Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1952, Blaðsíða 10
494
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
En þrátt fyrir hörkuna verður
altaf að endurnýa þessa hluti
vegna þess hve ört þeir slitna í við-
ureign sinni við grjótið. Þarna
kemur enn nýr og stór innflutn-
ingsliður hja ykkur, þegar þið far-
ið að nota sementsverksmiðjuna.
Eftir því sem hún vinnur meira,
eftir því þurfið þið á meira stáli
að halda.
Þegar sementsverksmiðjan er
tekin til starfa, aukast mjög bygg-
ingar úr steinste\-pu í landinu. En
til þess að gera steinsteypu varan-
lega, þurfa að vera í henni stál-
teinar (reinforced concrete). Þessa
er sérstaklega þörf þar sem hætt
er við jarðskjálítum, eins og er á
íslandi. Hér sjáum við enn, að fyr-
ir höndum er mikill innfiutningur
á stálteinum í steinsteypu (því að
stál er í þeim en ekki járn). Þá
munuð þið sjá, að alvarlega fer
að reyna á gjaldeyririnn. Altaf
eykst þörfin fyrir innflutning stál-
vöru, eftir því sem framkvæmd-
irnar verða stórvægilegri.
Hér verðið þið að horfa fram í
tímann. Og ég vil gefa ykkur þetta
heilræði: í öllum hamingjunnar
bænum hættið að henda brotajárni
úr landinu, þessu dýrmæta og ó-
missandi hráefni. Arðrænið ekki
sjálfa ykkur. Fleygið ekki hráefn-
inu í hendur erlendra manna, til
þess að þeir fái allan hagnaðinn
af að vinna úr því á kostnað ykk-
ar. Það sem aðrar þjóðir geta
framkvæmt, það geta íslendingar
líka framkvæmt. Það hafið þið
sýnt margsinnis og sannað. íslend-
ingar eru svo miklir hagleiksmenn
að þeir geta smíðað sína eigin
„traktora“ og aðrar vélar sjálfir, og
þurfa þar ekkert að sækja til ann-
ara þjóða. Og þeir eiga ekki að
kaupa fyrir dýrmætan gjaldeyri
þá vinnu af öðrum þjóðum, er þeir
geta sjálfir leyst af hendi.
Þ'ið þurfið að koma ykkur upp
stálsteypu og teina-smiðju. Byrjið
s
s
s
s
\
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
<
Hljúð ríkir kyrrð um húsasund og stétt,
hregrgsvalur vinudr ymur döprum hreim.
Og regnið drýpur, drýpur jafnt og þétt,
og dimmum vagni skýin aka um geim.
Sig geymir sól við geigvæn rökkurtjöld,
hvert glaðvært bros í þagnardjúp er tæmt.
Nú er sem sigri hrósi heljarvöld,
sem húmi og regni Iíf þitt, jörð, sé dæmt.
Og kuli níst berst haustsins feigðarfrétt,
með föivans þyt um gættir inn til mín.
Regnið drýpur, drýpur jafnt og þétt;
heyr, dauðans ljár í bleikum skógi hvín.
KNÚTUR ÞORSTEINSSON
frá Úlfsstöðum.
s
s
s
s
s
s
s
s
)
s
s
)
s
s
)
s
s
s
s
s
)
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
í smáum stíl ef með þarf, en byrjið
þið. Og fyrsta sporið í þessa átt er
að hætta að henda brotajárninu í
útlendinga. Dragið allt ykkar
brotajárn saman á einn stað, þar
sem þið ætlið að reisa stálsteypu-
verksmiðju. Safnið þar saman öll-
um brotamálmi, sem þið getið, úr
skipum, bílum, ónýtum vélum o. s.
frv., því að innan skamms mun
ykkur skiljast að þið þurfið nauð-
synlega að koma stálsteypunni á
fót. Og nóg hafið þið aflið í land-
inu sjálfu, þar sem rafmagnið er.
Þótt rekstur slíkrar verksmiðju
gefi ekki mikið í aðra hönd til að
byrja með, já, jafnvel þótt reikn-
ingslegur halli yrði á rekstri henn-
ar fyrst í stað, þá mundi hún marg-
borga sig. Hráefnið er til í land-
inu og gjaldeyririnn fyrir vinnuna
verður kyr í landinu. Hve mörgum
miljónum þetta nemur, ættuð þið
sjálfir að geta séð.
Veiztu þetta
Nafnið Ástralía var fyrst notað
um eyaklasa suður í Kyrrahafi,
áður en ástralska meginlandið
fannst.
—★—
Snjóbirta stafar af sólbruna á aug-
unum, en hann orsakast af end-
urkasti sólargeisla af snjó.
—★—•
Eiffelturninn í París var reistur
árið 1889 í sambandi við heims-
sýninguna, sem þá var haldin
þar. Hann er kenndur við verk-
fræðinginn, sem gerði teikning-
ar að honum, Alexander Gustave
Eiffel.
—★—
Kosningafréttum var útvarpað í
fyrsta skifti árið 1920, þegar
Harding var kosinn forseti
Bandaríkjanna.