Briem og Þorv. Kjerulf fram á Al-
þingi frumvarp um að árlega skyldi
veittar úr landsjóði 20.000 kr. til þess
að koma á fót og styrkja almenna
unglingakennslu í landinu annars stað-
ar en í kaupstöðum. Skyldi þar veitt
kennsla í réttritun, reikningi, sögu,
landafræði og uppeldisfræði. „Enn-
fremur séu unglingar látnir temja sér
likamsæfingar, svo sem glímur, knatt-
leika, skautaferðir og skíðaferð".
JAÐRAKAN
Á Suðurlandi er fugl, er jaðrakan
heitir; hann heldur einkum til í mýr-
unum í kringum Þjórsá og ölfusá. —
Sunnlendingar þykjast geta ráðið af
söng þessa fugls, hvort ár sé færar eða
ófærar, því að segi hann: „Vadd’ ekki,
vadd’ ekki“, þá er áin ófær, en ef
hann segir: „Vættu þig, vættu þig“,
þá er áin fær. Víst er um það, að
rödd fuglsins er misjöfn, og líkist söng-
ur hans orðum þeim, sem tilfærð hafa
verið. — (Þjóðs. Ó. D.)
I
i