Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1954, Blaðsíða 1
KVONFANG OG ÆVILOK
Jörundar hundadagakonungs
NÝKOMIN er út í Sidney í Ástralíu ævisaga Jörundar hunda-
dagakonungs, eftir Frank Clune og P. R. Stephensen. Er þetta
mikil bók, um 480 blaðsíður í stóru broti og sett með smáu letri.
Heitir hún „The Viking of Van Diemens Land. The stormy Life
of Jörgen Jörgensen“. Er þar rakin saga hans frá vöggu til grafar,
eftir beztu heimildum. Annar höfundanna, Mr. Frank Clune rit-
höfundur, gerði sér meira að segja ferð hingað til Reykjavíkur
fyrir tveimur árum til þess að kynnast staðháttum hér og glöggva
sig betur á byltingarsögunni. En lengst dvaldist. Jörundur í’Ástralíu
og lengsti kafli bókarinnar er um veru hans þar. Hér birtist út-
dráttur úr lokaþættinum.
fÖRUNDUR hafði nú verið þrjú
ár í lögregluliðinu og átt lengst-
um erfitt starf úti á víðavangi í
eltingaleik við sauðaþjófa og
blökkumenn. Þóttist hann nú eiga
það skilið að fá einhver verðlaun
fyrir dygga þjónustu. Einn af félög-
um hans hafði fengið 2000 ekrur
lands og annar 1000 ekrur. Þeir
höfðu fengið 150 Sterlingspund á
ári meðan þeir voru í lögreglulið-
inu, en Jörundur ekki nema 25
Sterlingspund. Að vísu hafði fang-
elsistími hans verið styttur, þegar
hann fór í lögregluliðið, og yfir-
völdin gátu litið á það sem nokkurs
konar verðlaun.
Samt fekk hann nú 100 ekrur hjá
Spring Hill í Jericho. Landið var
ekki metið nema á 5 shillings hver
ekra og þóttist Jörundur sjá á því,
að það væri ekki neitt kostaland.
Taldi hann sig því illa afskiftan.
En á hinn bóginn þótti honum vænt
um að vera nú orðinn jarðeigandi.
Og þótt hann kynni ekkert til jarð-
yrkju, sá hann sig í anda um-
kringdan matjurtagörðum og ökr-
um, búandi í snotru húsi, lifa á
mjólk og ostum frjáls og óháður
og þurfa ekki að hafa neinar áhyggj
-ur af lífinu framar.
lyORAH CORBETTvar írsk
bóndadóttir. Hann sá að hún
mundi geta orðið sér að ómetan-
legu liði til þess að þessi draumur
rættist. Hann var nú nær 51 árs að
Jörundur
(Máluð sjálfsmynd í Þjóðminjasafni)
aldri og tími til þess kominn að
staðfesta ráð sitt. Hann var nú