Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1952, Síða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
489
að frumteikningar voru gerðar að
mannvirkjunum og til smiðshöggs-
ins.
Skipulagning nauðsynleg
Áður en ég held lengra verð ég
að vekja athygli á nauðsyn þess,
að kvikmyndaframleiðslan sé ná-
kvæmlega skipulögð með tilliti til
framtíðarinnar, og það mjög langt
fram í tímann, vilji menn ekki eiga
á hættu að missa tækifæri. Danir
eru t. d. byrjaðir á vinnu við kvik-
myndir, sem eru þess eðlis að
myndatakan verður framkvæmd á
10 árum eða jafnvel lengri tíma.
Ég nefni sem dæmi myndina um
sandmýrina á Norður-Jótlandi, sem
fjallar um ræktun eins af síðustu
hrjóstursvæðum Danmerkur. Séu
álíka fyrirætlanir á döfinni eða
framkvæmdar hérlendis, yrði fyrir-
huguð kvikmynd um þær að skipu-
leggjast eða hefjast hið allra fyrsta.
Einungis með því að fylgja starfinu
eftir frá einu stigi framvindunnar
til annars er hægt að gefa ljósa
mynd af því, í hverju hin sífellda
breyting til hins nýa íslands er
falin. Nú er það orðið um seinan
að gera fullkomna mynd um raf-
orkuverið við Sogið, sem olli bylt-
ingu í iðnaði landsins. Þó má enn
gera mjög athyglisverða kvikmynd
um það efni, því að hinar nýu við-
bætur við orkuverið sýna að það
er í stöðugum vexti.
Á hinn bóginn má svo gera
menningarlega verðmætar kvik-
myndir um framkvæmdir, sem
fyrir löngu eru komnar í fulla
starfrækslu. Kannske verðið þið
hissa á því að ég sting upp á heilli
mynd um íslenzku síldarverksmiðj-
urnar. Þið segið kannske: „Það
er ekkert fallegt við síldarverk-
smiðjur!“ En ég segi: „Ó jú! Allt,
sem stuðlar að þjóðfélagslegri vel-
ferð, er fallegt!“ Og síldarverk-
smiðjurnar eru mjög athyglisverð-
ar — menn vita það bara ekki, því
flestir þekkja ekki annað til þeirra
en óþefinn. En ef þeir þekktu betur
til þeirra, myndi fýlan meira að
segja ef til vill verða þeim til gleði,
því hún er tákn þess, að verið er að
framleiða verðmæti fyrir alla þjóð-
ina. Og öllum ber að gera sér ljóst
í hverju þessi verðmæti eru fólgin.
Menn eiga að fá að sjá alla starf-
semina frá því að síldin veiðist til
þess að hreint lýsið er komið í
geymana, og þeir ættu að sjá hvað
má gera úr lýsinu — og hvað fæst
flutt inn til landsins fyrir andvirði
þess. í útlöndum hafa kvikmyndir
um jafn óskáldleg efni og sements-
verksmiðjur og skipasmíðastöðvar
vakið mikla athygli.
Flugvél ög skip
Ég minnist þess þegar ég sá í
fyrsta sinn eina af hinum stóru,
glæsilegu flugvélum íslendinga á
Kastrupflugvelli. Mér hnykkti við
er ég gerði mér grein fyrir hvílíkar
feikna framfarir hefðu orðið á ís-
landi, síðan ég heimsótti það land
síðast, árið 1935. í flestum löndum
hafa verið gerðar „spennandi" kvik
-myndir um nútíma flug, þar sem
fylgzt er með á langri ferð, og lýst
af nákvæmni ekki bara störfum
áhafnarinnar heldur fjölda annarra
manna, þúsundir kílómetra í burtu,
útsendingu veðurfregna og undir-
búningi á flugvöllum og þess hátt-
ar.
Og skipin! — eru þau ekki þjóð-
arstolt, bæði togarar og farþega-
skip? Englendingar ruddu á sínum
tíma brautina með kvikmyndinni
„Drifters“ — um síldveiðar á At-
lantshafi, og Danir hafa gerf svip-
aða mynd. En íslenzku togararnir
eru langtum fullkomnari og ný-
tízkulegri skip — þeir ættu að fá
sína eigin kvikmynd.
Og „Gullfoss“! — hvílíka kvik-
mynd mætti ekki gera um þá skeið!
Að sýna hversu slíkt farþegaskip
er heimur út af fyrir sig, þar sem
hver einasti maður, frá skipstjóra
til matsveins, gegnir sínu mikils-
verða starfi. Ekki mætti láta við
það sitja að sýna snotrar myndir
úr sölum og klefum, heldur einmitt
allt það, sem farþegarnir veita ekki
eftirtekt. Farið skyldi með áhorf-
endurnar í hvert einasta rými
skipsins, sýna allt sem skeður frá
brottförinni og þar til komið er í
nýa höfn — við verðum að sjá allt
fólkið sem vinnur að því að gera
ferðalagið eins þægilegt og öruggt
fyrir farþegana og mögulegt er.
Ferðalagið verður áhorfandanum
til tvöfaldrar gleði næst þegar hann
fer með skipinu — þegar hann
gerir sér ljósa grein fyrir því, hvað
för um úfið haf útheimtir í dugnaði
og árvekni hjá hverjum einasta
manni um borð.
Bæði þessi kvikmynd og sú fyrr-
nefnda yrðu verðmætar á margan
hátt, bæði fyrir nútíð og framtíð.
Og ekki kæmu þær sízt að notum
sem kennslukvikmyndir, þar sem
þær eru einfaldlega myndirnar um
„Nýtízku flugvél“ — „Nýtízku far-
þegaskip“ o. s. frv. u
Áróðursmyndir
Þriðji flokkur heimildarkvik-
mynda, sem er mjög útbreiddur,
er áróðursmyndirnar. Þær kenna
mönnum hvað þeir eiga að gera í
dagfari sínu, og fyrst og fremst
hvað þeir eiga ekki að gera, ef þeir
vilja komast hjá að vinna sjálfum
sér og öðrum tjón. —• Um þessar
myndir er ógerlegt fyrir ókunnug-
an að segja hvar þörfin er mest.
Framleiðslunni yrði að haga eftir
tilvísan Slysavarnafélagsins, land-
læknisembættisins og slíkra stofn-
ana. Efni myndanna getur verið
margs konar — smátt og stórt —•
frá hættunni við að fikta við raf-
magnsleiðslur, með eftirfarandi
húsbruna, til matreiðslu með til-
sjón af beztri nýtingu næringar-