Lesbók Morgunblaðsins - 13.09.1953, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
509
Þingið stóð í viku og var haldið í
Gagnfræðaskóla Austurbæar, en í sarn-
bandi við það voru ýmsir fundir sér-
stakra félagsdeiida innan sambandsins.
Helztu fulltrúar erlendir, svo sem
stjórnarfulltrúar, þingmenn, opinberir
embættismenn, blaðamenn o. fl. voru
boðnir til forseta íslands að Bessa-
stöðum. Ríkisstjórnin bauð til mið-
degisverðar á Þingvöllum, Reykjavík-
urbær til kaffidrykkju hjá Sogsvirkj-
un og Stórstúka íslands til kaffi-
drykkju að Jaðri.
Norræna þingmannasambandið helt
fund í Ósló og sóttu þann fund af
íslands hálfu: Sigurður Bjarnason,
Gunnar Thoroddsen, Bernharð Stefáns-
son og Stefán Jóh. Stefánsson (21.)
Aðalfundur Prestafélags Suðurlands
var haldinn að Selfossi (29.)
Magnús V. Magnússon, skrifstofu-
stjóri í utanríkisráðuneytinu, fór utan
til að sitja fund utanríkisráðherra
Norðurlanda, í forföllum Bjarna Bene-
diktssonar utanríkisráðherra (30.)
MANNFAGNAÐUR
Verslunarmannaíélag Reykjavíkur
stóð fyrir hótíðahöldum í Tivoli um
verslunarmannahelgina. Stóð sá mann-
fagnaður í þrjá daga og þótti vel tak-
ast (5.)
Þjóðhátíð Vestmanneya átti að hefj-
ast 7. ágúst og var þar mikill viðbún-
aður, enda búizt við fjölda gesta. Bn
þennan dag var stórviðri og rigning,
svo ekkert gat orðið úr hátíðahöldun-
um og hvorki varð farið til Eya í lofti
né á bátum. Hátíðin fór svo fram næstu
Brezku þing
mennirnir
Greville
Howard og
Edward
Ewans, sem
hingað
komu
daga, en um næstu helgi þar á eftir,
var haldin „eftirhátíð“, því að þá kom
margt skemmtiferðafólk til Eya með
Esju.
Fegrunarfélag Reykjavíkur helt að
vanda upp á afmæli höfuðborgarinnar
og stóð sú hátíð í tvo daga. Þá fór
fram úthlutun verðlauna fyrir bezt
hirta og glæsilegasta skrúðgarð í
Reykjavík. Fyrstu verðlaun hlaut garð
ur Hilmars Stefánssonar bankastjóra,
en 16 garðar aðrir fengu viðurkenn-
ingu (19.)
FERÐALÖG
Vegna þess hvað tíðin var góð, var
óvenju mikið um ferðalög hér innan
lands. Gengust fyrir hópferðum Ferða-
félag íslands, Ferðaskrifstofa ríkisins,
Ferðaskrifstofan Orlof, Páll Arason
og Guðmundur Jónasson bílstjórar og
auk þess ýmis félög. Leitaði fólk venju
fremur upp í óbvggðir og voru einu
sinni talin 74 tjöld í Landmannalaug-
um.
ÍÞRÓTTIF.
íslendingar háðu landsleik í knatt-
spyrnu við Dani og fór sú keppni fram
í Kaupmannahöfn. íslendingar töpuðu
með 4:0 (11.)
Þá kepptu íslendingar í landsleik í
knattspyrnu við Norðmenn. Fór sá leik-
ur fram í Bergen og töpuðu íslend-
ingar með 3:1 (14.)
Friðrik Ólafsson varð skákmeistari
Norðurlanda í skákmóti í Kaupmanna-
höfn. Fékk hann 9 vinninga (af 11), en
sá sem næstur honum gekk fekk 7V^
vinning (14.)
Helgi Eiríksson skrifstofustjóri vann
„Olíubikarinn'* í útsláttarkeppni Golf-
klúbbs Reykjavíkur (16.)
Meistaramót íslands í Frjálsum í-
þróttum fór fram á Akureyri (18.)
Fyrsta knattspyrnumót á grasvelli
fór fram í Reykjavík. Var það 4.
flokks keppni (20.)
Þrettán ára stúlka, Astrid dóttir
Agnar Kofoed-Hansen flugstjóra, lauk
svifflugsprófi, yngst allra er það próf
hafa tekið (20.)
Bæakeppni í frjálsum íþróttum fór
fram milli Keflavíkur og Selfoss og
báru Keflvíkingar sigur af hólmi
(25.)
Meistaramót Reykjavíkur í frjálsum
íþróttum var háð og setti Kristján
Jóhannesson þar nýtt met í 10 km
hlaupi. Guðmundur Lárusson varb'
tugþrautarmeistari. Glimufélagið Ár-
mann vann mótið (25.)
Á héraðsmóti UMF sambands Kjal-
arnesþings fór fram keppni í starfs-
íþróttum, bæði fyrir menn og konur
(25.)
Keppt var í íslandssundi í Nauthóls-
vík í Skerjafirði (500 metra sund í
sjó, frjáls aðferð). Keppendur voru
tveir og sigraði Helgi Sigurðsson (25.)
Knattspyrnufélagið Fram fór til
Þýzkalands og keppti þar á fjórum
stöðum í þessum mánuði, sigraði tvisv-
ar og tapaði tvisvar.
FJÁRMÁL OG VIÐSKIPTI
Verðjöfnun á olíu og bensíni um allt
land kom til framkvæmda í byrjun
k
Friðrik Ólafsson
skákmeistari Norðurlanda