Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1954, Qupperneq 16
*
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
f 364
María, móðir Jesú,
mannkvnið, sem er von
enn hefur ekki skilið
þinn undarlega son.
Og lítið þynrist þokan
um þennan undramann.
Þú s.jálf hefur eflaust ekki
alltaf skilið hann.
Og oft hefur revnt á alla
ástiið þína og trú.
Og hans vegna hefur enginn
harmað meira en þú.
En ska?rt var röðulskinið
og skipt var um þinn hag,
er fékkstu að ná hans fundi
liinn fyrsta páskadag.
María, móðir Jesú,
hve mikið gafst þú oss:
Farandfræðara snauðan,
sem festur var á kross,
en smáður, hrakinn, hrjáður,
sitt hlutverk lék svo vel,
að breiðzt hefur þaðan birta
og bros — yíir kvöl og hel.
María, móðir Jesú,
vér munum þinn fórnarstig.
Hver kona skyldi þér krjúpa,
hver karlmaður elska þig.
Og það sé vor þakkaróður
til þín og heitasta von
að eiga skáldgáfu og skyggni
til að skilja þinn mikla son.
GRETAR FELLS
KALDAGLÍMA
Einu sinni bar svo til, að menri heldu
glímufund nálægt sjó, og voru þeir allir
ungir menn og oflátar miklir. Einn bar
þar af öðrum, og þótti honum sér fátt
ófært; manaði hann félaga sína til að
GAMALT HÚS — Hús þetta stendur við Smiðjustíg í Re.vkjavík og er nú rúm-
lega 100 ára gamalt. Það hét upphaflega Eyólfshús, kennt við Eyólf smið
Þorvarðarson, sem reisti það. Seinna eignaðist húsið Bogi Smith, elzti sonur
M. Smith konsúls og konu hans Ragnheiðar Bogadóttur frá Staðarfelli. Bogi
var lærður trésmiður. Bjó hann þarna nokkur ár ásamt konu sinni Oddnýu,
systur séra Jóhanns Þorsteinssonar í Stafholti. En svo fluttust þau vestur að
Arnarbæli á Fellsströnd og þar bjó Bogi til æviloka. Þá mun Bjarni frá Esju-
bergi hafa eignast hús þetta og bjó hann þar um hríð. Svo eignaðist það
Pétur Pétursson bæargjaldkeri og bjó þar fjölda mörg ár og má því kalla að
aðalskrifstofa bæarins hafi verið þar þann tima. Eftir Pétur eignaðist sonur
hans dr. Helgi Pjeturss húsið og átti til æviloka. Nú hefir KRON keypt þessa
eign og hefir selt litla húsið til niðurrifs eða burtflutnings. — Reykjavíkurbær
ætti að eiga forkaupsrétt að öllum gömlum húsum, og þetta hús þyrfti hann
að eignast. Hér þarf að komast upp byggðarsafn og einhvern tíma verður að
byrja á því að bjarga gömlu húsunum frá glötun. Nú er tækifærið að bjarga
elztu skrifstofu bæarins. (Ljósm. Gunnar Rúnar). •
glíma við sig, en enginn þeirra þorði
og hældist hann þá um. Allt í einu kall-
ar einn þeirra upp: „Glímdu við þenn-
an!“ og bendir um leið fram á tanga,
sem var skammt frá. Hinir litu allir
við, og sáu þeir, að dýr eitt í mannslíki
stóð á tanganum; þóttust þeir vita, að
þetta mundi vera hafmaður. Maðurinn
lét ekki segja sér þetta tvisvar, hljóp
fram á tangann og réðist á hafmann-
inn; lauk svo að hann tætti oflátung-
inn allan í sundur, og hljóp svo í sjó-
inn aftur (Ól. Davíðsson).
GUFUNES
Þegar þeir Árni og Páll gerðu Jarða-
bókina, voru taldar fjórar hjáleigur
með Gufunesi og tvíbýli á tveimur
þeirra. Á þessum sjö heimilum var þá
22 manns, en áhöfnin var alls 22 kýr
og 1 kvíga, 20 ær, 3 sauðir tvævetrir
og 17 veturgamlir, 8 hestar og 4 tryppi.
Undan kúnum hafa ábúendur fengið
áburð til að halda túnskæklunum í
nokkurri rækt, en ekki meira. — Nú
eru í Gufunesi um 100 manns, og þar
af framleiddur áburður til túnræktar
og nýræktar um allt land.
VÍSA BJÖRNS A SKARÐSÁ
Páll Pálsson amtskrifari eignar Birni
Jónssyni á Skarðsá þessa vísu. Jón
Grunnvíkingur hefur hana í orðabók
sinni, en nefnir ekki höfundinn:
Margur boga fyrir sér fann,
fýsir og að spenna þann,
upp að toga ekki kann,
er að roga þó við hann.